Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 11
slóðum kjaftagelgnanna. í mögum þeirra tiltölulega fáu físka af lúsíferaætt sem greinst hafa með fæðu hefur mest borið á smokkfiskum og ýmsum tegundum djúp- sjávarfíska, auk smágerðra krabbadýra. Eins og gengur í náttúrunni snýst lifíð hjá kjaftagelgjunum bæði um það að éta og að forðast að vera étinn. Kjaftagelgj- urnar eru sjaldgæfar og lifa við þannig aðstæður að erfítt er að fínna þær. Á hinn bóginn eru kjaftagelgjurnar hægfara og því ættu rándýr ekki að þurfa að eyða miklu púðri í að eltast við þær. En þar með er ekki öll sagan sögð. Kjaftagelgjumar hafa sitthvað til að bera sem gerir þær ólystugar. Þannig er t.d. húð lúsífersins, sem er hreisturlaus eins og húð annarra kjaftagelgna, þakin beittum beinvörtum sem fiskurinn getur þrýst út og dregið inn (5. mynd). Beinvörtumar em margar, allt að 150 talsins á fullvöxnum físki, og þær standa allt að 1 cm út úr roðinu. Talið er að beinvörturnar komi einkum að notum sem vöm gegn kolkröbbum og smokkfískum, °g byggist það á því að sogskálamar á gripörmum lindýranna festast verr við fískinn vegna beinvartnanna. I fljótu bragði mætti búast við að kjaftagelgjur hefðu stór augu svo að þær sæju betur í nær simyrkvuðu umhverfí sínu, en svo er ekki. Kjaftagelgjumar hafa hlutfallslega lítil augu, en almennt gætir þeirrar tilhneigingar hjá fískum að augun eru því minni sem búsvæði físksins stend- ur dýpra. Þegar betur er að gáð þurfa aug- un heldur ekkert að vera stór. Eina birtan sem eitthvað kveður að í umhverfinu er lífljóminn og til að nema slíka birtu nægir lítið en næmt auga. í öllu falli hefúr nátt- úran búið svo um hnútana að augu kjaftagelgna em hlutfallslega lítil, eða um 2% af heildarlengd fískanna. Hjá þorsk- um, sem lifa tiltölulega ofarlega í sjónum, em augun jafnan um 4% af heildarlengd fískanna. Ef til vill hefúr orkuávinningur- inn af því að hafa lítil augu fremur en stór orðið sterkari í náttúrvalinu hjá kjafta- gelgjunum, en efnaskiptahraði og þar með orkuþörf er mjög mikil í augum rniðað við aðra vefí. 5. mynd. Beinvörtur á lúsífer. Ljósm. Guðmundur Ingólfsson. ■ VAN DAMÁLIÐ AÐ SÖKKVA EKKI Fiskar þurfa náttúrulega að glíma við þyngdaraflið eins og aðrar lífverur. Vanda- mál físka sem halda sig íjarri botni er tvíþætt; að sökkva hvorki né fljóta stjóm- laust. Málið snýst því um að viðhalda hlutlausu floti. Þeir fískar sem ferðast að einhverju marki upp og niður i vatns- bolnum, en það gera flestar tegundir, hafa loftfylltan sundmaga í þessum tilgangi. Til að viðhalda hlutleysi í floti þarf rúmmál sundmagans að haldast óbreytt. Þegar fiskur syndir niður á við er lofti dælt inn í sundmagann til að vega upp á móti minnk- un í rúmmáli vegna aukins vatnsþrýstings, þvíannars sykki fiskurinn hraðar en hann kærði sig um. Dæmið snýst við þegar fískurinn syndir upp. Loftskiptin eiga sér stað á milli sundmaga annars vegar og blóðrásar eða meltingargangs hins vegar. Kjaftagelgjumar hafa engan sundmaga og því hafa þróast með þeim aðrar lausnir sem koma í veg fyrir að þær sökkvi. Veigamest er létting í byggingu beina og vöðva, en beinefnið er mjög þétt í sér og eðlisþungt (u.þ.b. 2,0) miðað við sjóinn (u.þ.b. 1,0). í samræmi við þetta er beina- bygging kjaftagelgnanna rýr, t.d. vantar 173
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.