Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 22
22 16. maí 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Jón Baldvin Hannibalsson skrifar um Evrópumál Nýlega kom út bókin Inni eða úti? eftir Auðun Arnórsson. Þetta er lítil bók um mikið efni: Hvernig á litla Ísland að semja um aðild við hið stóra Evrópusamband? Umræðuefnið er þessi dægrin á hvers manns vörum. Þessi litla bók á því brýnt erindi við alla Íslend- inga, sem á annað borð kæra sig ekki kollótta um framtíð sína og sinna. Að vísu er þetta ekki eins stór ákvörðun og virðast mætti við fyrstu sýn. Við erum nefnilega engir nýgræðingar í Evrópusam- starfi. Hinn 1. jan. sl. voru 15 ár liðin frá því að Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæð- inu (EES). Eins og höfundur sýnir fram á, þýðir það að við erum eins konar aukaaðilar að ESB nú þegar. Í samningaviðræðunum framundan þurfum við því aðeins að semja um tiltölulega fá vandmeðfarin mála- svið: Þau sem skipta mestu máli eru: Sjávarútvegur, landbúnaður og byggðamál, evrusamstarfið og kostnaður og mönnun örþjóðar í hinum stóru stofnunum ríkjasam- bandsins. Engum dylst, sem fylgist með þjóðarumræðunni, að u.þ.b. þriðj- ungur þjóðarinnar er skíthræddur um, að eitthvað hræðilegt muni koma fyrir þjóðina, stígi hún skrefið til fulls í Evrópusamstarf- inu og gerist fullgild aðildarþjóð. Af hverju eru svona margir svona voðalega hræddir? Sumpart er þetta ofurskiljanlegt. Íslendingar teljast vera innan við 0,1% af núverandi íbúafjölda Evr- ópusambandsins. Margir finna því sárt til smæðar sinnar. Þeir óttast að týnast í mannhafinu; að verða áhrifalaus handbendi stærri þjóða. Við erum nýfrjáls þjóð – fyrrver- andi nýlenduþjóð. Sjálfstæðisbar- áttan við Dani setur enn svipmót sitt á hugarfar og pólitíska orðræðu okkar. Þorskastríðin við Breta eru enn í fersku minni. Stund- um finnst okkur eins og allir útlendingar séu óvinir, sem vilji okkur illt. Skyn- samleg umræða, sem byggir á staðreyndum og yfirveguðu hagsmunamati, á erfitt uppdráttar í svona and- rúmslofti. Snertur af ofsóknarkomplex Við búum yfir lítilli reynslu í alþjóðasamskiptum. Sú hugsun, að við þurfum að tala máli okkar við erlenda áhrifamenn til að fá brýn- um hagsmunamálum framgengt, er mörgum íslenskum stjórn- málamönnum framandi. Margir þeirra virðast halda, að þeir séu einir í heiminum. Margir þeirra, sem þykjast færir í flestan sjó á heimavelli, reynast uppburðarlitl- ir og umkomulausir í framandlegu umhverfi. Tungumálakunnátta Íslendinga er reyndar langt fyrir neðan meðaltal hjá smáþjóðum í Evrópu. Flestir þykjast geta bjarg- að sér á amböguensku, sem dugar skammt þegar á reynir að rökræða flókin mál með sérhæfðu tungu- taki. Vald á skandinavísku er að deyja út með yngri kynslóðinni. Meginlandstungumál eru flestum framandi. Þessi málhelti þolir lítt samanburð við fjöltyngi stjórn- málamanna smáþjóða á meginlandi Evrópu. Það stoðar lítt að senda mállausa menn í samningaviðræður við útlenda sérfræðinga. Hvers vegna er svo auðvelt að telja Íslendingum trú um, að þjóðir sem starfa af fúsum og frjálsum vilja í fjölþjóðasamtökum, til þess að gæta þar gagnkvæmra hags- muna, hafi þar með glatað sjálf- stæði sínu og fullveldi? Hvers vegna í ósköpunum ættu þær rúm- lega 20 smáþjóðir, sem af fúsum og frjálsum vilja hafa samið um aðild að Evrópusambandinu, – hvers vegna