Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 90
Náttúrufræðingurinn
fyrir arfleifð sinni tekur þátt í slíkum
spellvirkjum. Sumar atvinnugreinar
auka um stund auðæfi sín. En ef þær
draga jafnframt úr ánægju fólks af að
ferðast um náttúru síns eigin lands og
rýra listrænt gildi hennar svo að htin
blæs hvorki skáldum né listmálurum
lengur anda í brjóst, eru þær eins og
stífla í slagæð þjóðarinnar. Þær deyfa
þjóðarvitund næstu kynslóða og
spilla jarðveginum þar sem ættjarðar-
ástin á að eiga sínar dýpstu rætur.
Vemdun sérstæðrar náttúm í sinni
upprunalegu fegurð er nauðsyn sem
á ekkert skylt við tilfinningasemi.
Eyðing náttúmnnar fyrir skjót-
fenginn ávinning vitnar um skamm-
sýni, siðleysi og skort á virðingu fyrir
henni.
Náttúra Þingvallasvæðisins er ein-
stæð. Vistkerfi lands og vatns tengjast
og mynda eina órofa heild. Tekist
hefur að sýna hve vel jarðfræði,
vatnsferill og lífríki vinna saman eða
m.ö.o. hvemig lífrænir og ólífrænir
þættir tengjast órofa böndum og
mynda sjálft vistkerfið. Nýjustu
vísindaaðferðum hefur verið beitt til
að fylgjast með rennsli vatnsins úr
Langjökli í heita vatnið í Henglinum.
Mælingar á aðstreymi vatns í Þing-
vallavatn og á vatnshag þess tengja
10. mynd. Tjarnarnálin er aðal búsvæði
silableikjunnar, sem er vinsælt bleikju-
afbrigði til veiði. Stofnstærð mældist 37
tonn. Sílableikjan beitir sér nær eingöngu
áfullorðin hornsíli til fæðu, en þau byggja
sér hreiður í tjarnarnálinni. Stofnstærð
þeirra mældist 50 tonn. Með vaxandi
niturmagni eykst einnig framleiðsla
jurtasvifs með þeim afleiðingum að það
dregur úr birtu í vatnsbolnum. Gróður-
belti vatnsins skortir þá Ijós til gróðurs og
færast upp á við. Búsvæði stlableikju og
hornstta rýrna og hverfa með tímanum.
Samanburður við rannsóknir Bjarna
Sæmundssonar frá 1895 sýna að dýpstu
tnörk tjarnarnálar hafa færst upp utn 7
m, úr 37 í 30 m dýpi eða utn 20% vegna
þverrandi birtu. Fjöltnargar erlendar
rannsóknir lýsa slíkri þróun. (Ljósmynd:
Karl Gunnarsson. Úr bókinni Þingvalla-
vatn. Undraheimur i rnótun).
hina ýmsu þætti saman. Fjölbreytni
lífríkisins í þessu hraunakögraða
vatni norður undir heimskautsbaug
er ævintýri sem hefur þróast á tíu
þúsund ára ferli þess.
íslenska þjóðin hefur ekki gert sér
nægilega grein fyrir uppruna Þing-
vallasvæðisins og sérstöðu náttúr-
unnar. Það er sagan sem hefur fram
til þessa varpað frægðarljóma á stað-
inn. Eftir rannsóknir og kynningar-
starfsemi í þrjá áratugi hefur nú verið
sýnt fram á að Þingvellir, Þingvalla-
vatn og vatnasviðið er ein heild og
einstæð náttúmperla sem verður að
halda óspilltri.
Þakkir
Mér er sönn ánægja að þakka öllum, sem unnu að Þingvallarannsóknum,
alls 50 manns. Með frábærri samvinnu tókst okkur að skapa heildarsýn á
Þingvallavatn og vatnasvið þess, sem á fáa sinn líka, ef nokkra. Okkur tókst
að tengja lífríki þessa hraunakögraða vatns frá þörungum í fisk við
ólífræna þætti umhverfisins, eins og efna-, eðlis- og jarðfræði og veður.
ÍTAREFNI
Helstu heimildir fyrir þá sem vilja kynna sér nánar rannsóknir á
Þingvallavatni, Mývatni og öðrum lágarktískum og lágalpínskum vötnum:
Arnþór Garðarsson og Árni Einarsson (ritstjórar) 1991. Náttúra Mývatns.
Hið íslenska náttúrufræðifélag, Reykjavík. 372 bls.
Goldman, C.R. 2000. Four decades of change in two subalpine lakes. Baldi
lecture. Soc. Int. Limnologiae. 27: 7-26.
Pétur M. Jónasson (ritstjóri) 1979. Ecology of eutrophic, subarctic Lake
Mývatn and the River Laxá. Oikos 32: 1-308.
Pétur M. Jónasson (ritstjóri) 1992. Ecology of oligotrophic, subarctic
Thingvallavatn. Oikos 64:1-439.
Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson (ritstjórar) 2002. Þingvallavatn.
Undraheimur í mótun. Mál og menning, Reykjavík. 303 bls.
PÓSTFANG HÖFUNDAR / AUTHOR’S ADDRESS
Pétur M. Jónasson
Freshwater-Biological Laboratory
University of Copenhagen
51 Helsingorgade 3400
DK 3400 Hillerod
Denmark
pmjonasson@bi.ku.dk
UM HÖFUNDINN
Pétur M. Jónasson (f. 1920) lauk magistersprófi frá
háskólanum í Kaupmannahöfn 1952 og var styrkþegi
Danska vísindaráðsins 1953-1957. Árið 1956 hóf hann
að kenna vatnalíffræði við Hafnarháskóla, lauk
doktorsprófi 1972 og var skipaður prófessor í
vatnalíffræði við Kaupmannahafnarháskóla 1977.
Pétur er félagi í ýmsum samtökum fræðimanna,
þ.á.m. vísindaakademíum Dana og Norðmanna og
Vísindafélagi íslendinga. Hann var um tíma formaður
Alþjóðafélags vatnalíffræðinga og Hins íslenska
fræðafélags í Kaupmannannahöfn. Á íslandi er Pétur kunnastur fyrir
rannsóknir sínar og samstarfsmanna sinna á lífríki Mývatns og
Þingvallavatns og hafa niðurstöður þeirra m.a. verið birtar á íslensku, nú
síðast í bókinni Þingvallavatn. Undraheimur í mótun, sem Mál og menning
eaf út 2002 í ritstjórn þeirra Péturs og Páls Hersteinssonar. Bókin hlaut
lslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002. Pétur M. Jónasson var sæmdur
heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla íslands árið 2001.
88