Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 28
5. mynd. Risaostra ('Crassostrea gigas). Ljósm.
Sigurgeir Sigurjónsson.
6. mynd. Meyjarostra (Crassostrea virginica/ Ljósm.
Sigurgeir Sigurjónsson.
framleiðslunnar (1. tafla). Þeir
rækta tvær kræklingstegundir,
Perna viridis og Mytilus edulis
(4. mynd).
Ostrur eru sá skelfiskur sem
ræktaður hefur verið hvað
lengst í heiminum og kemur
næst á eftir kræklingi að magni
til. Náttúruleg útbreiðsla ostru
var mikil íyrr á tímum en sjúk-
dómsfaraldrar hafa víða útrýmt
henni.
Eins og fram kemur í 2. töflu
er mest ræktað af risaostru,
Crassostrea gigas (5. mynd) og
eru það Japanir og Kóreubúar
sem rækta um það bil helming
heimsframleiðslunnar. Því næst
kemur meyjarostra, Crassostrea
virginica (6. mynd ) og þá
ostra, Ostrea edulis (7. mynd).
Af samlokum er minnst
ræktað af hörpudisktegundum
en mest veitt.
Árið 1991 nam framleiðsla
(ræktun og veiðar) hörpudisk-
tegunda 815.000 tonnum, eða
26% af heimsframleiðslu skel-
fisks. Eins og sjá má af 3. töflu
rækta og veiða Japanir 45% af
heimsframleiðslunni, aðallega
japansdisk, Patinopecten yesso-
ensis. Veiðar Japana hófust
fyrir um 300 árum en ræktunin
2. tafla. Framleiðsla á ostru í eldi eftir löndum árið 1991 (FAO 1993).
Land Framleiðsla (%) Tegund Ræktunaraðferð
Japan 24 Crassostrea gigas Línu- og flekarækt
Kórea 23 Crassostrea gigas Línu- og flekarækt
Frakkland 15 Crassostrea gigas Ostrea edulis Línu- og flekarækt Línu- og flekarækt
Bandaríkin 15 Crassostrea virginica Crassostrea gigas Veiðar og botnrækt Botnrækt
Kína 8 Crassostrea plicatula Crassostrea gigas Stólpa- og botnrækt
190