Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1998, Blaðsíða 58
Skipasmíðastöðin Skipavík:
Skipasmíðastöðin Skipavík
hf. var stofnuð 1967 við sam-
einingu Skipasmíðastöðvar
Stykkishólms hf. og Skipavíkur
hf. Árið 1975 sameinaðist Vél-
smiðja Lárusar Rögnvaldsson-
ar fyrirtækinu. Skipavík smíð-
aði í upphafi eikarbáta sem
reyndust mjög vel, en þegar
smíði stálskipa hófst á íslandi
má segja að Skipavík hafi
dregist aftur úr mörgum öðrum
skipasmíðastöðvum, því ekki
var farið út í smíði stálskipa.
Þess í stað einbeitti stöðin sér
að þjónustu við tréskip og stál-
skip. Segja má að þetta hafi
verið lán Skipavíkur því rekst-
urinn hefur gengið nokkuð vel
lengst af og Skipavík er ein af
Frá Skipavík í Stykkishólmi.
fáum skipasmíðastöðvum á ís-
landi sem hefur staðið af sér
þau miklu áföll sem dunið hafa
yfir íslenskan skipasmíðaiðn-
að. Nú í sumar urðu breytingar
á eignarhaldi félagsins þegar
eigendur meirihluta hlutabréfa
fyrirtækisins seldu sinn hlut til
nokkura fjárfesta í Stykkis-
hólmi, á sama tíma hóf Skipa-
vík rekstur trésmíðadeildar og
jarðvinnu. Auk skipaviðgerða
og þjónustu við fiskvinnslu, er
nú unnið við smiði sundlaugar,
varmaskiptastöð fyrir hitaveitu
Stykkishólms ásamt lagningu
aðveituæðar fyrir hitaveituna.
Skipavík hefur því breyst úr
þjónustufyrirtæki við útgerðir
og fiskvinnslu í alhliða verktaka
og þjónustufyrirtæki. Þessar
breytingar hafa þegar haft tvö-
földun á veltu för með sér.
Væntanlegar eru fleiri breyting-
ar því nú er verið að huga að
þróunardeild sem hafa skal
það að markmiði að koma
með nýjungar framleiðslu á
hlutum úr plasti, stáli og öðr-
um efnum. Hugmyndin er að
komið verði upp framleiðslu-
deild sem geti framleitt hluti
allt árið þannig að vinna verði
jafnari yfir árið og afkoma þar
af leiðandi betri. Eigendur
Skipavíkur telja að með bætt-
um samgöngum á Vesturlandi
hafi skapast meiri möguleikar
til eflingar fyrirtækisins og ætla
sér að nota þá uppsveiflu sem
nú er í þjóðfélaginu og í Stykk-
ishólmi til byggja upp fjölþætt-
an og traustan rekstur, sem
muni verða einn af hornstein-
um atvinnulífs í Stykkishólmi
um langa framtíð. ■
* m
Sjómenn og útgerðarmenn athugið!
Sími:
Fax:
Arnarstapi 435 blll
435 6797
• Rif 436 697/
436 6912
Olafsvík 436 1646,436 1647
436 1648
GSM 896 4746 I 893 6846
Rekum uppboðsmarkaði í öllum höfnum Snæfellssness.
r
Utvegum löndun, ís og umbúðir.
Eigum ávallt fyrirliggjandi flestar tegundir beitu s.s. síld, smokkfisk, kúffisk,
gerfibeitu(ýsubeitu), loðnu og einnig frosið síli.
Einnig seljum við ýmsar rekstrarvörur t.d. ábót, baujur og belgi
1 *
m rc
■
iAFJARÐAR
• Grundarfjördjr 438 6971 • Stykkishólmur 438 1646
438 6972 438 1647
Avallt til
• r
58
Sjómannablaðið Víkingur