Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 42
Reykjavikurhöfn, um 1930. Frá hœgri; Kveldúlfur MB 27, Egill Skallagrímsson MB 73 og Bifröst RE 232. Litla húsið fremst á myndinni t.h. var
eittfyrsta útisalernið, píssoir.
þessari bók eru 108 myndir eftir
Magnús Ólafsson (1862-1937) teknar
á fyrstu þremur áratugum 20. aldar. Petta
eru ljósmyndir sem vega salt á milli
heimildagildis og ævintýris og veita ein-
stæða sýn inn í horfinn heim: Fólk kem-
ur prúðbúið út úr Dómkirkjunni, menn
stikla á ísjökum í Reykjavíkurhöfn, börn
hlaupa eftir Laugaveginum, slökkviliðið
heldur æfingu við Austurvöll, konur
breiða saltfisk við Vesturgötuna, fótbolti
rúllar á Melavellinum árið 1915 - síðan
lyftir Magnús sér yfir byggðina og tekur
fyrstu loftmyndina af Reykjavik.
Magnús var fjölhæfur maður. Ljós-
myndari af ástríðu og atvinnu eftir fer-
tugt, lék á orgel og fiðlu, spilaði í kvar-
tett sem hélt fyrstu fiðlutónleikana í
Reykjavík, gekkst fyrir kvikmyndasýn-
ingum og er talinn hafa gert fyrstu kvik-
myndina á íslandi. Magnús var fram-
kvæmdamaður, fullhugi og frumherji
sem skynjaði umbrotamikinn samtíma
sinn og megnaði að varðveita brot af
honum handa komandi kynslóðum.
Steinbryggjan, 1919.
42 - Sjómannablaðið Víkingur