Náttúrufræðingurinn - 1955, Side 54
46
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
þar spjótsendar frá þvi um 500 e. Kr., en þá mun land þetta síðast
hafa verið frostlaust.
Isbráðin gæti verkað gegn áhrifum Golfstraumsins, sem mildar svo
mjög loftslag Bretlandseyja. Sitthvað er vissulega á seiði. Norðlægir
fiskar, eins og ýsan, leita nú suður að Cornwall og sardínur úr suð-
lægum höfum vaða í Norðursjó. Ekki er hægt að kenna kjarnorku-
fræðingum um þessi fyrirbrigði. En hvað sem um ísbráðina má segja,
hefur veðurfarið verið svo óvenjulegt á árinu 1954, að grunur hlýt-
ur að leika á því, að einhverra áhrifa gæti frá truflunum „af jarð-
lægum uppruna".
Ritchie Calder.
Maðurinn og hafið
Blóð mannsins og sjór hafsins eru grunsamlega áþekk að efnainni-
haldi. Þetta er ekki nýtt af nálinni, enda má rekja þær skoðanir til
náttúrufílósófa átjándu og nítjándu aldar, að sjórinn sé nokkurs kon-
ar frumvökvi, sem lífið hafi kviknað í. Þegar lagardýr lögðu land
undir fót, fluttu þau með sér, samkvæmt þessari kenningu, þennan
frumvökva í æðum sér, sem vér höfum síðan fengið að erfðum.
Mannsblóðið er að vísu seltuminna en sjórinn, en sjórinn var einnig
seltuminni, er þetta átti að hafa gerzt, fyrir 500 milljónum ára, því
að stöðugt leysast efnin upp og berast til sjávar. Og þó er furðanlegt
samræmi í efnainnihaldi blóðs og sjávar. Eftir handbókum má setja
saman eftirfarandi töflu, sem sýnir samanburð á jón-innihaldi sjáv-
ar og blóðs:
Efni eða efnasamband Sjór Blóð
g í kg g í kg
Natríum Na+ ......... 10.75 3.00
Kalíum K+ ........... 0.39 0.20
Kalsíum Ca++ ........ 0.42 0.10
Magníum Mg++ .... 1.29 0.03
Klór C1— ............ 19.34 3.55
Súlfat S04........... 2.70 0.02
Fosfat HP04—..... 0.00018 0.10
Bíkarbónat HC03— . . . 0.14 1.60
Samanburðurinn sýnir, að mannsblóð inniheldur miklu meira bí-