Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
innihaldið af léttari samsætu
helíums (3He) í gosefnum Etnu
hærra en í Vúlkan, en þó lægra en í
úthafseyjum (t.d. í Hawaii). Hátt
innihald og samsætuhlutföll snefil-
efnanna blýs, strontíums, neó-
dýmiums og hafníums benda einnig
til að þáttur af basalti úthafseyja
(„Ocean Island Basalt") sé í gos-
efnum Etnu.11 Hins vegar eru hlut-
föll samsætna argons alveg í
ósamræmi við það, þótt þau séu
mæld í sömu ólivínkristöllum
mynduðum á 11-24 km dýpi og
þeim sem sýna hátt innihald af
léttari samsætu helíums (3He).
Argonhlutföll í Etnu samsvara
nánast hlutföllum andrúmslofts-
ins,12 en í gosefnum úthafseyja víkja
þau að öllu jöfnu greinilega frá
þeim. Jarðfræðinga greinir á um
hvernig skuli túlka þetta. Kvikan í
Etnu rís í gegnum 15 km af setbergi
og er það talið hafa áhrif á
upprunalegt mynstur snefilefna,
þótt sumir efnaferlar séu enn fjarri
því að vera ljósir. Hitt er þó víst:
Gosefni Etnu eru af öðrum uppruna
en gosefni Vúlkans og þar með má
einnig búast við ólíkri goshegðun.
Myndunarsaga Etnu í
STUTTU MÁLI
Samkvæmt nýju líkani er jóníska
skorpuflykkið rétt austur af Etnu
bæði að síga inn undir Jónahafið og
Kalabríu og færast til suðurs; af
þeim sökum breikkar bilið á milli
jóm'ska skorpuflykkisins og Tyrren-
ísarflekans.13 Þessu má líkja við það
þegar maður heldur fast í efri sneið á
samlokubrauði en sú neðri losnar
smám saman af. Fyrir bragðið
myndast holrými milli flekanna og
fyllist jafnt og þétt af möttulefni sem
streymir inn undan Afríkuflekanum
að vestanverðu. Við það myndast
einskonar möttulstrókur sem
streymir upp á ská. Það er hugsan-
legt að til verði aðstæður sem yrðu
bráðnun í möttlinum mjög hag-
stæðar, þ.e. hærra hitastig við lægri
þrýsting en venjulega. Þetta upp-
streymi möttulefnisins veldur einiiig
því að jarðskorpan undir Etnu
bólgnar greinilega út: undir topp-
gígunum er undirstaða Etnu í 1300
metra hæð yfir sjó en lækkar mjög
hratt niður undir sjávarmál við
ströndina. Djúpar sprungur í fleka-
mótunum milli Afríku- og Tyrren-
ísarflekans veita kvikunni upp
einmitt þar sem Etna rís.13
Eldvirkni, sem rekja má til
eiginlegs Etnukerfis, hófst fyrir
500.000 árum. I upphafi gaus úr
aðgreindum sprungum líkt og hér-
lendis, að hluta til neðansjávar.
Gosbergið var frumstætt ólivín-
þóleiít ásamt örlitlu af alkalíbasalti
sem þó fannst eingöngu í innlyksum
í ólivínkristöllum.14,15 Ekkert bendir
til að á þessum tíma hafi verið til
kvikuhólf sem kvikan hefði getað
þróast í.d Þannig hlóðst undirstaða
núverandi Etnufjalls upp úr bólstra-
bergi, móbergi og nokkrum hraun-
spildum. Undirstaðan er nú aðeins
sýnileg á fáum stöðum (t.d. í Aci
Castello og Aci Trezza), en megin-
hluti hennar er grafinn undir sjálfri
eldkeilunni. Hiin myndaðist þegar
gosstöðvarnar einöngruðust á
afmörkuðu svæði fyrir 300.000
árum. Gosbergið breyttist um leið
smám saman yfir í trakýbasalt eða
réttara sagt afbrigði þess, etnaít, sem
hefur m.a. óvenjulega hátt innihald
af nikkel, krómi og magnesíum
miðað við venjulegt trakýbasalt.14
Þetta bendir til að kvikan hafi farið
að safnast fyrir í einskonar kviku-
hólfi og að vissu leyti þróast á
óvenjulegan hátt, því innihald
þessara málma minnkar að öllu
jöfnu mjög snemma við kristal-
myndun í kviku. Etnaít er megin-
bergtegund Etnu en um 20% eru af
öðrum þróaðri bergtegundum.
Etnaít er talið myndast á 40-70 km
dýpi.14 Hér er þó ekki um að ræða
eiginlegt hólf í merkingunni stórt
holrými, heldur er þetta svæði þar
sem að jafnaði er ekki meira en 20%
bráð til staðar í berginu. Þessu má
8. mynd. Sprungið malbik á leiðinni að
nyrðri gosstöðvunum. Ljóstn. Richard
Kölbl, 3. nóv. 2002.
+
9. mynd. Kirkjan í Santa Venerina sem
skemmdist illa ígosinu 2002. Slökkviliðið
er að hreinsa laust grjót ofan afkirkjunni.
Talsvert af grjóti liggur á torginu
umhverfis kirkjuna. Sprungur i veggjum.
Ljósm. Richard Kölbl, 4. nóv. 2002.
d Þegar kvikan hvílir í kvikuhólfi um lengri tíma, myndast steindir úr ákveðnum efnum r kvikunni en önnur efni verða eftir. Þannig breytist efnasamsetning
smám saman þannig að aðrar steindir geta farið að myndast. Við það breytist kvikan sjálf yfir í aðra tegund og samfara því eiginleikar hennar, hún verður t.d.
oftast seigari. Þetta er kallað þróun kvikunnar í kvikuhólfum.
7