Náttúrufræðingurinn - 1934, Qupperneq 31
NÁTTÚRUFR.
23
en sumar klofnuðu i tvær greinar, og flaug önnur greinin i suð-
austur en hin í suðvestur. — Þetta er nú
aðeins skoðun, en skoðanir eiga lítið skilt
við tilraunastarfsemi eins og fuglamerk-
ingar, og þess vegna hirðum við ekki
meira um þær.
Flestar tegundir halda tryggð við
heimkynnið, hvort heldur sem vagga þeirra
hefir staðið þar, eða þær hafa sjálfar átt
þar hreiður, flestir hverfa fuglarnir aftur
til gamla landsins, gamla staðarins, þeg-
ar að þeir koma á vorin. Þó eru und-
antekningar frá þessari reglu, en þar
má nefna urtönd og gráönd, því eins og
að framan er sýnt fram á, slást marg-
ar þeirra í för með öndum frá Finn-
landi, Svíþjóð eða Rússlandi, þegar þær
leggja af stað norður á bóginn á vorin.
Þetta er mjög merkileg staðreynd sem
gefa verður náinn gaum.
27. mynd. Stelkur.
28. mynd. Hettumátur.
Um leið og ég slæ botni í ritgerð þessa, vil ég votta öllum
þeim bezta þakklæti mitt, sem lagt hafa skerf af mörkum til þess
að ná þeim árangri, sem að framan er greindur.
P. Skovgaard.