Fréttablaðið - 16.05.2009, Side 11
LAUGARDAGUR 16. maí 2009 11
MENNING Töluvert minna hefur
verið um tónleikahald hér á landi
síðustu ár ef marka má nýjustu
tölur Hagstofunnar.
Tónleikahald á Íslandi jókst
töluvert árið 2005 en þá voru
haldnir vel yfir 2.300 tónleikar.
Síðan þá hefur verið stöðug
fækkun og árið 2008 voru haldnir
færri en 2.000 tónleikar. Ljóst er
að kreppan hefur sett mark sitt á
tónlistina því tónleikahald dróst
um 26 prósent í desember 2008
miðað við desember árið á undan.
Hins vegar hefur tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands ekki
fækkað. Ágúst er vinsælasti mán-
uðurinn fyrir tónleikahald. - hds
Tónleikahald innanlands:
Færri tónleikar
nú en fyrri ár
NOREGUR Norðmaður hefur verið
í haldi hersins í Kongó í viku en
hann og félagi hans, sem hefur
verið á flótta undan lögreglu frá
því að Norðmaðurinn var hand-
tekinn, eru grunaðir um að hafa
myrt bílstjóra sinn. Mennirnir
neita sök, að sögn dagblaðsins
VG, og segja að ræningjar hafi
skotið bílstjórann.
Samkvæmt lögum má halda
mönnum í fangelsi í fimmtán
daga í Kongó án þess að ákæra
sé gefin út og birt mönnunum.
Ekki þarf heldur neinn sérstakan
gæsluvarðhaldsúrskurð. Sendi-
herra Noregs, Jon Vea, segir
bagalegt að ákæra hafi ekki verið
gefin út. Norsk yfirvöld reyna að
fá fangann fluttan í borgaralegt
fangelsi. - ghs
Norðmenn í Kongó:
Grunaðir um
morð á bílstjóra
TB
W
A
\R
EY
KJ
A
VÍ
K
\
SÍ
A
0
94
60
8
VERKFRÆÐI- OG NÁTTÚRUVÍSINDASVIÐ
Framtíðarhorfur í atvinnumálum hér á landi byggjast að verulegu
leyti á námi sem kennt er á Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ.
Umsóknarfrestur til 5. júní.
Skráning á www.verkognatt.hi.is
· Fjölbreytt, lifandi og skemmtilegt nám
· Kennarar í fremstu röð
· Náin tengsl við atvinnulífi ð
· Sterk rannsóknarhefð
· Alþjóðlegt samstarf
Raun- og náttúruvísindi:
Eðlisfræði
Efnafræði
Ferðamálafræði
Jarðeðlisfræði
Jarðfræði
Landfræði
Lífefnafræði
Líffræði
Stærðfræði
Verkfræði, tölvunarfræði:
Efnaverkfræði
Hugbúnaðarverkfræði
Iðnaðarverkfræði
Rafmagns- og tölvuverkfræði
Tölvunarfræði
Vélaverkfræði
Umhverfi s- og byggingar-
verkfræði
uppbyggingu og rekstri
Ætlar þú að taka virkan þátt í
íslensks þjóðfélags?
Þórunn J. Hafstein mun taka við af
Þorsteini Geirssyni sem ráðuneytis-
stjóri dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins til 1. september. Þorsteinn sótti
um leyfi vegna veikinda.
STJÓRNSÝSLA
Þórunn ráðuneytisstjóri
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Árum og
áratugum saman hafa þingmenn
Evrópusambandsins verið gagn-
rýndir fyrir bruðl á kostnað evr-
ópskra skattgreiðenda.
Þeir hafa keypt sér dýra flug-
miða, boðið vinum og ættingjum
út að borða á fínum veitingastöð-
um og jafnvel skráð maka sinn og
börn sem aðstoðarmenn á háum
launum.
Á þessu verður nú breyting.
Þegar nýtt þing kemur saman að
loknum kosningum í júní gengur í
gildi bann við slíku bruðli. Heildar-
launin verða lægri og strangar
reglur settar um útgjöld. - gb
Evrópuþingið herðir reglur:
Þingmönnum
bannað bruðlið
VIÐ ÞINGHÚSIÐ Í BRUSSEL Strangar
reglur verða settar um útgjöld.
NORDICPHOTOS/AFP
TÍMAMÓT Það voru kátir krakkar og
kennarar sem marseruðu í skrúð-
göngu með furðuhatta í gærmorg-
un í tilefni af fimmtíu ára afmæli
Vogaskóla. Fremst í flokki fór
fánaberi sem fékk aðstoð Skóla-
hljómsveitar Austurbæjar sem
meðal annars er skipuð nemend-
um Vogaskóla.
Fyrr um morguninn höfðu nem-
endur ásamt starfsfólki tekið sig
til og búið til hatta sem margir
hverjir voru ansi skrautlegir. Þar
var meðal annars hægt að líta á
prinsessu, álfa, pípu og gítarhatta
í mismunandi litum.
Skrúðgangan vakti mikla lukku
vegfarenda er gengið var um Voga-
hverfið veifandi íslenskum fánum
og fylgdust þó nokkrir foreldrar
með.
Félagarnir Kristþór Sæmunds-
son og Hlynur Víkingsson voru
meðal nemenda og höfðu þeir orð
á hversu mikill andi væri yfir
þessu öllu og hvað þetta væri frá-
bært og skemmtilegt. Eftir á var
svo grillað á skólalóðinni og allir
fengu pylsur í tilefni dagsins. Í dag
verður svo opið hús og hátíðardag-
skrá í sal skólans.
Nemendur og kennarar í Vogaskóla fagna fimmtíu ára afmæli skólans:
Marserað við Öxar við ána í Vogahverfi
STUÐ Á LANGHOLTSVEGINUM Hressir
nemendur og kennarar Vogaskóla fóru í
skrúðgöngu í tilefni af afmælinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA