Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 9

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 3 mikilvægt það er, að hafa vísindalegar niðurstöður máli sínu til stuðnings. Það er nú undir íslendingum sjálfum komið, hvernig til tekst með varðveizlu og nýtingu fiskimiðanna við Island. Það verður fylgst með því af öðrum þjóðum, livernig oss fer þetta úr hendi, og þær kröfur verða til vor gerðar, að hér verði vísindaleg sjónarmið ráðandi. Vér verðum að leggja vísindalegan grundvöll að fiskveið- um vorum og fiskverkun. Vér verðum að efla rannsóknir í haffræði og fiskifræði, og vér verðum líka að auka þær rannsóknir, sem lúta að hagnýtingu aflans. Fiskur, sem látinn er eyðileggjast, er betur óveiddur. Hér á íslandi j)arf að efla hvor tveggja, vísindalegar grundvallar- rannsóknir í náttúrufræði, bæði á landi og sjó, og vísindalegar rann- sóknir og tilraunir í þágu atvinnuveganna. Þetta er nú sem betur fer að verða íslendingum ljóst. Þeim er farið að skiljast, að þeir eru of stutt komnir á sviði raunvísinda. Það verður að sjálfsögðu ekki ætlast til Jress af íslendingum, að jDeir leggi nokkuð að ráði til grundvallarrannsókna í eðlisfræði, efnafræði eða líffræði. Slík verk- efni eru aðeins fyrir stórar og auðugar þjóðir. En aftur á móti ber íslendingum að annast sjálfir náttúrufræðilegar rannsóknir á sínu eigin landi, gróðri J)ess og dýralífi. Þarna er mikið verk óunnið og ])að })arf að vinnast sem fyrst. Það er undirstaða J)css að nátt- úruauðlindir íslands verði liagnýttar og verndaðar á réttan hátt. Ennþá hafa t. d. sáralitlar rannsóknir verið gerðar á lægri jurtum og lægri dýrum á íslandi og í hafinu umhverfis ísland. Að þessu leyti þekkjum vér ekki ennþá vort eigið land og landhelgi. Svo að lesendur Náttúrufræðingsins geti áttað sig á því, hversu íslenzka fiskveiðilögsagan, öðru nafni íslenzka landhelgin, er stór, birtist hér uppdráttur af íslandi ásamt landgrunninu. Á uppdrætt- inum eru sýndir gTunnlínupunktarnir ásamt grunnlínunni, enn- fremur landhelgislínan, sem er 12 mílum utar, og yzt 200 metra dýptarlínan, sem þó gengur sumstaðar inn fyrir báðar hinar lín- urnar. Hafflöturinn innan landhelgislínunnar er að flatarmáli um 75 þúsund ferkílómetrar, en flatarmál íslands ofan sjávarmáls er 103 þúsund ferkílómetrar.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.