Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 72
Náttúrufræðingurinn
að rita ættkvíslanöfn í fleirtölu og
hafa sumir grasafræðingar tekið
það eftir honum.
í ritinu Sælindýr við ísland (1919)
eftir Guðmund G. Bárðarson kom
fyrst fram sú nýbreytni að mynda
fyrri hluta tegundanafna sömu ætt-
kvíslar með orðum sem standa í
einhverju merkingarlegu samhengi
en eru á engan hátt lýsandi fyrir
tegundirnar sem slíkar. Seinni hluti
nafnanna er þá vanalega hið al-
menna flokksheiti, t.d. bobbi, snig-
ill eða skel, sem ekki er sérstakt fyr-
ir ættkvíslir eða ættir og getur ekki
skoðast sem stofnheiti. Dæmi: Teg-
undir af samlokuættkvíslinni Ven-
us kallar Guðmundur friggjarskel,
freyjuskel, nönnuskel og sjafitarskel.
Þær eru kenndar við hinar fornu
gyðjur Ásatrúar, eflaust með hlið-
sjón af Venusar-nafninu. Ekki var
þetta þó almenn regla hjá Guð-
mundi því að oftast fylgir hann
nafnareglum Stefáns.
Ingimar Óskarsson tók þessa ný-
breytni upp í Skeldýrafánu sinni
(1952 og 1962) og hún varð síðan
nokkuð áberandi í bókum sem
hann og Ingólfur Davíðsson rituðu
um garðplöntur og stofublóm.
í þýðingu sinni á bókinni Fuglar
íslands og Evrópu, Fuglabók AB
(Peterson o.fl. 1962) innleiddi Finn-
ur Guðmundsson þá reglu að gefa
ættum eða ættbálkum fuglanna
stofnheiti, í stað ættkvísla, og hefur
það síðan verið meginregla hjá
þeim sem ritað hafa um smádýr.
Erlendar PLÖNTUR
Garðplöntur
í bókinni Garðagróður eftir Ingólf
Davíðsson og Ingimar Óskarsson
(1949/1958) er fyrrnefnd nýjung
Guðmundar Bárðarsonar mikið
notuð svo næstum má segja að hún
sé gerð að almennri reglu, jafn-
gildri þeirri sem Stefán innleiddi
við afleiðslu tegundanafna. Þannig
heita tegundir af Kattablómi
(Nepeta) t.d. kisublóm, kettlingsblóm
og högnablóm. Af Chrysanthemum
(Prestafífli) eru tegundirnar friggj-
arbrá, njarðarbrá, nönnubrá, freyjubrá
o.fl. en þar má líta á -brá sem stofn-
nafn. Sömu tilhneigingar gætir í
ýmsum öðrum ritum sem þessir
höfundar, einkum Ingólfur, hafa
samið eða þýtt.
Ekki veit ég til að aðrir grasa-
fræðingar hafi tekið upp þessa
reglu, og þeir sem síðan hafa fjallað
um garðplöntur hafa fremur reynt
að draga úr henni. í bók Ásgeirs
Svanbergssonar Tré og runnar á ís-
landi (1982) er reglum Stefáns að
mestu leyti fylgt og Hólmfríður
Sigurðardóttir reynir yfirleitt að
fylgja þeim í íslensku garðblómabók-
inni (1995), en undantekningar eru
margar enda kemst hún ekki hjá
því að nota nafngiftir þeirra Ingólfs
og Ingimars. Hólmfríður ritar ætt-
kvíslanöfnin í fleirtölu eins og
Bergþór.
í Stóru garðabókinni, sem kom út
um sama leyti (1996) undir ritstjóm
Ágústs H. Bjamasonar, var nafna-
reglum Stefáns fylgt þegar búin vom
til nýnefni á fjölmörgum kaktusum
og öðmm þykkblöðungum og leitast
við að samræma eldri nöfn garð-
plantna þessum reglum.
Matjurtir og stofublóm
Matjurtabækur eiga sér langa sögu
hér á landi og komu þær fyrstu út
seint á 18. öld, þ.e. íslendsk Urtagarðs
Bok, Ólafs Ólafssonar (Olaviusar),
1770 og Lachanologia Eggerts Ólafs-
sonar sem Bjöm Halldórsson mágur
hans gaf út að honum látnum 1774. í
þessum ritum vom mótuð flest ís-
lensk heiti á matjurtum sem enn em
notuð og vom þau ýmist alþjóðleg
eða íslenskuð fræðinöfn. Sem dæmi
má nefna kartöflur sem Olavius nefn-
ir „Jarðeple, Potetur" en getur líka
um erlend nöfn, svo sem „Tartufler",
sem er ítalskt að uppmna og varð
síðan kartöflur á okkar máli. Þegar
Einar Helgason semur matjurtabók-
ina Hvannir og gefur út, 1926, em ís-
lenskar nafngiftir matjurta þegar
komnar í fastan farveg. Síðan hafa fá
nöfn bæst við á þeim vettvangi.
Fyrsta íslenska bókin um inni-
plöntur var kverið Rósir eftir Einar
Helgason sem út kom í Reykjavík
1916 og 2. útg. 1931. Þetta var
„Leiðarvísir um ræktun inni-
blóma" en þó er allmörgum ætt-
kvíslum og tegundum lýst. Þær em
flestar nefndar sínum latnesku
nöfnum en sum þeirra voru ís-
lenskuð, t.d. Fúksía fyrir Fuchsia,
Pelargónía fyrir Pelargonium.
Næst í röðinni var bókin Inni-
jurtir (1936), sem Óskar B. Vil-
hjálmsson tók saman. Þar er fjallað
um u.þ.b. 150 ættkvíslir erlendra
plantna og allmargar tegundir
nefndar sem hægt er að rækta í
stofum eða gróðurskálum. Um
nafngiftir segir höfundur á bls. 37:
„Nöfn öll eru á latínu (grísku
eða indversku) og hafa al-
þjóðagildi. Flestum jurtunum
fylgir auk þess íslenzkt nafn.
Venjulega er það fræðinafnið,
danska eða þýzka nafnið, sem
eru íslenzkuð. Nöfnin eru flest
ný og ber aðeins að taka sem
tillögur."
Þessi íslensku ættkvíslanöfn eru
oftast tví- eða þríliðuð og því ekki
hentug til að leiða af þeim tegunda-
nöfn, enda er það varla reynt.
Árið 1957 gaf Bókaforlag Odds
Björnssonar á Akureyri út bókina
Stofublóm eftir Ingólf Davíðsson. í
henni er getið um 170 plöntuætt-
kvísla, með latneskum og íslensk-
um nöfnum. I formála kemur fram
að „nöfn plantnanna eru að mestu
leyti þau sömu og í Rósum og Inni-
jurtum", en „mörgum tegundum
(einkum hinum nýrri) hafa verið
gefin íslenzk nöfn, ef þau voru ekki
til áður". Ekki verður séð að nein
regla sé í þessum nafngiftum og
tví- eða fleirkvæð nöfn eru allmörg,
svo sem börn Leu (Spironema
fragrans), gyðingurinn gangandi
(Tradescentia) og dísa í dalakofanum
(Disandra).
Árið 1964 kom út bókarkverið
Stofublótn í litum sem Ingimar Ósk-
arsson þýddi og staðfærði eftir
dönsku kveri. Síðan hefur fjöldi
slíkra bóka verið gefinn út hérlend-
is, flestar eða allar þýddar, og eru
fræðinöfnin oftast notuð sem aðal-
nöfn enda þótt íslenskra nafna sé
líka getið. Svo virðist sem íslensk
70