Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Page 4
Kraft-
bjorgun
Mér er til efs að nokkru sinni í íslandssögunni hafi
annar eins kraftur verið til staðar í tengslum við
björgun af strandstað eins og við höfum orðið vitni að þá
viku sem tók að ná Baldvini Þorsteinssyni EA úr ógnarsterk-
um greipum Meðallandsfjörunnar. í engu var til sparað,
ákveðni manna, allt skipulag og framvinda málsins ber þess
merki að þeir sem að verkinu stóðu voru staðráðnir í því að
sigrast á þessu flókna og erfiða verkefni.
Maður fékk það fljótt á tilfinninguna að ekki yrði látið
staðar numið fyrr en í fulla hnefana og spurningin væri ekki
hvort heldur hvenær skipið næðist á flot. Þegar þetta er
skrifað þann 17. mars og skipið laust úr rimmunni við
sandinn og á leið til hafnar, samfagna allir sjómenn með
þeim sem hlut eiga að máli og vil ég óska útgerð, áhöfn og
fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með þessi farsælu
málalok. Öllum ætti að vera ljóst að lyktir málsins hefðu
getað orðið á allt annan og verri veg en raun ber vitni.
Eftir að hafa orðið vitni að þessum krafti og þeim árangri
sem af honum leiddi þá spyr maður sig hvort ekki sé tíma-
bært að yfirfæra viljann, skipulagið, ákveðnina og dugnað-
inn yfir í nýjan farveg. Þar á ég við að útgerðarmenn settu
sama kraftinn og einbeitninguna í þær kjaraviðræður sem í
gangi eru milli útvegsmanna og sjómanna.
Björgunin sýnir svart á hvítu að útgerðarmenn geta, þegar
viljinn og krafturinn eru til staðar. Þá leysa þeir stórkostleg
vandamál, með glæsibrag, á mettíma. Þetta er reyndar eitt-
hvað sem ég tel mig hafa vitað nokkuð lengi. Því er mér
með öllu óskiljanlegt að samtök þessara sömu útgerðar-
manna séu jafn róleg og raun ber vitni, þegar ganga skal til
kjarasamninga. Útgerðarmenn! Fylgið þessu góða fordæmi
og beinið nú kröftunum að þeim samningaviðræðunum sem
framundan eru, með þeim slagkrafti sem einkenndi fyrr-
nefndar björgunaraðgerðir. Þá værum við 1 góðum málum.
Árni Bjarnason
Kiisijon og aDyrgOarmaöur: bæinundur Gudvinsson, \ I
simi 868 2159, netfang sgg@mmcdia.is.
Auglysingastjóri: Sigrun Gissurardóttir, stmi 587 4647
Ritncfnd: Arni Bjarnason, Eirtkur Jonsson, Hilmar Snorrason
Forscti FFSÍ: \rni Bjarnason I— L.
Umbrot. filmuvinnsla, prentun og bókband: Gutcnberg " "
Aóildarfélög FFSÍ: Fclag skipstjornamianna. Féiag isienskra ioftskcytamanna, Fei.
br\’ta, Féíag tnatreiósluinanna. Skipstjóra- og styrimannaféíögin Verðandi, Vestmann
um, Vísír, Suðurncsíum.
6-11
12-19
20
22-24
Fréttir af ýmsum toga.
Stofnun Félags skipstjórnarmanna
24. janúar.
Viðtal við Árna Bjarnason forseta FFSÍ og
formann FS.
Norræn Ijósmyndakeppni sjómanna 2003.
26-28
29-30
32-35
36-37
38
39-40
41
42-43
46
47-48
49-50
Grálúðan beit mig í nefið. Viðtal við Vigni
Guðmundsson sem gafst upp á sjómennsku
eftir að hafa þolað súrt og sætt í starfi á
sjónum.
Ræða Árna Bjarnasonar á málþingi um stjór-
nun fiskveiða sem haldið var í Sjómann-
skólanum.
Hilmar Snorrason skipstjóri segir sem
fyrr athyglisverðar fréttir utan úr heimi
um hvaðeina sem snertir sjómennsku
og siglingar.
Inga Valborg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur
er í Heilsuhorninu og greinir frá áhættuþát-
tum kransæðasjúkdóma.
Sigling um Netið. Hilmar Snorrasona siglir
um Netið og segir frá áhugaverðum síðum.
Samstaða um sjálfstæði í siglingum -
Áskorun til stjórnvalda.
Tilraunaveiðar
Hafarannsóknarstofnunarinnar
á bláuggatúnfiski.
Af Magnúsi Ólafssyni og Ijósmyndum hans.
Sjötta starfsári Sjávarútvegsskólans er lokið
með útskrift 22 nemenda. Alls hefur skólinn
útskrifað 84 nemendur frá 20 löndum.
Garware-Wall Ropes hefur haslað sér völl á
íslandi.
Fréttir frá Danfoss.