Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 16
16 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 58 Velta: 202 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
253 +0,44% 698 +0,94%
MESTA HÆKKUN
ALFESCA 6,90%
CENTURY ALUMIN. 4,86%
ÖSSUR 1,46%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR 5,21%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,10 +6,90% ... Atlantic
Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 515,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,82 -5,21% ... Eik Banki 83,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 121,00 +1,26% ... Icelandair Group
4,50 +0,00% ... Marel Food Systems 59,40 +0,34% ... Össur 104,50
+1,46%
Skilanefnd Straums hefur selt
finnska bankann eQ fyrir 37 millj-
ónir evra, jafnvirði 6,3 milljarða
króna. Kaupandi er sænska eigna-
stýringarfyrirtækið Nordnet
Group, sem skráð er í kauphöllina
í Stokkhólmi.
Andvirðið færist að öllu leyti í
bækur Seðlabankans en hann lán-
aði Straumi 50 milljónir evra í
desember í fyrra vegna gjalddaga
á láni í mars síðastliðnum. Lánið
var að öllu leyti tryggt með veði
í eQ. Þrettán milljónir evra vant-
ar upp á greiðslu lánsins og mun
Straumur nýta aðrar tryggingar til
að mæta því, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins.
eQ sérhæfir sig í eignastýringu,
verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráð-
gjöf og er verðlaunað fyrir grein-
ingu sína.
Straumur keypti fyrirtækið í
forstjóratíð Friðriks Jóhannssonar
um mitt ár 2007 fyrir um 260 millj-
ónir evra, jafnvirði 22 milljarða
króna þá.
Kaupin voru tímamót í sögu
Straums enda mörkuðu þau fyrstu
skref í útrás bankans.
Sala eQ hefur staðið fyrir dyrum
frá því snemma í mars, eða frá því
Fjármálaeftirlitið greip inn í rekst-
ur Straums. Síðan þá hefur saxast
mjög á starfsemina og nær öllu
starfsfólki verið sagt upp. Hátt í
sextíu manns sitja eftir nú en stór
hluti starfsmanna kveður um mán-
aðamótin.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að hæsta tilboði hafi verið
tekið í finnska félagið. Einn við-
mælenda Fréttablaðsins segir
verðið lágt og skýrast af þeirri
erfiðu stöðu sem fyrirtæki tengd
Straumi hafi ratað í eftir yfirtöku
FME á fjárfestingarbankanum.
Hafi fáir kostir verið í stöðunni en
að selja starfsemina, jafnvel þótt
ekki fengist mikið fyrir hana. - jab
Straumur selur eQ í Finnlandi
Seðlabankinn lánaði fimmtíu milljónir evra með veði í finnska bankanum.
„Þetta er ósköp dapurlegt allt saman,“ segir
Björn Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri
fjárfestingarfélagsins Saxbygg ehf.
Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og tók
skiptastjóri, Einar Gautur Steingrímsson
lögmaður, við búinu.
Saxbygg hefur um nokkurra ára skeið
verið í eigu Saxhóls, félags Nóatúnsfjölskyld-
unnar og Bygg, Byggingarfélags Gunnars og
Gylfa.
Nafni félagsins hefur nú verið breytt í
eignarhaldsfélagið Icarus.
Stærsta eign þess í dag var 54 prósenta
hlutur í Smáralind á móti Íslandsbanka.
Aðrir hluthafar áttu innan við tvö prósent.
Rekstur Smáralindar þyngdist verulega við
hrun krónunnar í fyrra og tapaði eignar-
haldsfélagið 4,3 milljörðum króna í fyrra.
Viðræður standa enn yfir um endurfjár-
mögnun á 5,3 milljarða króna láni, sem er
á gjalddaga í september. Saxbygg var með
umsvifamestu hluthöfum Glitnis og átti 5,7
prósenta hlut þegar ríkið tók bankann yfir
í fyrrahaust. „Það var þungt högg,“ bend-
ir Björn Ingi á. Hann vildi litlu bæta við að
öðru leyti en því að engar skuldir séu í félag-
inu við aðra en viðskiptabankana.
Ekki náðist í skiptastjóra í gær. - jab
Saxbygg gjaldþrota
MÁLIN RÆDD Frá stjórnarfundi Straums
um það leyti sem eQ var keypt fyrir
tveimur árum. Félagið reiddi fram jafn-
virði 22 milljarða króna fyrir félagið en
fékk 6,3 til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SMÁRA-
LIND Stærsti
eigandi
Smáralindar er
gjaldþrota og
er verslunar-
miðstöðin að
nær öllu leyti
komin í hend-
ur bankanna.
Seðlabanki Mexíkó lækkaði stýri-
vexti um 75 punkta í gær og fara
vextirnir við það í 5,25 prósent.
Þetta er fimmti mánuðurinn í röð
sem seðlabankinn lækkar vextina.
Ákvörðunin nú grundvallast nær
eingöngu á viðleitni stjórnvalda
til að ýta hjólum efnahagslífsins
í gang á ný eftir að svínaflensan
lagðist yfir það með harkalegum
afleiðingum fyrir ferðamennsku
og útflutning.
Efnahagslíf landsins má ekki
við því að bæta miklum byrðum á
sig eftir kreppuna en gert er ráð
fyrir að flensan muni kosta þrjá-
tíu milljarða pesóa, sem jafngildir
0,3 prósentum af landsframleiðslu
Mexíkó. - jab
Stýrivextir lækka
vegna flensu
Forráðamenn Singer &
Friedlander, fyrrverandi
dótturbanka Kaupþings í
Bretlandi, seldu í gær 4,5
prósenta hlut bankans í
norska fjármála- og trygg-
ingafélaginu Storebrand.
