Náttúrufræðingurinn - 1955, Qupperneq 20
14
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
23. Smyrill (Falco columbar-
ius). Sést helzt frá okt.—fehr., sjald-
an í sept., marz og apríl. Alltaf stak-
ir fuglar.
24. Rjúpa (Lagopus rnuíus).
Hinn 12. apríl 1951 sást alhvítur
karri á Valhúsahæð.
25. Tjaldur (Haematopus ost-
ralegus). Algengur í fjörum allt ár-
ið, á vorin og sumrin einnig á tún-
um. Mest er um hann á veturna,
þá oft 100—200. Auk varpfuglanna
dveljast nokkrir geldfuglar á nesinu
á sumrin. Tjaldurinn verpur í Suð-
urnesi og á gröndunum (3—4 pör),
oftast rétt ofan við sjávarmál, bæði
í sandi og fíngerðri möl. Einstaka
sinnum verpur hann líka í malar-
blettum í móum, nokkuð frá sjó.
Hreiðrið er aðeins dæld, og liggja
eggin á nakinni jörðinni, án nokkurs
undirlags. 1 13 hreiðrum athuguð-
um var eggjafjöldinn þessi: I einu
hreiðri voru 4 egg, í 8 voru 3 og í
4 voru 2 egg. Fyrstu hreiðrin, sem fullorpið er í, finnast um 10. maí,
en allt til 5. júní finnast hreiður með óunguðum eggjum. Ef hætta
steðjar að, er það ekki óalgengt, að ófleygir ungar syndi út á sjó og
jafnvel kafi. Fullorðnir fuglar setjast einnig oft á sjóinn og barma
sér, þegar komið er í námunda við ung-
ana í fjörunni. Hinn 10. maí 1952 fannst
tjaldshreiður á Bakkagranda með þremur
nýorpnum eggjum. Þessum eggjum var
rænt. Tíu dögum síðar fannst annað
hreiðurs á sama stað, einnig með þremur
nýorpnum eggjum, og var þeim líka rænt.
En tíu dögum síðar (1. júni) fannst þar
enn hreiður með þremur nýorpnum eggj-
um. Þessum eggjum fékk hann loks að
unga út.
Valur.
Smyrill.