Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 14
6 NÁTTÚRUFR. óx smátt og smátt, nú erum við orðnir 55, sem vinnum saman að því, að ráða gátur fuglaferðanna. Einungis einn þeirra hefi eg séð og talað við, allir hinir hafa sett sig í samband við mig bréfleiðis, og gerst sjálfboðaliðar við starfið. Það eina, sem tengir okkur saman, er málefnið. Hugur minn hvarflar nú ekki lengur einungis til íslenzka fuglaheimsins, heldur einnig til allra þeirra manna, sem hafa lagt skerf af mörkum, og eiga nú skilið þökk vísindanna og mína. Þegar eg hefi látið merkja fugla, hafa verið notaðir litlir hringir úr aluminíum eða eir, og þeir festir á fætur þeirra fugla, sem merkja skyldi. Á hverjum hring er heimilisfang mitt, en auk þess sérstök tala, sem táknar hver í röðinni fuglinn er af öllum merktum fuglum, og loks er þar stafur, sem táknar P.SKOVSAARD K ViBORŒ DANMARK. 9061 2. mynd. Merkihringur Skovíjaards, róttur út. merkjaflokk. í Danmörku höfum við merkt yfir 100000 tegund- ir, en á íslandi um 10000, og hafa meira en 300 þeirra verið endurveiddir, svo eg viti. Vitneskja sú, sem fengist hefir um ferðir íslenzku fuglanna, er engu síður undraverð en fornfræðin landsins frægu, smátt og smátt er að skapast samræn heild þekk- ingar, sem lyftir huliðsblæju frá hinum dularfullu ferðum fugl- anna. Nú erum við komnir svo langt, að við getum sett merki á landakortið, og sagt, að þangað hafi komið fugl frá íslandi, heið- lóa, spói, önd eða gæs, en við verðum að halda áfram, ennþá erum við aðeins við byrjun rannsóknanna. Það er mér gleðiefni, að Islendingar hafa nú sjálfir lagt af stað, og eru byrjaðir að safna upplýsingum um ferðir fuglanna, svo að við getum sem fyrst komist til þekkingar á hinum fjölþættu lifnaðarháttum þeirra. Þeir tveir aðiljar, sem nú hafa um hönd fuglamerk- ingar á íslandi, munu nú, hvor um sig, í göfugri samkeppni, reyna að gera sitt bezta, við stefnum í félagsskap að sameigin- legu marki, en þetta mark er að öðlast fullan skilning á ferðum íslenzku fuglanna, heimkynni þeirra og háttum allan ársins hring. í tímariti þessu hefir þegar birzt yfirlit yfir fuglamerk- ingar mínar á Islandi og var lítilsháttar minnst á árangur þeirra (Náttúrufræðnigurinn, II, bls. 73), en mánaðardagar ekl:i tekn- ir með. Sjálfur hefi eg ritað neðantaldar ritgerðir um starfið og árangur þess:

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.