Fréttablaðið - 16.05.2009, Side 6
6 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
SKIPULAGSMÁL Síðastliðin tvö og
hálft ár ár hafa þau Þorsteinn Máni
Árnason og María Sigurjónsdótt-
ir unnið að smíði þrjátíu tonna
báts í atvinnuhúsnæði í Bráka-
rey í Borgarnesi. Deila þeirra við
Borgarbyggð, sem á húsnæðið,
hefur sett alla þá vinnu í uppnám.
Að óbreyttu eiga þau að fjarlægja
bátinn út úr húsinu 1. júní næst-
komandi. Þau óttast að ef bátur-
inn sé settur út núna, þegar húðin
á honum er óvarin, gæti það vald-
ið verulegu tjóni og jafnvel orðið
til þess að ekki fáist haffæraleyfi
á hann. Slíkt tjón mætti meta á
marga tugi milljóna.
Borgarbyggð hefur ákveðið að
láta rífa húsið svo hægt sé að hefj-
ast handa við framkvæmdir við
hreinsistöð sem er fyrir aftan það
en nýjar lagnir eiga að koma þar
sem húsið er nú. Þorsteinn Máni
og María segjast hafa margt út
á vinnubrögð Borgarbyggðar að
setja. „Í afstöðumynd sem fylgir
útboðsgögnunum með framkvæmd-
unum við skolpstöðina sést að rörið
fer framhjá húsinu og er í tveggja
og hálfs metra fjarlægð þar sem
það kemur næst,“ segir hann. „Ég
fæ ekki skilið af hverju þarf að rífa
1.380 fermetra hús af því að lögn
eiga að fara fram hjá því.“
Þau segjast einnig afar ósátt við
vinnubrögð Borgarbyggðar í þessu
máli. „Ég var hérna fyrir tilviljun
einn dag í október síðastliðnum
þegar ég varð vör við það að hing-
að var kominn hópur sem ætlaði
að rífa húsið en því var bjargað,“
segir María. Þau segjast ekki hafa
fengið uppsagnarbréf frá bænum
en hins vegar heyrt stjórnsýslu-
menn segja það í fjölmiðlum að þau
eigi að vera komin út 1. júní næst-
komandi. „Fyrir mér gildir slík
uppsögn ekki en það gerir aftur
á móti heiðursmannasamkomulag
sem ég gerði við Pál Brynjarsson
bæjarstjóra um að ég fengi alltaf
sex mánaða fyrirvara.“ Þess ber
að geta að þau leigðu húsið í geng-
um þriðja aðila svo leigusamning-
ur milli þeirra og Borgarbyggðar
var aldrei til.
„Svo er alltaf verið að tala um
nýsköpun og sprotafyrirtæki en
svo sést hvernig forgangsröðin er
í raun og veru hjá þessu sveitar-
félagi þegar skolphreinsilagnir
eru látnar verða til þess að ekki sé
hægt að smíða bát sem mundi síðan
koma sér vel fyrir samfélagið hér
og auka tekjur þess.“
Þorsteinn segist helst vilja fá
næði til að klára bátinn í þessu hús-
næði en það gæti þurft tvö ár.
jse@frettabladid.is
Á hrakhólum með bát
Bátasmiðir lenda á hrakhólum með ókláraðan bát ef ákvörðun Borgarbyggðar
gengur eftir. Sýnir forgangsröð sveitarfélagsins að koma bátasmíði fyrir kattar-
nef vegna skolphreinsistöðvar, segir Þorsteinn Máni bátasmiður.
MARÍA OG ÞORSTEINN MÁNI Í STAFNI Eldborg er í raun handverk bátasmiðanna en nú eru góð ráð dýr því báturinn á að vera
kominn út fyrir mánaðamótin. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
ATVINNUHÚSNÆÐIÐ Í BRÁKAREY Bæjar-
yfirvöld hyggjast rífa húsið.
Í tilefni af degi upplýsingatækninnar, UT-deginum, verður haldin ráðstefna
þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að nýta upplýsingatækni sem
verkfæri til að lækka kostnað og bæta þjónustu. Þar verður m.a. kynnt
aðferðafræði til að meta kostnað og ávinning af upplýsingatækni og sagt
frá verkefnum þar sem góður árangur hefur náðst.
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Hilton Nordica þriðjudaginn 19. maí nk.
Hægt er að skrá sig á vefnum www.sky.is eða með tölvupósti á sky@sky.is.
