Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 20
Rœtt xið Árna Bjarnason formann Félags skipstjórnarmanna og forseta FFSÍ
Þurfum stórt og öflugt félag
gegn stórum útgerðablokkum
Þróunin i greininni hinum megin frá
hefur verið með þeim hætti að þetta
eru orðnar örfáar stórar blokkir og það
veitir ekki af fyrir okkur að hafa eins
stórt og öffugt félag og unnt er á móti,”
sagði Árni Bjarnason formaður Félags
skipstjórnarmanna er hann var spurður
um helstu ástæður sameiningarinnar.
„Pað er borðleggjandi staðreynd að eitt
eða tvö stór útgerðarfyrirtæki eru alls
ráðandi í heilum landsfjórðungum og i
sumum tilvikum á landsvísu. Það er ekki
mjög spennandi fyrir landshlutafélag
skipstjórnarmanna, þar sem starfandi
skipstjórnarmenn sem vinna hjá þessum
aðilum eiga svo að standa í kjarabaráttu
á sama tíma. Reynslan sýnir okkur að
slfk staða er yfirleitt ekki vænleg fyrir þá
sem hlut eiga að máli. Þótt félög skip-
stjórnarmanna hafi verið aðilar að Far-
manna- og fiskimannasambandinu þá
eru til dæmi þess að viðsemjendur okkar
hafi reynt að reka fleyg milli aðildarfé-
laga með því að gera tilraun til að semja
við eitt landshlutafélag og rjúfa þar með
samstöðuna. Ég tel að slíkt verði ekki
inn í myndinni í framtíðinni ef aðeins
yrði einn viðsemjandi fyrir alla skip-
stjórnarmenn í landinu og þá þyrfti bara
eina atkvæðagreiðslu til að ákveða hvort
menn vilji fara í aðgerðir eða ekki.”
Tilllaga um sameiningu 1997
Árni bendir á, að í gegnum áranna rás
hafi verið uppi ýmsar tilraunir til að
sameina félög skipstjórnarmanna. „Ég
held meira að segja að á sínum tíma hafi
þær tilraunir verið komnar mjög langt á
milli Öldunnar og Skipstjóra- og stýri-
mannafélags íslands. Við fulltrúar Skip-
stjóra- stýrimannafélags Norðlendinga
lögðum svo til á þingi Farmanna-fiski-
mannasambandsins árið 1997, að skip-
stjórnarmenn sameinuðust i eitt félag og
hafði Guðmundur Steingrímsson fram-
sögu um málið fyrir okkar hönd. Tillag-
an varð til þess að skipuð var þriggja
manna nefnd sem í voru Guðjón A.
Kristjánsson, Guðlaugur Jónsson og ég.
Við heimsóttum öll aðildarfélögin og
könnuðum viðhorf þeirra til sameiningar
og hvaða áherslur menn höfðu í þessu
sambandi. Hugsunin var sú að sameinað
félag yrði til úr Farmanna- og fiski-
mannasambandinu. Þótt ekki yrði af
Ami Bjamason formaður FS ogforseti FFSÍ.
sameiningu félaga þá þegar var það fljót-
lega í kjölfarið sem Hafþór á Akranesi,
Kári í Hafnarfirði og Skipstjóra- og stýri-
mannafélag íslands sameinast árið 2000
undir merkjum FSK.”
Tilfinningarök töfðu sameiningu
- Finnst þér sem tilfinningamdl hafi ráð-
ið miklu um hvað sameining félaganna hef-
ur tekið langan tíma?
,Já, ég held að þrátt fyrir að ávinning-
ur sameiningar hafi blasað við flestum
hafi sá ávinningur lotið í lægra hald fyrir
tilfinningarökum og atriðum sem höfðu
ekkert með kjaramál að gera. Maður hef-
ur jafnvel heyrt einstaka félagsmann
mótmæla hugmyndum um sameiningu á
þeim forsendum að þá sé ekki víst að
hann fái aðgang að sumarhúsi eða íbúð
um miðjan ágúst eins og hann sé vanur.
Ákveðnir menn virðast horfa framhjá því
að þeir hljóti þegar frá líður að öðlast
aukin og betri réttindi samfara þessari
auknu samtryggingu sem felst í stóru fé-
lagi, hvort sem við nefnum
félagssjóð,sjúkrasjóð og styrktarsjóð,
orlofsheimilasjóð.verkfallssjóð eða aðra
sjóði sem stofnaðir kunna að verða.”
- Þú ert kjörinn forseti FFSÍ síðla árs
2001. Fórstu fljótlega að huga að sameining-
armálum?
„Það má segja það, enda hafa þessi mál
verið ofarlega í huga mér. Við i Skip-
stjóra- og stýrimannafélagi Norðlendinga
höfðum rætt það af og til hvaða leiðir
væru vænlegar til að ná árangri í við-
leitni til sameiningar. Menn hér voru
nokkuð sammála urn að þótt aðeins yrði
um að ræða sameiningu tveggja stórra fé-
laga til að byrja með væri það skref í átt-
ina. Ef við næðum að sameina þrjú
stærstu félögin væri það mjög stór á-
fangi. í leiðinni létum við þau boð út
ganga að allir sem leituðu aðildar innan
árs frá stofnun sameinaðs félags teldust
til stofnfélaga. Þannig er háttað með
Sindra á Austfjörðum. Þessi þrjú stæstu
félög kláruðu sameiningarferlið en Aust-
firðingarnir voru það röskir að þeir voru
búnir að klára atkvæðagreiðslu á sínu
svæði fyrir stofnfundinn. Þar kom fram
eindreginn vilji lil sameiningar þar sem
allir sem atkvæði greiddu reyndust fylgj-
andi sameiningu. Þann 24. janúar má
því segja að fjögur félög hafi sameinast. 1
mars lauk síðan atkvæðagreiðslu Vest-
firðinga í Bylgjunni og þar var samþykkt
tneð afgerandi hætti að slást í hópinn.
Bylgjan telst því einnig til stofnfélaga. Nú
standa tvö félög, það er Vísir á Suður-
nesjum og Verðandi í Vestmannaeyjum
fyrir utan FS, auk fámennari félaga innan
FFSÍ, það er Matvís, Félag bryta og Félag
loftskeytamanna.”
FFSÍ regnhlífarsamtök félaganna
Árni Bjarnason sagði þótt búið sé að
stofna hið nýja sameinaða félag taki sam-
einingarferlið sjálft sinn tíma. “Vonandi
verða menn þess vísari fyrr en seinna á
sem flestum sviðum að þetta félag sé far-
ið að skila mönnum eitthvað fram á veg-
inn. Til þess er leikurinn gerður. Félögin
þrjú sem samþykktu sameiningu í upp-
hafi eru öll vel stödd fjárhagslega og fé-
lagsmenn i nýja félagi á 14. hundrað
talsins.
Farmanna- og fiskimannasambandið
verður áfram í hlutverki regnhlífasam-
taka félaga skipstjórnarmanna á landinu,
þótt aðildarfélögum hafi nú fækkað mik-
ið og eitt þeirra áberandi stærst. Ef öll fé-
lögin í FFSÍ sameinast verður auðvitað
komið landsfélag, hliðstætt við til dæmis
Vélstjórafélag íslands,” sagði Árni
Bjarnason. - SG
20 - Sjómannablaðið Víkingur