Náttúrufræðingurinn - 1934, Qupperneq 42
34
NÁTTÚRUPR.
og tæplega hálf-vaxnar út aftur, var því ekki til neins að mæla
vængjalengdina.
2) Heiðargæsarsteggur, skotinn í Hvannalindum 2. ágúst
1933. Lengd: 745 mm., nef:: ca. 48 mm., fótleggir: 76 mm.
3) Heiðagæs, skotin í Hvannalindum 2. ágúst 1933. Lengd:
710 mm., nef: 45 mm., fótleggir: 67 mm. Báðar þessar síðar-
töldu gæsir voru í ,,sárum“, og var því ekki að marka vængja-
lengdina, voru þær að kalla alveg flugvana, — gátu með herkju-
brögðum aðeins lyft sér frá jörðu.
4) Heiðagæsarungi (kvenfugl), ófleygur að kalla, skotinn
í Hvannalindum 2. ágúst 1933. Lengd: 600 mm., nef: 35 mm.,
fótleggir ca. 65 mm.
5) Heiðagæsarungi, sýnilega talsvert eldri, en no. 4, kven-
fugl, illa fleygur, skotinn í Hvannalindum 2. ágúst 1933. Lengd:
657 mm., nef: 35 mm., fótleggir: 66 mm.
6) Heiðagæsarungi, skotinn við Hrauná (Ódáðahraun) 8.
ágúst 1932 .Lengd: 638 mm., vængir: 310 mm., nef: 34 mm.,
fótleggir: 69 mm., stél: 151 mm. Kvenfugl, sæmilega vel fleygur.
7) Heiðagæsarungi*), nýskriðinn úr eggi, aðeins fárra kl.st.
gamall, tekinn í Syðra-Fljótsgili (sunnan Stóra-Flæðuhnúks), þ„
15. júní 1933. Lengd: 175 mm., vængir: 44 mm., culmen: 15 mm.„
tarsus: 24 mm., miðtá ~ kló: ca. 25 mm., klóin: 6 mm. Þyngd: ca.
78,125 grömm. (Maginn tómur, en fáeinir elftingarsprotar í munni
og vélinda.)
Skolttennur í grágæsum þessum hefi eg ekki talið, þar eð eg
er ekki sannfærður um að á því sé mikið að græða. „Tennurn-
ar“ virðast vera laklegt aðgreiningar-atriði, vegna þess að þeim
fjölgar mjög með aldrinum.
Egg. Heiðagæsirnar eiga mörg egg, sýnu fleiri en aðrar grá-
gæsir, og er ætlað að það stafi af því, að vanhöld eru mikil.
Ungadauði er mjög mikill, einkum fyrstu vikuna eftir að þeir
koma úr eggjunum. Veðráttan ræður þar miklu um, en stað-
hættir ýmsir á varpstöðvunum eiga oft sök á því, hversu ung-
ar týna tölunni á leiðinni úr hreiðrunum til vatns. Þá eru og
ótal óvinir, sem sitja fyrir þeim á þeirri leið, t. d. ýmsir rán-
*) Til samanburðar set eg hér mál af stóru grágæsarunga, á svipuðu
reki, en örlítið eldri, ca. 2—4 daga, í hæsta lagi.
A. anser, pull. Tekinn i Þingey þ. 22. júní 1933. Lengd: 225 mm., væng-
ur; 55 mm., culmen: 20 mm., tarsus: 37 mm., miðtá kló: 36 mm., klóin:
6 mm. Þyngd: ca. 125 grömm. (Maginn úttroðinn af elftingu, sömuleiðia
elfting í vélinda og munni).