Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 35
NÁTTÚRUFR. 27 Líklega eru þetta ófríðustu innflytjendurnir, sem fluttir hafa verið viljandi inn. En þetta eru samt undursamleg dýr á margan hátt, og gera víða mjög mikið gagn með því að eyða skaðlegum skordýrum. Þau hafa sérstöðu í dýrarílcinu, því þau eru hvorki fugl né fiskur, hvorki spendýr né skriðdýr. Þau eru um allan heim, nema þar sem kaldast er, í mjög margbreytileg- um myndum og kunna ýmsar listir; þau ,,leika, kvaka, fljúga og synda“ eins og þar stendur. Það er máske fullmikið sagt, að þau fljúgi, en til eru þó tegundir þeirra, sem geta farið svifflug. Þróunarsaga þeirra er sérstaklega einkennileg. Hjá sumum tegundunum frjóvgast eggin inni í móðurinni eins og hjá spen- dýrunum, hjá öðrum frjóvgast þau eftir að þau eru gotin eins og hjá fiskunum, hjá enn öðrum frjóvgast þau í móðurlífi af móðurinni sjálfri, en þó með aðstoð karldýrsins. Unginn er um eitt skeið með langan hala eða sporð og andar með tálknum, en fullvaxið er dýrið ,,halaklippt“ ogandar með lungum (sjá mynd- ina með áðurnefndri grein Á. F.). Sumar tegundirnar lifa mest- megnis í vatni, aðrar á þurru landi, enn aðrar uppi í trjám o. s. frv. Þegar enga björg er að fá, þ. e. á veturna í norðlægum löndum, liggja þeir í dái eins og dauðir væru. ,,Allar tegundir froska, sem lifa í vatni, hafa svipaða lifn- aðarhætti. Á vorin og sumurin eru þeir fullir af lífi og fjöri, þeir eru þá með allskonar brek og gleðilæti, á haustin dofnar yfir þeim, unz þeir leggjast fyrir djúpt niðri í leðjunni í botn- frosnum eða uppþornuðum tjörnum, sofa þar sinn væra vetrar- eða þurrkatímasvefn, allt til þess, er hinir hlýju vindar vors- ins bræða ísskorpuna eða fyrsta regnskúrin bleytir upp leðju- lagið. Þá vakna þessir sjösofendur til nýs lífs. Því eins og vorið hér hjá oss klæðir grundina nýjum skrúða, svo færir regntími heitu landanna náttúrunni nýtt líf. Þegar hinn drepandi hiti þurrkatímans í Mið-Afríku hefir breytt blæju dauðans yfir landið, þegar grasið er skrælnað, trén hafa fellt laufskrúð sitt, fuglarnir flutt sig til björgulegri landssvæða og spendýr, skrið- dýr og froskar lagst í dá, þá eru bæði menn og dýr þau, sem neyðast til að lifa í þessu loftslagi, nærri örvílnun, svo hart leikur þessi árstími allt, sem lifir. En einn góðan veðurdag sjást dökk skýjaþykkni úti við sjóndeildarhringinn, þau fá vind í seglin og nú steypist hið stórfellda hitabeltisregn yfir skræln- aða jörðina. Þá er vorið komið í einni svipan. Tímunum saman steypist regnið úr skýjunum. í dældunum myndast lækir og ár og tjarnir og vötn, og vatnið helzt við, að minnsta kosti í hin-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.