Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 52
44 NÁTTCtRUFR'.- gerði dýrin ófrjó, sprautaði prófessorinn koffeín-upplausn inn í blóðið, og hafði það sömu áhrif eins og ef drukkið var sterkt. kaffi. Á hinn bóginn reyndist kaffi, sem ekkert var í af koffeíni, algerlega skaðlaust. Með því að gefa dýrunum lítið af kaffi, var hægt að venja þau við eitrið, einkum karldýrin. Aldrei var þeim gefið meira í einu en það, þegar verið var að reyna áhrif eitursins á kyn- kirtlana, að engum öðrum líffærum líkamans væri hætta búin. Það kom í ljós, að koffeín er eitur, sem skaðar kyn-kirtlana, fyrr en nokkur önnur líffæri. Væru dýrin látin neyta mikils af því,. rejmdist það einnig skaðlegt nýrunum, hjartanu, lifrinni og þörmunum, en allra fyrst urðu kyn-kirtlarnir fyrir áhrifum þess.. Eigi verður fullyrt um gildi þessara tilrauna, þegar um manninn er að ræða, meðal annars vegna þess, að maðurinn er miklu sterkari gegn eitrinu en kanínur. Þó telur próf. Stieve, að komið geti til mála, að koffeín hafi einnig deyfandi áhrif á kyn,- kirtla mannslíkamans. Á. F.. Hið »þunga vatn«. Vatnið er eitthvert almennasta og um leið eítthvert þýð- ingarmesta efnasamband á jörðu vorri. Meginhluti dýra- og; plöntulíkamans er vatn, 65 % — sextíu og fimm hundruðustu hlutar — af líkama mannsins er vatn. Fram á allra síðustu tíma. hafa leikmenn og lærðir trúað því og treyst, að vatn væri alltaf vatn, það er að segja óbreytanlegt að eðli og efnasamsetningu- Einmitt þess vegna hefir vatnið verið notað til þess að byggja á ýmsar einingar, sem notaðar eru daglega við ýmsar mælingar. Þannig hefir það verið nefnt 0 stiga hiti, þegar hreint vatn fraus, en 100 stiga hiti (Celsíus), þegar hreint vatn sauð. Ein hitaeining hefir það hitamagn verið kallað, sem fór tl þess að hita einn tenings-sentimetra af hreinu vatni um eitt stig (16.5— 17.5 ° C.), og loks er eðlisþungi allra hluta miðaður við vatn (4 ° C. heitt). Allt þetta hefir vitanlega byggst á því, að vatnið væri alltaf það sama við sama hitastig. Að samsetningu er vatnið mjög einfalt (H20), það er gert. úr tveimur atómum af vetni (H) og einu atómi af súrefni (0).. Þegar gengið var út frá því, að vetnið hefði atómþungann 1

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.