Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 23
segir að urðir í Loðmundarfirði líkist þeim
í útliti en að í Loðmundarfírði sé um frost-
rænar urðir að ræða.
Tómas Tryggvason ritaði árið 1955
grein í Náttúrufræðinginn um Loðmundar-
skriður í Loðmundarfirði. Þær hafa frá
alda öðli verið taldar til orðnar við berg-
hlaup er hljóp yfir bæ Loðmundar
skömmu eftir brottför hans af bænum. í
grein Tómasar kemur fram að Þorvaldur
Thoroddsen hafi farið um Loðmundarfjörð
1894 og talið útilokað að Loðmundar-
skriður væru eftir skriðuhlaup og líklegast
að þær væru eitthvert sérkennilegt afbrigði
af líparíthrauni. Tómas er ekki hallur undir
berghlaupakenninguna og er sammála
Hawkes og Þorvaldi um að útilokað sé að
þarna geti verið um eitt skriðuhlaup að
ræða. Þó getur hann ekki almennilega gert
sér grein fyrir myndun Loðmundarskriða
og tekur þar undir með Þorvaldi: „Margt
mælir með, en sumt á móti.“ Olafur
Jónsson velkist þó ekki í vafa um að þama
sé um berghlaup að ræða þótt ýmsir fræði-
menn hafi reynt að gera úr þeim ráðgátu.
I bók sem nefnd er Islandshandbókin og
gefin var út af bókaforlaginu Om og
Örlygur 1989 ritaði ég myndatexta með
flestum Ijósmyndum. Þar gat ég á
nokkram stöðum urn framrótsbingi eftir
frera og smájökla sem rótað hefðu fram
urðarbingjum við lok ísaldar. Voru þar á
meðal myndir af „klassískustu“ berg-
hlaupum Ólafs Jónssonar. Varð það til
þess að Oddur Sigurðsson reit grein í Nátt-
úrufræðinginn 1990 þar sem hann réðst af
krafti gegn þessari villutrú og varði við-
teknar skoðanir.
í Árbók Ferðafélags íslands árið 1991
ritar Haukur Jóhannesson um jarðfræði
Tröllaskaga. Þar íjallar hann stuttlega um
urðarbingi í fjöllum sem viðteknar skoð-
anir teldu myndaða við berghlaup. Sjálfúr
kveðst hann þar telja að urðartungumar
rektu uppruna sinn til frostvirkni og væru
fomir urðarjöklar eða tengd hægfara fyrir-
bæri.
Mjög lítið hefur verið ritað um virka
urðarjökla á Islandi, miðað við hversu al-
gengar slíkar þelaurðir virðast vera í
háfjöllum. í jarðfræðibók Þorleifs Einars-
sonar (1968) er mjög stuttlega minnst á
virkar þelaurðir eða urðarjökla í háljöllum
Tröllaskaga. I ofangreindri Árbók Ferða-
félagsins ffá 1991 fjallar Helgi Bjömsson
um jökla á Tröllaskaga og víkur þar
stuttlega að virkum urðarjöklum. Þá hafa
fáeinir erlendir rannsóknaraðilar orðið til
að skrifa um einstaka urðarjökla, svo sem í
Esjuljöllum og í Nautaskál í Skjóldal í
Eyjafirði.
Ekki gefst að sinni rúm til að rekja
frekar eðli urðarjökla og skyldra hægfara
fyrirbæra eða bera jarðmyndanir af þeim
toga saman við klassísku íslensku berg-
hlaupin og verður það að bíða næstu
greinar.
■ heimildir
Ámi Hjartarson 1982. Berghlaup á íslandi.
Týli 12. 1-6.
Ámi Hjartarson 1990. Þá hljóp ofan fjallit allt.
Framhlaup í Skriðdal á landnámsöld. Nátt-
úmfræðingurinn 60. 81-91.
Ámi Hjartarson, Freysteinn Sigurðsson &
Þórólfur H. Hafstað 1981. Vatnabúskapur
Austurlands 111. Lokaskýrsla. Orkustofnun,
OS81006/VOD04.
Giardino, J.R. & S.G. Vick 1987. Geological
engineering aspects of Rock Glaciers. í
Rock glaciers (ritstj. J.R. Giardino, J.F.
Shroder Jr. & J.D. Vitek) Allen and Unwin,
Boston. Bls. 265-287.
Guðmundur Kjartansson 1960-1969. Jarð-
fræðikort 1:250.000, blöð 1, 2, 3, 5 og 6.
Menningarsjóður, Reykjavík.
Haukur Jóhannesson 1984. Skalf þá og nötraði
bærinn. Náttúrufræðingurinn 53. 1-4.
Haukur Jóhannesson 1991. Yfirlit um jarð-
fræði Tröllaskaga. Árbók Ferðafélags ís-
lands 1991. 39-56.
Hawkes, L. 1917. A remarkable Rock Stream
in East lceland. Geological Magazine, New
series, Decade VI, vol IV, no. 3.
Helgi Bjömsson 1991. Jöklar á Tröllaskaga.
Árbók Ferðafélags íslands 1991. Bls. 21-37.
Helgi Hallgrímsson 1980. Ritfregnir. Týli 10
(1), bls. 37-40.
Howe, E. 1909. Landslides in the San Juan
Mountains, Colorado. US Geol. Surv. Prof.
Paper 67. 31-40.
185