UPPLÝSINGATÆKNI
TIL ENDURREISNAR
Bætt þjónusta – lægri kostnaður
RÁÐSTEFNA UT-DAGSINS 19. MAÍ 2009
DAGSKRÁ
12:00 Skráning og afhending
ráðstefnugagna
Samlokuhlaðborð kl. 12:00-13:00
Spjall með sérfræðingum.
Umræðuefni eru eftirfarandi:
• Rafræn skilríki
• Opinn hugbúnaður
• Rafræn eyðublöð
• Fjarskiptamál og verkefni
fjarskiptasjóðs
• Rafrænir reikningar
• Umbætur í vefmálum
13:00 Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra
13:15 Upplýsingatækni til
endurreisnar – Netríkið Ísland
Guðbjörg Sigurðardóttir
13:35 Hvernig má minnka fyrirhöfn
borgara við að sækja opinbera
þjónustu – Arðsemi rafrænnar
stjórnsýslu og einfaldara
regluverks frá sjónarhóli
notenda
Jón Óskar Hallgrímsson
PO
RT
h
ön
nu
n
FORSÆTISRÁÐUNEYTI
Ráðstefnustjóri: Þórólfur Árnason, formaður
Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og forstjóri Skýrr
14:00 Aukin þjónusta með minni
tilkostnaði
Stefán Eiríksson og
Halldór Halldórsson
14:20 Kaffi og spjall með
sérfræðingum
14:40 Verkfærakista fyrir rafræna
stjórnsýslu – í boði
forsætisráðuneytis
Halla Björg Baldursdóttir
15:00 Opinber gögn: Falinn fjársjóður
Hjálmar Gíslason
15:20 Heilbrigðisþjónusta á Netinu
Kristján G. Guðmundsson
15:40 Facebook og samskipta-
samfélög
Maríanna Friðjónsdóttir
16:00 Lokaorð
Sigrún Jóhannesdóttir
16:10 Ráðstefnuslit
16:10-17:00 Spjall með
sérfræðingum
Forstöðumaður framkvæmdasviðs segir húsið rifið vegna skolplagna:
Segir velviljann illa launaðan
SKIPULAGSMÁL Jökull Helgason,
forstöðumaður framkvæmda-
sviðs Borgarbyggðar, segir að
verið sé að vinna að því að tengja
allar skolpleiðslur bæjarins í eina
skolphreinsistöð. Skolplagnir eigi
að fara um þar sem húsið er nú og
eins þurfi verktakar athafnasvæði
við framkvæmdirnar. Kannað hafi
verið hvort hægt væri að gera
þessar framkvæmdir og hlífa hús-
inu.
„Í svari frá Orkuveitu Reykja-
víkur kom í ljós að kostnaður
við það næmi tugum milljóna,“
segir Jökull. „Og sveitarfélagið
var ekki tilbúið að leggja í þann
kostnað.“ Hann segir enn fremur
að ef ekki yrði
hægt að hefjast
handa við fram-
kvæmdirnar í
júní yrði það til
þess að sveit-
arfélagið stæði
ekki við gerða
samninga og
yrði fyrir fjár-
hagslegu tjóni
af þeim sökum.
Tvívegis hefur þeim Þorsteini
Mána og Maríu verið sent bréf þar
sem leigusamningnum er sagt upp.
Í fyrra skiptið fengu þau þriggja
mánaða fyrirvara sem síðan var
lengdur um aðra þrjá mánuði.
„Reyndar er varla hægt að tala um
leigu því þau eru þarna fyrir vel-
vilja Borgarbyggðar og borga enga
leigu,“ segir hann. 26. febrúar síð-
astliðinn setti Jökull síðan sjálfur í
viður vist tveggja votta annað upp-
sagnarbréf í bréfalúgu og tekur
uppsögnin gildi 1. júní næstkom-
andi. Hann segir það af og frá að
menn hafi verið sendir til að rífa
húsið eins og María heldur fram.
Hann segir verkefni þeirra vera
afar merkilegt en hins vegar sé
það gremjulegt að þau, sem eru
þarna með bátinn fyrir velvilja
sveitarfélagsins, skuli ekki virða
það að nú þarf sveitarfélagið á því
að halda og mikið liggi við. - jse
JÖKULL HELGASON
LÖGREGLUMÁL Það er misskilningur
hjá Arinbirni Snorrasyni, formanni
Lögreglufélags Reykjavíkur, að
kostnaður muni hljótast af fyrir-
huguðum skipulagsbreytingum hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Þetta segir Stefán Eiríksson
lögreglustjóri.
