Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 26
18
NÁTTÚRUFR.
háveturinn, því þar hefir 1 merktur fugl náðst í des., 1. í jan. og
2 i febrúar. Heiðlóan er mjög ofsótt í írlandi, því þar er fjöldi
manna (the plovernetters) sem leggja stund á lóuveiðar (og vepju-
veiðar) ekki sízt með netum.
Spóí (Numenius phaeopus islandicus Brehm). (Sjá kort II).
Það litla, sem uppvíst er orðið, bendir á að spóinn fari yfir
Bretland, Frakkland og Portúgal til Senegal, eða
jafnvel lengra, úr þvi verða vitanlega seinni
merkingar að skera. Um Bretland fer hann í
september, en um Frakkland i október, og kemmst
í þeim mánuði til Senegal. Á norðurferðinni á vor-
i4. mynd. spói. in virðist hann koma við í Bretlandi.
15. Mynd. Tjaldur.
Óðinshani (Phalaropus lobatus (L.)).
íslenzkir, merktir óðinshanar, hafa einungis endurveiðst ná-
lægt markstaðnum, ýmist haustið eftir að merkt var eða þá á
hreiðri, einu eða tveimur árum seinna.
Lóuþræll (Erolia alpina alpina (L)).
Lóuþrællinn fer auðsjáanlega til vest-
urstrandar Frakklands og’ Portúgals og
heldur tryggð við átthagana um varp-
timann (2. og 4. ára gamlir fuglar).
16. mynd. Lóuþrœll.