Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 4
1995 - Náttúruverndarár Evrópu í leiðara síðasta heftis Náttúrufræðingsins gat ritstjóri þess að um 1970 hefðu raddir um að mannkynið væri á hættulegri braut í umgengni sinni við náttúruna gerst háværari en verið hafði frá stríðslokum. Á þessum árum var Evrópuráðið að stíga sín fyrstu skref og nýbúið að stofna sérstaka upplýsingamiðstöð á sviði umhverfís- og náttúruvemdarmála (Centre Naturopa). Hlutverk hennar er að miðla upplýsingum um umhverfísmál, náttúmna og vemdun hennar, milli aðildarlandanna. Árið 1970 stóð Evrópuráðið fyrir sínu fyrsta kynningarátaki á sviði umhverfís- og náttúruvemdarmála undir nafninu Náttúmvemdarár Evrópu 1970. Megin- tilgangurinn var, eins og Eyþór Einarsson greindi frá í Árbók Ferðafélags Islands 1970 „...að glæða skilning fólks á þeirri staðreynd, að maðurinn sjálfur, þrátt fyrir allan sinn mikilleik og tæknimátt, er aðeins hluti af náttúrunni á hverjum stað...“. Umræðan um hnignun um- hverfisins í Evrópu, mengunina, hnignun skóga, fækkun dýra, útrýmingu tegunda og sívaxandi úrgang, náði loksins út fýrir hóp „sérviturra náttúmvemdarsinna“ til stjóm- málamanna og inn á vettvang alheims- stjómmála. Á þessum ámm var talið að auk þess að draga úr verstu menguninni myndi nægja að taka frá landsvæði sem þjóðgarða, friðlönd eða náttúmvætti til þess að vemda og viðhalda tegundum plantna og dýra og að þar fyrir utan mættum við nánast haga okkur að vild. I tilefni þess að nú em 25 ár liðin frá fyrsta kynningarátakinu á sviði náttúm- vemdar ákvað Evrópuráðið að standa á ný fyrir Náttúmvemdarári Evrópu 1995. Til- gangurinn er sem fyrr að opna augu fólks fyrir því að við þurfum að vemda um- hverfíð og náttúr- una. Megináhersl- an nú er hins vegar lögð á það að ekki er nægjanlegt að vemda náttúmna á ákveðnum friðlýst- um svæðum heldur þurfum við einnig að gera það utan þeirra, í okkar nán- asta umhverfi og nágrenni byggðar. Vemdun náttúrunnar byggist fyrst og fremst á skilningi og þekkingu á náttúr- unni, vistkerfum og ferlum náttúmnnar og því að fólk geri sér grein fyrir samhengi gjörða sinna og áhrifum þeirra á náttúruna. Gmndvöllur þess að almenningur öðlist skilning á þessu er að hann fái fræðslu á þessu sviði og að upplýsingar og niður- stöður rannsókna vísindamanna séu að- gengilegar almenningi á auðskiljanlegu formi. 1 tilefni Náttúruvemdarárs Evrópu 1995 hvet ég vísindamenn og aðra sem starfa á sviði umhverfismála að leggja á þessu ári sérstaka áherslu á að veita almenningi fræðslu um umhverfið, náttúruna og mikilvægi umhverfis- og náttúruvemdar. Höfum í huga að þekking leiðir til virðingar og virðing til vemdunar. Hyggjum að framtíðinni - hlúum að náttúrunni. Sigurður Á. Þráinsson Höfundur er deildarstjóri Náttúrufræði- og vís- indadeildar í umhverfisráðuneytinu. Hann er fulltrúi Islands í undirbúningsnefnd Evrópu- ráðsins fyrir Náttúruvemdarár Evrópu 1995 og í stjórnarnefnd náttúruvemdamefndar ársins. 166

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.