ættu þær að hafa gert það til að farga sjálfstæði sínu? Umræða af þessu tagi flokkast undir ein- hvers konar paranoju – og þarfn- ast sérstakrar meðferðar. Hvað sagði ekki Hannes Péturs- son, sjálft þjóðskáldið, um dag- inn? Þótt hann væri allur af vilja gerður að eta súrmeti í öll mál, var hann ekki viss um, að fram- boðið yrði nóg, ef innflutningur á búvélum og tækjum og áburði og umbúðum legðist allt í einu af. Þá færi lítið fyrir fæðuörygginu. Og fiskveiðarnar væru varla annað en frá hendinni til munnsins, ef inn- flutningur skipa, véla og veiðar- færa legðist af. Ekki ein í heiminum Við getum m.ö.o. ekki látið eins og við séum ein í heiminum – okkur að kostnaðarlausu. Um 20 þús- und Íslendingar hafa misst vinn- una þessi dægrin. Allir þeir sem vinna við sjávarútveg og landbún- að teljast vera til samans innan við 11 þúsund manns. Þeim fer fækk- andi vegna aukinnar tækni, sem leysir mannshöndina af hólmi. Þessi 20 þúsund störf, sem okkur vantar fyrir Íslendinga með fjöl- breytta menntun og starfsþjálfun munu ekki verða til í sjávarútvegi og landbúnaði. Þau verða til í opnu þjóðfélagi, sem tekur fullan þátt í alþjóðasamskiptum. Einstaklingur, sem verður fyrir þeirri þungbæru reynslu að verða gjaldþrota, á ekki annarra kosta völ en að freista samninga við lán- ardrottna sína. Við þurfum með sama hætti að semja um greiðslu- kjör skulda, lánalengingu og lækk- un vaxta. Þjóð sem hefur fyrirgert lánstrausti sínu, býr við refsivexti. Einungis um 3% lækkun vaxta á erlendum skuldum fyrirtækja, heimila og ríkisins getur lækk- að greiðslubyrði þjóðarbúsins um meira en tvö hundruð milljarða. Við þurfum að semja um afnot af not- hæfum gjaldmiðli, af því að okkar eigin er rúinn trausti. Við þurf- um að semja um endurfjármögn- un skulda og aðgang að lánsfé. Það er sama hvert litið er. Við þurfum að semja við aðra, lánardrottna, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðild- arþjóðir Evrópusambandsins og Evrópusambandið sjálft til þess að finna lausn á bráðavanda – neyðar- ástandi – sem við ráðum ekki við að leysa ein á báti. Við vitum m.ö.o. að aðild að Evr- ópusambandinu og upptaka evru mundi hjálpa til við að leysa mörg af okkar brýnustu vandamálum. Við vitum líka, að til þess að það geti orðið verðum við að leita samninga sem taka nokkur ár. Einmitt þess vegna er óráðlegt að slá ákvörðun- inni á frest, því að samningar við Evrópusambandið snúast ekki bara um frambúðarlausn einhvern tíma í fjarlægri framtíð – heldur líka um lausnir á þeim bráðavanda, sem við verðum að leysa nú þegar með samningum. En þótt raunsæið beini okkur á þessa braut, þá glymur hræðslu- áróðurinn sífell í eyrum til að æra og villa villugjarna af vegi. Þeir munu stela auðlindunum okkar, er sagt. Útlendir flotar munu flykkj- ast á Íslandsmið, landbúnaðurinn verður lagður í rúst, við verðum látin borga meðlög með fátækum þjóðum í Austur- og Suður-Evrópu (miklu meira en við fáum í staðinn). Við getum ekki lengur gengisfellt krónuna til þess að lækka launin, ef afli bregst eða verð á fiski fellur í útlöndum. Og við, sem erum svo fá og smá, munum engin áhrif hafa í málstofum miðstjórnarvaldsins í Brüssel. Við verðum eins og hverjir aðrir niðursetningar á stórbýlum lénsherranna til forna. Samningsmarkmið Bók Auðuns er skrifuð til þess að svara hræðsluáróðri af þessu tagi. Í staðinn