Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 40
NÁTTÚRUPR. Um það bil sem ungarnir eru að verða fleygir, kemur gul- rauði liturinn á nefinu á þeim fyrst verulega glöggt fram, enda þótt oft megi sjá votta fyrir honum fyrr. En ungar heiðagæsir eru aldrei gulrauð- ar upp að munnvikum. Þær hafa aðeins ca. 1 cm. breitt, gulrautt litarbelti yfir um báða nefskoltana, aftan nef- naglarinnar. Kemur þessi lit- ur fyrr fram á efra skolti og er oft óskýr á neðra skolti í ungum kvenfuglum. Framan af æfi heiðagæsanna er því lítill litarmunur á nefinu á þeim og á nefi fullorðinna akurgæsa. Þetta breytist eft- ir því sem aldurinn færist yf- Höfuð af Heiðagœf ir heiðagæsirnar, — gulrauði (Eftir Alpheraky). liturinn færist þá upp eftir nefinu, meðfram skoltröndunum. Hvenær þetta verður, er ekki fullkunnugt ennþá, — með því að merkja sem flest af heiðagæs- um, má vænta þess, að vitneskja fáist um ýmislegt, sem enn er á huldu um uppvöxt þeirra og æfi. Líkur benda til þess, að heiða- gæsirnar fari að verpa, a. m. k. hér á landi, áður en þær hafa fengið á sig fullan lit að þessu leyti. Er þetta ekki rannsakað til fullnustu enn þá, og því ekki þorandi að fullyrða neitt um það að svo stöddu. Ungar hei&agæsanna, nýskriðnir úr eggi, eru tvílitir. Að of- an og aftanverðu, í hnakka, hálsi og á baki, eru þeir dökk- grænir að lit, en að neðanverðu er allur unginn ljós-grænn, með sterkri gulleitri slikju, framan frá kverk og aftur að stéli. Nær þessi gulgræni litur talsvert upp á hliðarnar á búknum; á háls- inum og höfðinu, í vöngunum upp undir augun. Ennfremur er dálítill gulleitur blettur í enninu ofanvert við nefrótina. Um augun er all-breið, dökkgræn rák, framan frá nefrótum og aft- ur á háls. Á vængjöðrunum er ljósgræn rönd, framan frá úln- Jið og upp að alnboga. Fæturnir eru mósvartir. Nefið einnig ■dökkt (svart), en nefnöglin nokkuru ljósari.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.