Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1990, Side 61
„EG SKIPTI
" -spjallaö í
talstööina
mundir er fluttur út ferskur, en veröiö uppí skýjun-
um og langt fyrir ofan þaö sem fæst fyrir hann
frystan. Fyrir bragðið dregst atvinna fiskvinnslu-
fólks í Noregi saman ofan á þaö sem hraöminnk-
andi afli Norömanna veldur. Margir hér á landi
óttast að ef þetta háa verð helst á erlendu fisk-
mörkuöunum muni atvinnuleysi segja til sín í
flestum sjávarplássum, miklu fyrr en venjulega
en það hafa verið mánuðirnir nóvember og des-
ember, sem atvinnuleysið hefur einkum gert vart
við sig. Nú þegar hefur fólk orðið vart við sam-
drátt, sem kemur fram í minni aukavinnu en
nokkru sinni fyrr á há vertíð.
Þeim fjölgar atriðunum sem mönnum þykir
ástæða til að Hafrannsóknastofnun svari en gerir
það ekki þótt spurt sé. Spurt var hvað varð af
loðnunni í allt haust? Ekkert svar. Spurt var, hvers
vegna lét demantssíldin ekki sjá sig í nóvember
eins og vanalega, heldur kom í janúar lok þegar
komið var að veiðibanni á hana? Ekkert svar.
Spurt er hvers vegna gengur ekki fiskur í Breiða-
fjörð, eins og á aðra slóð á þessari vertíð? Ekkert
svar. Hvers vegna er allt í einu kominn aulaþorsk-
ur sem uppistaða í afla vertíðarbáta fyrir Suður-
landi. Sennilega síðustu fiskarnir af 1983 árgang-
inum, er svarið. Þær eru orðnar ansi margar
spurningarnar sem hafrannsóknastofnunin verð-
ur að fara að svara ef taka á mark á tillögum
stofnunarinnar um aflahámark tegundanna.
Mörgum þykir einkennilega hafa verið staðið
að kjarasamningum bæði Sjómannasambands-
ins og Farmanna-og fiskimannasambandsins.
Skorað hefur verið á félögin að afla sér verkafalls-
heimilda. Úr því sem komið er liggur Ijóst fyrir að
verði verkfall boðað getur það ekki komið til fram-
kvæmda fyrr en í lok maí. Þá er vertíðin búin,
komið sumar og nákvæmlega engin pressa á
útgeröarmenn að gera nýja kjarasamninga.
Mörgum þykir sem forystumenn samtakanna hafi
sofiö á verðinum og misst af strætisvagninum að
þessu sinni.
Erindi Farmannasambandsins til ríkisstjórnar-
innar um að breyta lögunum um olíuhlutdeildina
fékk neikvæðar mótttökur — að lokum. Sannleik-
urinn er sá að þegar erindið barst ríkisstjórninni
var því ekki illa tekið- þá var Halldór Ásgrímsson
staddur í Japan. Beðið var með að svara Far-
mannasambandinu þartil Halldórkom heim. Eftir
að hafa ráðfært sig við Kristján Ragnarsson for-
mann LÍÚ, en hann er aðal ráðgjafi Halldórs í
öllum málum, þvertók Halldór fyrir að samþykkja
erindið og svar ríkisstjórnarinnar var neikvætt.
HITABLÁSARAR OG VATNSHITARAR
Bensín og gasolíuhitablásarar, 12 og 24 volt, fyrir báta, bíla og vinnuvélar.
Varahlutir og viðgerðarþjónusta.
Einnig: Spíssadýsur, varahlutir í eldsneytiskerfi, vélavarahlutir,
afgastúrbínur, o.fl.. Sérpöntunarþjónusta.
—■ I. Erlingsson h/f, varahlutir og Schwitzer
| viðgerðarþjónusta. forþjöppur.
Skemmuvegi 22, 200 Kópavogi. Símar: 670699 og 670693. Einkaumboð á íslandi