Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 60
Náttúrufræðingurinn
10. mynd. Mesti skaflinn á leið yfir Fimmvörðuháls. Þar sjást ekki rnerki um jökulskrið.
Mynd tekin 31. ágúst 2003. - The biggest firnfield on the track across Fimmvörðuháls.
There is no indication of glacier action. Ljósm./Photo: Oddur Sigurðsson.
Kortagerðarmönnum er mikill
vandi á höndum þegar teikna skal
útlínur smájökla, því að engan
veginn er augljóst á loftmyndum,
hvað þá gervihnattamyndum, hvað
telja skuli jökul og hvað fannir nema
eftir snjólítinn vetur og hlýtt sumar.
Ekki eru til útgefin kort af íslandi
þar sem þessum þætti eru gerð góð
skil og má segja að þau séu öll mark-
laus til að ákvarða flatarmál smájök-
la landsins.
Jöklar geyma í sér úrkomu vetrar
og skila henni að nokkru leyti í
sumarleysingu ásamt með úrkomu
líðandi stundar, sem rennur
nokkum veginn jafnharðan fram.
Jökulár eru jafnan mestar síðla
sumars því að þá er leysingin örust.
Jökulár greinast þess vegna ekki
aðeins á jökulgmgginu frá dragám
og lindám heldur einnig á því
hvemig rennslið dreifist á árstíðir.
Vegna þessara eiginleika skera jökul-
ár sig augljóslega úr, eru auð-
þekkjanlegar.
HVERNIG GÆTI
GLÁMUJÖKULL HAFA
LITIÐ UT?
Ljóst má vera af tilvist lautenanta-
vörðu á Sjónfríð að jökull hefur ekki
verið á hæstu kollum Glámu-
hálendisins. Jökullinn, hafi hann
verið til, hefur þá legið í lægð milli
hnjúkanna. Slíkan jökul má firtna til
dæmis á söðlinum milli Unadals í
Skagafirði og Skallárdals í Svarf-
aðardal (5. mynd). Heitir hann frá
fomu fari Unadalsjökull og líkt og
Gláma var hann talsvert notaður
52
fjallvegur. Þessi jökull er um 2 fer-
kílómetrar að stærð og snýr móti
austri og vestri án þess að honum sé
hlíft að ráði fyrir sól, sem er óven-
julegt. Á háskarðinu er kúfur á jök-
linum en ekki er hann spmnginn að
ráði. Greinilega sést á dökkri rönd
neðan jökulsins á 5. mynd að hann
hefur skriðið til á undirlaginu
meðan hann var sem stærstur og þá
kann flatarmálið að hafa verið allt að
helmingi meira en nú er.
Hafi Glámujökull verið af
svipaðri gerð og Unadalsjökull og
fáeinir ferkílómetrar að flatarmáli,
væri mjög ósennilegt að hann hefði
horfið frekar en fjöldi annarra
smájökla sem prýða hálendið milli
Eyjafjarðar og Skagafjarðar (9.
mynd).
FlMMVÖRÐUHÁLS
Menn hafa velt fyrir sér hvort fleiri
jöklar en sá sem talið var að væri á
Glámu hafi horfið í hlýindum 20.
aldar og hefur jafnvel orðið að
dómsmáli (Hæstaréttardómur nr.
514/1993). Sveinn Pálsson4" taldi
samfelldan jökul liggja yfir Fimm-
vörðuhálsi og kallaði hann Lágjökul.
Sjálfur kom hann ekki upp á hálsinn
en sagði bændur reka fé þar yfir á
Goðaland til beitar, enda sé jökullinn
þar mjóstur. Guðmundur Einars-
son lýsir landslagi á hálsinum
talsvert og verður tíðrætt um jökul
þar og jökulruðning sem sé ferða-
mönnum til trafala. Umhverfi
ferðamannaskálans lýsir hann svo:
„... jökulbreiður og kollar til austurs
og vesturs ..." og í norðurátt „... eru
jökulhálsar og ruðningar, rauðir
gígar og brúnir Goðalandsjökuls."
Um leiðina frá Skógum á Fimm-
vörðuháls hefur Guðmundur þessi
orð: „Þegar nálgast hálsinn, tekur
vegur að versna, og jafnframt hverfa
götuslóðar, því að við taka jökul-
urðir. Þama lá jökull yfir fram að
aldamótum og sjást þess greinilega
merki." Enn fremur segir: „Þegar
skálinn var byggður, var jökull mjög
genginn til baka á þessu svæði, en
það var jökli hulið fram yfir
aldamót, nema hvað hæstu fell og
Fimmvörðuháls stóðu þá upp úr
ísnum, einnig mun Fimmvörðusker
ekki hafa farið á kaf. Það er klappar-
sker í krikanum suðvestur af háls-
inum; á því em fimm vörður, sæmi-
lega hlaðnar ...
Áður hefur verið vörðuð leið yfir
hálsinn; það sást glögglega, þá er ís
leystí af svæðinu. Þá komu í ljós
vörðubrot í nærri samfelldri röð
nálægt jaðaröldu við Eyjafjallajökul.
Einnig komu fram rytjur af hesti og
kindabein heilleg, jámingahamar og
ýmislegt fleira.
Árið 1949 mældi ég hjamfönn, er
tengdi jöklana saman; hún mældist
680 metrar, - nú [1960] er hún nærri
horfin."
Helgi Björnsson rekur þessa
sögu að nokkru og tekur undir
niðurstöður Guðmundar þess efnis
að Fimmvörðuháls hafi staðið sem
jökulsker upp úr ísnum fram yfir
aldamót en jökullinn horfið á
hlýskeiðinu um miðja öldina.
Ef lesið er í þessar lýsingar má
bera brigður á að hér hafi verið um
raunvemlegan jökul að ræða heldur
hafi fönn hulið hálsinn. Flestir
58