Um mitt ár 2007 var ýjað
að yfirtöku Íslendinga á
félaginu.
Í gær gekk Singer & Friedlander
frá sölu á 4,5 prósenta hlut í norska
fjármála- og tryggingafélaginu
Storebrand. Fyrir hvern hlut feng-
ust 24,5 norskar krónur, sem er 2,3
prósentum undir meðalverði mán-
aðarins.
Verðið stóð í 25,8 norskum krón-
um á hlut á fimmtudag. Það féll um
tæp sjö prósent í fyrstu viðskipt-
um gærdagsins og fór nokkuð
undir söluverðið.
Miðað við þetta fellur hálfur
milljarður norskra króna, jafn-
virði 9,8 milljarða íslenskra króna,
í skaut forráðamanna Singer &
Fried lander.
Gamla Kaupþing keypti fyrstu
hlutina, tæp tvö prósent, í Store-
brand um mitt ár 2005 og varð við
það þriðji til fjórði umsvifamesti
hluthafinn. Hann bætti hratt við
sig og var svo komið í mars í hitt-
ifyrra að stjórnendur urðu að fá
sérstaka heimild norskra fjármála-
yfirvalda til að rjúfa tíu prósenta
múrinn. Blekið var vart þornað
á pappírnum þegar Kaupþing
flaggaði fimmt-
ungshlut og full-
nýttri heimild.
Gengi hluta-
bréfa í Store-
b r a n d s t ó ð
hæst á vordög-
um 2007 þegar
það sló rúmar
10 0 norskar
krónur á hlut.
Um svipað leyti
og gengið tók að
gefa eftir bættist Exista, stærsti
hluthafi gamla Kaupþings, í hóp-
inn þegar það keypti fyrsta kastið
5,56 prósenta hlut á meðalgenginu
76,25 norskar krónur á hlut.
Þegar yfir lauk voru íslensku
félögin umsvifamestu hluthafar
tryggingafyrirtækisins með tæp
þrjátíu prósent í fyrirtækinu
og var ýjað að yfirtöku þeirra á
norska tryggingarisanum.
Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður gamla
Kaupþings, settist í stjórn trygg-
ingafélagsins í byrjun síðasta árs.
Hann gekk úr henni í byrjun mars
á þessu ári.
Eftir ríkisvæðingu bankanna í
fyrrahaust seldi Exista hlut sinn
í Storebrand til Gjendsidige, eins
af umsvifamestu hluthöfum Store-
brand, með milljarðatapi. Félagið
er ekki á meðal kaupenda að hlut
Singer & Friedlander nú.
Skilanefnd gamla Kaupþings
situr enn á 5,5 prósenta hlut í
tryggingafyrirtækinu og mun gera
það áfram, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. jonab@markadurinn.is
SIGURÐUR
EINARSSON
Selja hlutinn
í Stóra-Brandi
SÉÐ YFIR OSLÓ Kaupþing og Exista áttu þrjátíu prósent í norska tryggingarisanum
Storebrand fyrir ári. Ýjað var að yfirtöku. Nú stýrir skilanefnd gamla Kaupþings 5,5
prósenta hlut í félaginu.
„Það er ljóst að íslenskt banka-
hrun og alþjóðlega fjármálakrepp-
an hefur leikið efnahagsreikning
Askar Capital grátt. Það jákvæða
er að lánveitendur félagsins hafa
gert sér grein fyrir því og tekið
ákvörðun um að styðja við bakið á
fjárhagslegri endurskipulagningu,“
segir Benedikt Árnason, forstjóri
Aska Capital.
Bankinn tapaði 12,4 milljörðum
króna í fyrra samanborið við 800
milljóna hagnað í hittiðfyrra.
Mestu munar um 9,4 milljarða
króna afskriftir og varúðarniður-
færslu á viðskiptavild, svo sem
eignaleigufyrirtækis Avant og virði
fasteigna, svo sem þeirra sem bank-
inn er með í eignastýringu fyrir
tryggingafélagið Sjóvá.
Samkvæmt ársuppgjöri bankans
sem birt var í gær var eigið fé nei-
kvætt um rúma 1,8 milljarða króna
um síðustu áramót og eiginfjárhlut-
fall um 5,2 prósent. Lögbundið lág-
mark er 8,0 prósent. - jab
Tapa 12,4 milljörðum
Inntökupróf - lau. 6 / 6 / 09 - umsóknarfrestur til 1.júní
Eins árs undirbúningur fyrir nám í
hönnun - myndlist eða arkitektúr.
Um 80% útskrifaðra nemenda fara
áfram til náms á háskólastigi.
www.myndlistaskolinn.is
Leir og
tengd efniMÓTUN
MYNDLISTA- OG
HÖNNUNARSVIÐ
Mótun A-hluti og C-hluti - umsóknarfrestur til 1.júní
Myndlista- og hönnunarsvið / 2009-2010
Mótun - leir og tengd efni / 2009-2010
Námið er tilraunastofa þar sem efni,
aðferðir og hugmyndir mætast.
Ný námsbraut - leið til BA gráðu.
www.myndlistaskolinn.is
www.myndlistaskolinn.is