Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 51
 ALÞJÓÐLEGAR FRÉTTIR ÚR PACIFIC FISHING NOREGUR. Norskir vísindamenn reyna nú aö fá leyfi yfirvalda til aö kanna áhrif olíuvinnsl- unnar á fiskiveiöar. Lifræöingar vilja ganga ur skugga um hvort fiskur leitar aö borpöllum og ef svo er hvaöa áhrif þaö hefur á árstiða- bundnar ferðir fiska svo sem þorsks, ýsu og ufsa. Samkvæmt upplýsingum eins vísinda- mannsins Steinars Olsen hafa mikilvæg ufsa- miö myndast á einum staö i Norður sjónum i kjölfar oliupallabygginga. Á landgrunni Noregs hefur olía og gas fundist lengra frá landi en helstu fiskimiöin eru. MEXIKÓ. Yfirvöld i Mexikó fullyröa aö 15-20 Bandariskir túnfiskbátar veiði ólöglega i land- helgi Mexikó og noti flókinn rafeindabúnaö tii aö forðast gæsluskip Mexíkana. Bandarikja- menn neita þessu. Metveiði hefur verið hjá túnfiskimönnum i Mexikó. Fyrstu 9 mánuöi ársins 1985 voru komin á land 67.400 tonn á móti 42.600 tonnum á sama tíma áriö 1984, sem er 60% aukning. Búist er viö að heildar afli af túnfiski áriö 1985 veröi 90.000 tonn. SKOTLAND. i Bretlandi, Noregi, Færeyjum, 'ls- íándi og víðar viö Norður Atlantshafiö hafa far- ið fram tilraunir meö að framleiða krabbakjöt úr öörum fisktegundum, svonefnt surimi. Þessar tilraunir hafa gefið góöa raun, sérstaklega hef- ur tekist vel með fisktegund sem nefnast Nor- way pout og blue whiting. Upphafsmenn aö þessari framleiðsluaðferö voru Japanir og fluttu þá framleiösluna fyrst og fremst á Bandarikjamarkað. Aöalhráefniö i þessa vinnslu hefur verið Alaskaufsi, sem veiðist mikiö viö Alaska. Bandarikjamenn hafa nú reist margar verksmiðjur í Bandaríkjunum til aö veröa sjálfum sór nógir um þessa framleiðslu. Þetta hefur valdið þvi aö Japanir hafa leitaö aö markaði i Evrópu fyrir þessa afurö en sjá nú fram á aö sá markaður muni einnig tapast vegna fj-amleiöslu Evrópumanna sjálfra. Þeir hafa þvi tekið þaö til bragðs aö aöstoða Evrópumenn viö framleiösluna, flytja út þekk- ingu i staöinn fyrir fiskafuröir. Fyrirtækiö Kibun Group sem reist hefur surimiverksmiöjur viöa um heim ætlar nú i samvinnu viö Skota aö reisa verksmiðju af þessu tagi i Motherwell Foodpark i Lanarkshire i Skotlandi. Japanir hafa í huga að reisa fleiri surimi-verksmiöjur i Evrópu, en Skotland var valið fyrir þá fyrstu vegna þess að þar er nóg af fiski og verka- mönnum, einnig er lofthiti hagstæöur þ.e. til- tölulega kalt allt áriö. ÁSTRALÍA. Fyrirtækió A Rapits and Sons Northern Australia gerir nú tilraun til að selja framleiöslu sina i Evrópu. Um er að ræða sjó- frysta ósoöna rækju, en fyrirtækinu hefur gengiö vel aö selja rækjuna i Ástralíu og von- ast til að ná fótfestu á Evrópumarkaði. Rækja þessi veiöist i Carpentariaflóa sem gengur inn í noröurströnd Ástraliu, en þar eru einhver gjöfulustu rækjumið i heimi. Fyrirtækiö á 25 nýtisku togara og er meöal þeirra fyrstu sem hófu sölu á ópillaðri frystri rækju. JAPAN. Samtök fiskimanna i Japan krefjast haröari afstööu stjórnarinnar i samningaum- leitunum um heimildir til fiskiveiða hjá öðrum þjóðum. i samningaviðræöum við Bandarikin er búist viö að aðalumræðuefnið veröi, auk veiða á úthafslaxi og smokkfiski, hugsanleg tengsl heimilda Japana á þessum svæöum við heimildir annarra þjóöa á Norður-Kyrrahafinu. Jafnaðamannaflokkurinn i Japan ætlar að leggja fram aö nýju tillögu sina um lagasetn- ingu sem felur i sér haröa afstööu gegn Bandarikjamönnum sem hóta minnkuðum veiöiheimildum. Þaö er óvíst aö stjórnarflokkurinn i Japan, Frjálslyndi lýöræöisflokkurinn, Ijái slíkri laga- setningu stuöning sinn. Viöræður Japana við Rússa um veiöiheimildir munu veröa erfiðar eins og venjulega. Japanska stjórnin reynir að koma i veg fyrir yfirgang japanskra skipa á miöunum til aó skapa betra andrúmsloft viö samningaviðræöur um auknar veiöiheimildir á laxi. ECUADOR. Rækjuafli i Ecuador 1980 var 17000 tonn en 36600 tonn 1983. Af rækju- framleiðslunni 1983 voru 20.000 tonn eldis- rækja svo að sjávaraflinn hefur ekki aukist það áriö. í maí 1985 kom í Ijós að sjór undan strönd Ecuador haföi kólnað verulega og var i árslok þaö ár allt aö 2” undir meöallagi. Þessi kólnun sjávar hefur þegar haft í för meö sér að rækju- stofninn viö Ecuador hefur minnkaö. Þessi kæling er mest á miðbaug, en nær frá 20” norölægrar breiddar til 20” suðlægrar breiddar og 1000—1500 sjómílur i vestur frá strönd Ecuadors og Perús. CHILE. Aö því er visindamenn segja hefur kæling sjávar við Ecuador og Perú valdið þvi aö sardínustofninn hefur náð hámarki, en hann hefur vaxið undanfarin ár og búist við framhald á þvi. Ekki hefur orðiö vart neinnrar breytingar á ansjósustofninum.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.