Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 37
INÁTTÚRUFR. 29 Erlendis er þekkt náttúruundur, sem nefnt er ,,froskaregn“. Einn góðan veðurdag er alls staðar orðið krökt af froskum, þó enginn hafi sézt áður. Gátu menn ekki skilið það öðruvísi en svo, að þeim hefði rignt niður (sbr. það, er eg tók upp eftir Brehm hér að framan). En þetta getur líka orðið á þann hátt, að ef vorið hefir verið gott og skilyrði hagkvæm fyrir tímgun- ina, getur einn árgangur ungviðis komið í milljónatali samtímis úr frumheimkynninu, vatninu, á þurrt. Landnámssaga froskanna frá 1895 varð stutt. En væri ekki gaman að gera tilraun með landnám þeirra á ný? Ársæll Ámason. Nokkrar fleiri tegundir dýra hafa komið hingað til lands- ins, húsdýr (naut og sauðfé), alifuglar, kanínur o. fl. En þar sem þetta eru allskonar blendingsdýr þótti ekki ástæða til að geta þeirra sérstaklega. Meinleg prentvilla hefir slæðst inn í „Nýir landnemar“. Þar stendur á einum stað: I Færeyjum eru margir refir, í stað • 1 Færeyjum eru engir refir. Á. F. Nýtt meðal við holdsveiki? í merku brezku tímariti er sagt frá nýrri lækningar-aðferð við holdsveiki. Anilin-litar-efni, sem nefnist trypan-blámi, er sprautað sex sinnum inn undir húð sjúklingsins, og verður þá líkami hans allur helblár, nokkrum mínútum síðar. Blái litur- inn hverfur svo af sjúklingnum að sex vikum liðnum frá þessari læknisaðgerð, og er svo sagt, að þá sé holdsveikin læknuð til fulls. Fylgir það með þessari sögu, að menn hafi ástæðu til að gera sér vonir um að meðal þetta muni einnig geta komið að góðu gagni við berklaveiki. Reynist eitthvað hæft í þessari fregn, munu þetta verða talin mikil tíðindi og góð. Ekki er um það getið, hver hafi fund- jð meðal þetta og ekkert nánara skýrt frá þessu að þessu sinni. (Eftir „Discovery“, í des. 1933.) M. B.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.