Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 62
15. mynd. Hér má sjá Yngra-Stampahraun þar sem það
hefur runnið ofan í sigdæld skammt sunnan við Valahnúk. í
baksýn er Reykjanesviti á Bœjarfelli. - The Younger-
Stampar lava-flow south of Valahnúkur. In the background
the Reykjanes lighthouse points to the sky. Mynd/photo
Magnús A. Sigurgeirsson.
Ytri aðstæður
Sá munur sem er á byggingu gjóskugíg-
anna tveggja hefur að öllum líkindum
skapast af ólíkum ytri aðstæðum á gosstað.
Hefur sjávardýpi og fjarlægð frá ströndu
skipt meginmáli í því sambandi. Gosrás
Vatnsfellsgígsins var nálægt fjöruborði og
náði að einangrast frá sjó áður en gosi
lauk. Telja verður víst að sjór hafi átt mun
greiðari aðgang að gosrás Karlsgígsins þar
sem gígmiðja hans var íjær ströndu, á
meira dýpi. Aukin tjarlægð frá ströndu
hefur leitt til meiri þunga úthafsöldunnar
og sjávarstrauma. Eins og vel er þekkt er
mjög brimasamt við Reykjanes og sjávar-
straumar þar sterkir. Skarð kann að hafa
verið í vestanverðum gígrima Karls-
gígsins, þar sem rofkraftur öldunnar var
mestur, líkt því sem sjá mátti á fyrstu
mánuðum Surtseyjargossins. Hélst þá
jafnan skarð í suðvestanverðum gígrima
Surts, á móti ríkjandi vindátt. Þetta auð-
veldaði mjög aðstreymi sjávar að gosrás-
inni og stuðlaði að áframhaldandi sprengi-
virkni í stað hraunrennslis (Sigurður Þór-
arinsson 1968).
Aldursmunur
Eftir því sem næst verður
komist er aldursmunur
gíganna tveggja ekki mik-
ill. Engin merki eru um að
rofíst hafi að neinu ráði
ofan af Vatnsfellsgígnum
áður en Karlsgígurinn
lagðist yfír hann, þannig
að dregin er sú ályktun að
um samtímamyndanir sé
að ræða. Sé tekið mið af
veðurfari á Reykjanesi í
dag getur aldursmunur
gíganna varla verið meiri
en nokkrir mánuðir, í
mesta lagi. Atgangur rof-
aflanna, vinds og sjávar,
við ströndina er slíkur að
þau myndu engu eira þar
til lengdar, síst óhörðn-
uðum gjóskumyndunum.
Afstaða og tengsl gíg-
anna við Yngra-Stampa-
hraunið eru skýr við ströndina. Gigrimar
þeirra liggja inn undir hraunið og eru því
myndaðir fyrr. Lega gígmiðjanna í beinu
framhaldi af Yngri-Stampagígaröðinni
bendir til að sama gossprungan eigi hér
hlut að máli. Upp af ströndinni fylgir
hraunjaðar Yngra-Stampahraunsins útlín-
um Karlsgígsins sem bendir til að hraunið
hafí runnið upp að gígnum skömmu eftir
að hann hlóðst upp. Hníga öll rök að því að
um sé að ræða myndanir frá sömu elds-
umbrotum, Yngra-Stampagosinu.
■ hvenær brunnu
YNGRI-STAMPAR ?
Aldur Yngra-Stampagossins má nálgast
með þrennu móti:
1. Með 14C-aldursgreiningum.
2. Ut frá afstöðu til þekktra gjóskulaga.
3. Með samanburði við ritaðar heimildir.
I4C-aldursgreiningar
Aldursgreiningar á koluðum gróðurleifum
voru gerðar á tveimur sýnum úr sniði I
224