Arinbjörn gagnrýndi í Frétta-
blaðinu í gær að ráðast ætti í breyt-
ingarnar, sem fela í sér að settar
verði á fót fimm sjálfstæðar lög-
reglustöðvar í borginni, á meðan
lögreglumönnum fækkar og ekki
er til fé til að halda þeim í vinnu.
Þá sagði hann að félagið hefði kall-
að eftir upplýsingum um kostnað-
inn en engin svör fengið.
„Breytingarnar eru ekki til þess
að auka kostnað heldur miklu frek-
ar til þess að draga úr kostnaði,“
segir Stefán, og vísar þar bæði
til umræddra skipulagsbreytinga
sem og fyrirhugaðra breytinga á
vaktakerfi lögreglumanna. „Við
erum ekki að setja af stað breyt-
ingar sem gera það að verkum að
við getum ekki ráðið fólk til starfa.
Það væri nú býsna skrítið.“
Stefán segir að í fyrstu muni
hljótast einhver smávægilegur
kostnaður af því að flytja menn á
milli staða. „En þetta eru fyrst og
fremst tilfærslur á fólki. Það eru
engar nýráðningar og það ekki
verið að kaupa neinn dýran búnað,
þannig að það liggur enginn meiri
háttar kostnaður í þessu. Það er
alveg á hreinu,“ segir lögreglu-
stjórinn. - sh
Lögreglustjóri segist ekki fórna lögreglumönnum fyrir skipulagsbreytingar:
Breytingarnar kosta ekkert
TILFÆRSLUR Stefán, til hægri, ásamt
Friðrik Smára Björgvinssyni, yfirmanni
rannsóknardeildar lögreglunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BÚRMA, AP Leiðtogar á Vestur-
löndum og mannréttindasamtök
fordæma meðferð herforingja-
stjórnarinnar í
Búrma á Aung
San Suu Kyi,
Nóbelsverð-
launahafa og
leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar
þar í landi.
Hún hefur
verið í stofu-
fangelsi árum
saman, en átti að losna fyrir mán-
aðamót. Herforingjastjórnin lagði
hins vegar í vikunni fram nýja
ákæru á hendur henni fyrir að
brjóta skilmála stofufangelsisins.
Norska Nóbelsverðlaunanefnd-
in gaf einnig út yfirlýsingu í gær,
þar sem þess er krafist að hún
verði án tafar látin laus. - gb
Stofufangi í Búrma:
Meðferð á Suu
Kyi fordæmd
AUNG SAN SUU KYI
Henti gleríláti í síðu manns
Ríflega tvítugur maður hefur verið
ákærður fyrir sérlega hættulega
líkamsárás, en honum er gefið að sök
að hafa kastað gleríláti í síðu manns
á fimmtugsaldri á tjaldstæðinu við
Þrastaskóg. Sá hlaut ílangan marblett
og eymsli í aftanverðum brjóstkassa,
að því er segir í ákæru, og krefst rúm-
lega hálfrar milljónar í bætur.
Ákærður fyrir að slá mann
Maður á þrítugsaldri hefur verið
ákærður fyrir líkamsárás í Þorlákshöfn
í júní í fyrra. Hann sló sér eldri mann
í andlitið. Sá krefst rúmlega 400
þúsund króna í bætur.
DÓMSTÓLAR
Lottóið sýnt seinna í kvöld
Dregið verður í Lottóinu í kvöld
klukkan 22.30 en ekki 18.45 eins og
vanalega. Frestunin er vegna beinnar
útsendingar Sjónvarpsins frá Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
LOTTÓ
Á að leggja á sykurskatt í for-
varnaskyni?
Já 37,4%
Nei 62,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á forseti Íslands að hitta Dalai
Lama þegar hann kemur hing-
að til lands?
Segðu þína skoðun á visir.is
SÓMALÍA, AP Íbúar í Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu, hafa varla
þorað út fyrir hússins dyr þrátt
fyrir að matarleysi sé farið að
hrjá marga.
Harðir bardagar hafa geisað í
borginni, þar sem stjórnarherinn
berst við herskáa múslima. Nú er
svo komið að stjórnin hefur ekki
nema helstu götur borgarinnar
á sínu valdi, ásamt nokkrum
stjórnarbyggingum.
Óttast er að uppreisnarmenn,
sem njóta liðsinnis útlendra Al
Kaída-liða, nái borginni á sitt
vald og fái þar með fullt frelsi til
að athafna sig í landinu.
- gb
Bardagar geisa í Sómalíu:
Íbúar að verða
matarlausir
KJÖRKASSINN