Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 15
Sjómenn og fíkniefni
verið aö vinna. En hann var
aldrei tekinn.
„Min reynsla er sú að toll-
verðir og fikniefnalögregla
sjái aldrei neitt sem er beint
fyrirframan nefið á þeim. Það
er ekki fyrr en maður fer að
rifa niður og skrúfa i sundur
til að útbúa felustaði að þeir
finna eitthvað. Það sem ég
notaði mest var að koma
tækjunum þar fyrir sem toll-
ararnir komu örugglega; til
dæmis festa þau undir borðin
i messanum, þar sem tollar-
arnir drukku kaffi eða átu
steikur. Besta ráðið var hins
vegar að setja þetta á bretti,
breiða yfir það plast og
merkja dótið nafni einhvers
fyrirtækis.
Sama gildir um hassið. Ef
þess er gætt að ganga rétt
frá þvi finnur það enginn, —
ekki einu sinni hasshundur-
inn. Ég hef lent i þvi að fá
hundinn inn i klefann til mín,
þar sem ég var með fullt af
hassi, en hann þefaði bara út
i loftið og fór svo út. Galdur-
inn er pökkunin. Það er ekki
rétt sem sagt er að hass-
hundurinn finni lykt i gegnum
hvaö sem er. Hann finnur lykt
sem skilin er eftir á umbúð-
unum.
Ég notaði þá aðferð við aö
pakka inn t.d. hassi, að fyrst
breiddi ég vandlega úr um-
búðunum á borð og lagði
hassköggulinn þar ofan á.
Siðan fór ég og þvoði mér
vandlega um hendurnartil að
ná af mér hasslyktinni. Því
næst vafði ég umbúöunum
utari um köggulinn og gætti
þess þá vandlega að snerta
ekki efniö með höndunum. Ef
pökkunin er nægilega vel
framkvæmd á þennan hátt,
finnur hundurinn enga lykt,
sama hvað menn segja um
yfirnáttúrulegt lyktarskyn.
Hass í fríhafnarpoka
Oftast notaði ég þá aðferð
að festa kaup á dópinu i
höfnum erlendis, koma þvi
þar i geymslu og fljúga svo út
aftur til að ná i það. Þá þurfti
ég auðvitað að taka mér fri
einn túr, en það var ekkert
mál. Og ég var aldrei tekinn,
sama hve mikið ég kom með
inn i landiö. — Leyndardóm- urinn var sá sami og ég gat um áðan; þeir finna ekkert ef það er bara beint fyrir framan nefið á þeim. Aðferðin sem ég notaði var svo sáraeinföld að þaö datt örugglega engum i hug að hún væri notuð. Þegar ég fór utan keypti ég mér tvö karton af sigarettum. Þegar út kom opnaði ég annað kartonið; skar selló- fanið utan af þvi með rakvél-
HRBMMI
arblaði og gætti þess að
skemma það ekki. Síðan tók
ég allar sigaretturnar úr
pökkunum en setti sömu
þyngd af hassi i staðinn,
lokaði þeim og gekk þannig