Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 24
18
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
4. myncl. Suðausturbrún Leggjabrjóts við Fróðárdal. Greina má í brekkunni
yfir 10 strandlínur fornra jökullóna. Skriðufell í baksýn. — Ljósm. G. K.
Fig. -/. The 200 mtr. high eilge of the hivn of Leggjabrjótur, luhich was ponded
up againsl an ice-margin, now shoiving more than ten shore-lines due to ice-
marginal lakes.
ág. 1959), en það liggur 419 m yíir sjó, og skal tilgreina fáeinar tölur,
þó að mælingin sé engan veginn nákvæm.
Efsta línan, 553 m y. s. (134 m y. Hvítárvatn), er svo stutt og
óglögg, að varla er fullt mark á takandi. En efsta einhlíta strand-
línan er í 532 m hæð y. s., og þar fyrir neðan eru margar vel glöggar
og nokkuð jafnt dreifðar um hlíðina. Einna gleggst þeirra er sú,
sem liggur í 486 m hæð y. s. (67 m y. Hvítárvatn).
En eftir er að geta um allra hæstu strandlínuna á Kili, því að
hana vantar á Leggjabrjót (af ástæðu, sem síðar verður tilgreind).
Sú liggur allstaðar í því sem næst 630 m hæð y. s. (210 m y. Hvítár-
vatn), að því er séð verður af hæðarlínum á Uppdr. ísl. og korti
Bandaríkjahers, sem ber báðum fyllilega saman um þetta. Þessi
strandlína kemur fram sem örmjó og afslepp sylla í suður- og aust-
urbrekku Rauðafells milli Fremra- og Innra-Fróðárdals. Því næst
vottar fyrir henni nær óslitinni í sama gervi á 2 km kafla í austur-