Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 32
24
NÁTTÚRUFÍt..
Fdgætur fugl — topplundi.
Topplundi (Aethia, cristatella [Pall.]), heitir fugl einn, skyld-
ur lunda, en nokkuð minni, og með nef svipað og á lunda,.
en auðþekktur frá honum á því, að hann hefir m.jóan, fram-
beygðan fjaðratopp upp úr enninu. Hann á heima í Beringshafi
og verpir á ströndum þess og í eyjum, sem að því liggja, en.
fer á veturna suður á bóginn, allt til Japan.
Árið 1916 fréttist það til KaupmannahafnaJr, að náðst
hefði í nánd við Færeyjar, um 1912, einkennilegur „lundi“, sem
væri þar uppsettur. Fengu fuglafræðingar við dýrasafníð í
Höfn hann til athugunar og reyndist það að vera topplundi og
síðar kom áreiðanleg upplýsing um það, að fuglinn hefði ekki
fengist við Færeyjar, heldur hefði hann verið skotinn frá fær-
eysku fiskiskipi, „Otaria“ í ágúst 1912, við ísland, ca. 45 sjóm.
NNA af Langanesi (líklega aðfram kominn af þreytu, eftir upp-
lýsingum að dæma).
Það þótti næsta merkilegt, að þessi fugl, sem ekki hefir sézt
fyr (né síðar) í Atlantshafi, skyldi vera kominn slíkan óraveg frá
heimkynnum sínum hinum megin á hnettinum, 6—8 þús. km. í
burtu og sýnir það bezt, hve langt fuglar geta flækst, jafnvel þeir,.
sem flugþungir eru. — Ekki er gott að vita, hvaða leið fugl þessi
hefir valið sér, né hve lengi hann hefir verið á leiðinni, en styzt
hefði verið fyrir hann að fara „beint“ yfir heimsskautið. Þó er
ekki líklegt að hann hefði getað komist klakklaust þá leiðina,
vegna óslitinna ísauðna og er þá næst að ætla, að hann hafi farið
með norður-ströndum Asíu, öfuga leið þá, sem Nordenskjöld
fór forðum á ,,Vega“, eða norðaustur-leiðina, eins og hún var áð-
ur nefnd. B. Sæm.
(eftir D. O. F T.).
Nýjustu landnemarnir.
I.
Karakúlf é.
Heimkynni þess eru í Vestur-Turkestan, inni í miðri Asíu.
Það er kennt við borg eða þorp, er Karakul nefnist, en þar
kynntust Evrópumenn fjárkyni þessu fyrst. Lambskinnin, sem
ræktun þessa fjár veltur að mestu á, eru þó þekktust undir