Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 65
17. mynd. Yfírlitsmynd af Reykjanesi. — Reykjanes viewed towards NE. Mynd/photo
Oddur Sigurðsson.
ströndinni um svipað leyti. Engin um-
merki hafa þó fundist um slíkt. Gosið hefst
í sjófylltri sigdæld sem legið hefur frá
ströndinni inn til landsins og hleðst þar
upp hverfjall, Vatnsfellsgigurinn. Loka-
þáttur gossins einkennist af strombólskri
gosvirkni með gjallmyndun. Gjóskan frá
gígnum berst nær algerlega til hafs.
Skömmu síðar, sennilega nokkrum mán-
uðum, hefst gos að nýju, um 500 m undan
núverandi ströndu, og hleðst þar upp
annað hverijall, Karlsgígurinn. í lok goss-
ins kemur upp hraun í austanverðum gíg-
rimanum og rennur inn til lands. Gjóskan
frá Karlsgígnum (R-7) berst að nokkru
leyti inn til landsins, yfir allt Reykjanes,
en að mestum hluta til hafs. I framhaldi af
gjóskugosunum við ströndina hefst hraun-
gos á landi og rennur hraun frá 4 km langri
gígaröð. Mest hraunrennsli hefiir verið til
beggja enda gígaraðarinnar þar sem
stærstu gígarnir eru. Hraunið rennur upp
að Karlsgígnum og markar hraunjaðarinn
við ströndina nú útlínur hans að hluta.
Nokkur landauki hefur orðið af hrauninu
en það rann í sjó fram á a.m.k. fjórum
stöðum. Á 16. mynd gefur að líta hugsýn
höfundur af Yngra-Stampagosinu (þ.e.
hraungosinu).
Reykjaneseldar
Þykktardreifmg Reykjaneslaga, annarra en
R-7, sem tengd eru Reykjaneseldum, þ.e.
R-8-R-10, bendir til að upptaka þeirra sé
að leita eigi fjarri landi. Áætluð upptök
miðaldalagsins (R-9) eru 2-3 kni suðvest-
an Reykjaness en upptök annarra laga
verða ekki staðsett með nákvæmni. Þau
munu þó að öllum líkindum vera á sjávar-
hluta Reykjaneskerfisins, innan 9 km
undan Reykjanesi. Vera má að í Reykja-
neseldum hafí gosvirknin teygst lengra til
suðvesturs, og að neðansjávargoshryggir
suðvestan Reykjaneskerfisins hafi verið
227