Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 37

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 37
4. mynd. Einu sinni voru DC3-flugvélar, eins og sú sem send var eftir bláfiskinum til Dzaoudzi, með algengustu flutninga- og farþegaflugvélum. Myndin sýnir Gunnfaxa, DC3- vél Flugfélags íslands, á Akureyrarflug\’elli en hún var notuð í innanlandsflugi til 1974. Þessi sama flugvél er nú einn síðasti fiulltrúi þessarar tegundar. Hún heitir nú Páll Sveinsson og er í eigu Landgræðslu ríkisins. Ljósm. Mats Wibe Lund, Myndasafn Flugleiða. ■ ÞRISTUR í FISKFLUTNINGUM Síðdegis á þriðja degi jóla var hringt í Smith og honum sagt að Douglas DC3- flugvél frá Suður-Afríkuher yrði send eftir honum. Hann var kominn eldsnemma næsta morgun út á herflugvöll og flugvélin fór á loft klukkan 7.10. Flugferðin til Dzaoudzi tók á annan sólarhring. Þar tók Hunt á móti þeim ásamt landstjóra Frakka á eyjunum. Fiskurinn reyndist vera bláfiskur, en Smith hafði undir niðri kviðið því að Hunt hefði ekki greint fiskinn rétt og þeir Malan yrðu sér báðir til skammar fyrir að senda herflugvél eftir einhverjum ósköp venjulegum sjófíski. Tveir heimamenn veiddu fiskinn við austurströnd Anjouaneyjar, sem er í miðj- um Kómoreyjaklasanum. Þeir fóru svo með hann á markað þar sem innfæddur kennari vakti athygli þeirra á auglýsing- unni. Skip Hunts lá við akkeri norðan við eyna og mennimir báru þennan þunga fisk þvert yfír hana, 40 kílómetra leið um ógreiðfært kjarri vaxið hálendi undir steikjandi hitabeltissól. Slíkur er máttur peninganna, skrifar Smith. Fiskurinn var farinn að skemmast í hitanum þegar Hunt tók við honum. Hann komst ekki strax yfír formalín og greip því til þess ráðs að salta bláfískinn. Hann spurði innfæddu veiði- mennina hvort þeir hefðu áður séð svona fisk. Þeir játtu því; hann væri að visu sjaldséður en fengist þó annað veifíð. Þeir sögðu að fískurinn, sem þeir kölluðu kombessa, væri nær óætur nýr en ágætur saltaður. Hreisturflögumar væru notaðar til að sverfa sprungnar reiðhjólaslöngur svo að bætur tylldu á þeim. Smith hafði skamma viðdvöl á Dzao- udzi, enda óttaðist hann hálft í hvoru að Frakkar sæju sig um hönd og kyrrsettu fískinn handa sínum eigin vísindamönn- 199

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.