Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 50
44 NÁT'I'Ú RU FRÆÐIN G U RI N N Október. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur: Sitt al' hverju úr Ameríkuferð. Nóvember. Ulfar Þórðarson, læknir: Um náttúruvernd frá sjónarhóli áhuga- manns. — Auk þess kvikmynd. Fræðslufeiðir Á sumrinu voru farnar fjórar fræðsluferðir, Jrrjár stuttar, sent tóku einn dag eða part úr degi, og ein löng, þriggja daga ferð. Sunnud. 26. mai. Jarðfræðiferð. Leiðbeinendur: Þorleifur Einarsson og Guð- mundur Kjartansson. Þátttakendur 60. Ekið var í tveimur bílum austur yfir Hcllisheiði í Olfus og síðan vestur um Þrengslaveg, skroppið úrleiðis til Þor- lákshafnar. Skoðaðir voru eftirtaldir staðir og fyrirbæri: Fimm þúsund ára gamall mór undir hrauni við Elliðaár; frjógreint jarðvegssnið við vegamót Suðurlands- og Vesturlandsbrautar; bólstraberg í Draugahlíð; upptök Kristni- tökuhraunsins á Hellisheiði og cndi þess, sem er Þurrárhraun í Ölfusi; fornir hnullungkambar á efstu sjávarmörkum hjá Þóroddsstöðum; Leitahraunið (og ujjptök Jress í þoku). Fleira var skoðað og vfðar staðnæmzt en hér var talið, en suntt fórst fyrir, sem ráðgert var, vegna dimmviðris og rigningar. Sunnud. 7. júli. Grasafræðiferð upp í Kollafjörð, en auk jjess var skoðuð laxeldistöðin þar undir leiðsögu Þórs Guðjónssonar veiðimálastjóra og starfs- manna stöðvarinnar. Síðan var lrugað að gróðri á ýmiss konar gróðurlendi í nágrenninu. Leiðbeinendur, auk veiðimálastjóra, voru Eyþór Einarsson og Ing- ólfur Davíðsson. Þátttakendur voru um 70 manns. Sunnud. 21. juli. Dýrafræðiferð á sjó með varðskijjinu „Maríu Júlíu". Leið- beinendur: fiskifræðingarnir Aðalsteinn Sigurðsson og fngvar Hallgrímsson. 35 þáttakendur. Þegar lagt skyldi af stað um morguninn, var stormur og rign- ing, og settust aftur margir af þeim, sem höfðu tryggt sér far. Kom til tals að hætta við ferðina. Varð það úr, að haldið var inn á Kollafjörð. Fengust þar fróðleg sýnishorn sjódýra í botngreij) og svifháf, og voru þau skoðuð á jjilfarinu. En botnvörpu varð ckki við komið sökum hvassviðris og kviku í sjó. Þcgar komið var að landi, liuðu þeir Aðalsteinn og Ingvar öllum hópnum með sér inn í rannsóknarstofur Fiskideildar og sýndu þátttakendum svifdýr o. fl. í smásjá. 16.—18. ágúst. Þriggja daga ferð um Kaldadal, sveitir Rorgarfjarðar og Uxa- hryggi til alhliða náttúruskoðunar. Lagt upp á föstudagsmorgun og komið aftur á sunnudagskvöld. Gist í tjöldum í Húsafellsskógi báðar næturnar. Ekið í tveimur stórum bílum frá Guðmundi Jónassyni. Fararstjóri var Guðmundur Kjartansson og leiðbeinandi (auk lians) Þorsteinn Þorsteinsson, líffræðingur, frá Húsafelli. Þátttakendur voru 70 (auk bílstjóranna). Góðviðri var alla daga ferðarinnar og ákjósanlegt tvo hina fyrstu: kyrrt, bjart og hlýtt. Á föstudag gekk allur hópurinn af Kaldadal ujjj) á Ok, naut þaöan stór- kostlegs útsýnis og skoðaði gfginn mikla, sem þar er nú ujjjj kominn undan jökulhettunni, sem til skamms tíma fal allan fjallskollinn. — Um kvöklið var gengið úr tjaldstað inn eftir Selgili að skoða landslag og jarðmyndanir (líparít- ganga, laugar o. fl.). Á laugardag var ekið fram hjá Kalmannstungu inn að Klifi í Hallmundar- Iirauni, gengið þaðan að Surtshelli og Stefánshelli og nokkuð unt báða hellana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.