Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 33
N ÁT J' Ú RU F RÆ Ð I N G U RI N N
27
6. mynd. Fremst: Gjár og missignar hraunspildur uppi á suðurbrún Leggjabrjóts.
Fjær: Hvítárvatn (t. h.) og óscyrar Fúlukvíslar, Hvítárnes (t. v.). Fjærst: Blá-
fell, með smájökli í skál gegnt norðri. — Ljósm. G. K.
Fig. 6. Foreground: Edge of Ihe Leggjabrjólur lava, cracked und lilted, due lo
underlying ice melting after solidificalion of the lava. Middle: Lake Hvitúr-
vatn and the delta of Ihe Fúlakvisl. Background: Bldfell with a small circjue
glacier facing north.
á nióti i'ylgir hún nákvæmlega hraunjaðrinum, með totum út úr
og vikum inn í. Það væri ótrúleg tilviljun um misgengissprungu,
sem stafaði ai höggun jarðskorpunnar.
Ofan við brúnina er kriikkt af gjám, og missignum smáspildum í
hrauninu (6. mynd). Þar er ein stór sigdæld, sporöskjulöguð, urn
1 km á lengd frá norðaustri til suðvesturs og 80—100 m djúp
(samkv. korti). Umiiveriis hana liggja bogadregnar misgengis-
sprungur, sums staðar fleiri en ein hlið við hlið, og stallur um
hverja. Sumar eru gínandi gjár.
En fyrir neðan hina háu og hlykkjóttu brún á austurmörkum
hraunsins vottar ekki fyrir neinum sprungum eða misgengi í hin-
um forna berggrunni, og er ekki ástæða til annars en ætla, að hann