Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 40
34
N Á T T Ú R U F RÆ ÐIN G U RIN N
jökullinn í Skandinavíu óðfluga. Eiginlegur ísaldarjiikull hélt
lengst velli í Norður-Svíþjóð, þar sem hann mun löngum hafa ver-
ið þykkastur (allt að 2500 m). Leifar hans þar stífluðu upp mörg
stór viitn austan vatnaskila Skandinavíuskagans. Sum þeirra vatna
höfðu afrennsli vestur um Kjöl til dala og fjarða í Noregi — rétt
eins og „Hvítárvatn hið forna“ til Blöndudals og Húnaflóa um
svipað leyti.
Hér á iandi finnast einnig merki um tímabundinn framgang
jökla í ísaldarlokin. Þau eru ruðningsgarðar, að vísu sundur slitnir,
en sums staðar í margfaldri röð, sem nýlega liefur verið rakin um
þvert Suðurlandsundirlendið frá Vatnsdalsf jalli lyrir norðan Fljóts-
hlíð til norðvesturs að rótum Efstadafsfjalls við Laugardal. Þessir
ruðningsgarðar hafa verið nefndir Búðaröðin, sá jökutl, sem að
þeim lá og ýtti þeim fram, Biíðajökullinn og það kuldaskeið, sem
þessi jökulframgangur vitnar um, Búðaskeiðið (allt saman kennt
við fossinn Búða í Þjórsá).
Ég hef fyrir alllöngu bent á líkur fyrir því, að Búðaskeiðið og
Salpausselkáskeiðið séu eitt og liið sama (Guðm. Kj. 1943), og þær
tíkur liafa styrkzt mjög síðan af rannsóknum mínum og aunarra
(Þorleifur Einarsson 1964). Getum við nú haft fyrir satt, að Búða-
jökullinn hafi liörfað frá Búðaröðinni fyrir um 10 þús. árum eftir
h. u. b. þúsund ára viðdvöl við hana.
Á Norðurlandi austanverðu hefur Sigurður Þórarinsson rakið ann-
að belti ruðningsgarða allt frá Skjálfandafljóti austur að Jökulsá á
Brú. Telur hann líkur til, að þessar jaðarmyndanir, Hólkotsröðin,
séu jafngamlar Salpausselká (Sig Þór. 1951), en geti þó verið eldri
(Sig. Þór. 1960).
Ekki aðeins frambrúnin, heldur einnig hliðarjaðar Búðajökids-
ins að norðvestan hefur nú verið rakinn á síðustu árum. Lega hans
er helzt mörkuð melhjöllum eftir uppstífluð vötn í krikum milli
brekku og jökuls, en kemur einnig fram af stefnu jökulráka
(Guðm. Kj. 1961). Þessi markalína fylgir suðausturhlíðum eftirtal-
inna fjalla: Efstadalsfjalls, Miðdalsfjalls, Bjarnarfells, Sandfells,
Sandvatnshlíðar og Bláfells. — En fyrir innan Bláfell taka við þær
minjar jökullóna, sem hér var getið að framan.
Hefur þá verið rakið belti af jaðarmyndunum Búðajökulsins
allt frá Vatnsdalsfjalli í Rangárvallasýslu inn að vatnaskilum á
Kili. En um framhald slíks beltis til norðurs eða austurs er flest á