fyrir upphrópanir og sleggjudóma eru bornar fram stað- reyndir og upplýsingar um reynslu annarra þjóða, sem á undan förnum árum hafa farið í gegnum samn- ingaferli við Evrópu sambandið. Það er satt að segja undrunarefni, að á þessum hálfa öðrum áratug, sem pólitíska forystan á Íslandi hefur verið að velta því fyrir sér, hvort hún treysti sér til að semja við Evrópusambandið, þá hefur enginn, hvorki stjórnvöld né fræði- menn, myndast við að skilgreina þau samningsmarkmið, sem Íslend- ingar ættu að setja sér í aðildarvið- ræðum. Ráðuneyti gera náttúrlega ekki slíkt, nema þeim sé sagt það. Og stjórnmálamönnunum hefur yfirleitt staðið svo mikill stuggur af hræðslu áróðri sérhagsmunahópa, að þeir hafa ekki þorað að taka á málinu. Nú hefur höfundur þessarar bókar tekið af þeim ómakið. Hann setur fram í skýru og skilmerki- legu máli, í hverjum kaflanum á fætur öðrum, hver samningsstaða Íslands er og hver samningsmark- miðin ættu að vera. Í sjávarútvegsmálum er samn- ingsmarkmiðið að íslenska fisk- veiðilögsagan, sem er algerlega aðskilin frá hinni sameiginlegu lögsögu bandalagsins, verði viður- kennd sem sérstakt fiskveiðistjórn- unarsvæði á íslensku forræði. Þetta styðst jafnt við fordæmi annarra og veigamikil rök, sem byggja á sérstöðu Íslands. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru allir staðbundn- ir. Engin önnur Evrópusambands- þjóð á sögulegan rétt til veiða á Íslandsmiðum. Með þessari lausn er því ekkert frá öðrum tekið, sem þeir hafa átt, né heldur er neins krafist af öðrum, sem þeir þurfa að gefa eftir. Það eru gagnkvæmir hagsmunir að fiskveiðar á Íslands- miðum verði sjálfbærar. Að því er varðar rétt útlendinga til að fjárfesta í íslenskum sjávar- útvegsfyrirtækjum, er hægt að vísa til sérreglna, eins og þeirra sem gilda fyrir Álandseyjar um „takmörkun á rétti þeirra, sem ekki eiga lögheimili í viðkomandi landi á að eignast ráðandi hlut í fyrir- tækjum sem þar starfa, án þess að slíkar takmarkanir teljist brjóta í bága við jafnræðisregluna“. Íslend- ingar verða sjálfir að gera það upp við sig, hvort sérlausn af þessu tagi telst eftirsóknarverð. Margir eru þeirrar skoðunar, þ.á m. undirritaður, að eina leiðin til þess að létta óbærilegri skulda- byrði af sjávarútvegsfyrirtækj- unum sé sú að leyfa þeim, eins og öðrum fyrirtækjum, að leita eftir erlendu hlutafé. Fyrst sögulegur réttur til veiða er enginn og verði ráðandi hlutur útlendinga í fyrir- tækjunum takmarkaður, þarf ekki að hafa þungar áhyggjur af svo- nefndu „kvótahoppi“, sem gætt hefur í veiðum úr sameiginlegum fiskistofnum og á sameiginlegum hafsvæðum eins og t.d. á Norðursjó, en mundi ekki eiga við á Íslands- miðum. Það má merkilegt heita, að tals- menn kvótahafanna í LÍÚ eru svo uppteknir af því að varðveita illa fengin forréttindi sín til einokun- ar á fiskveiðiheimildunum, að þeir sjá óvini í hverju horni, en gleyma því gersamlega, að gengi Ísland í ESB yrðum við „fiskveiðistórveldi“ innan sambandsins. Í svokallaðri grænbók framkvæmdastjórnar ESB um fyrirhugaða endurskoðun SFS (sameiginlegu fiskveiðistefn- unnar), sem birt var í lok apríl 2009 er ýmislegt haft til hliðsjón- ar úr íslenska fiskveiðikerfinu (sjá bls. 56–62). Í framhaldi af þeirri umfjöllun segir Auðunn: „Eðlilegt samningsmarkmið Íslendinga væri að fá vilyrði fyrir því, að íslenski fulltrúinn í fram- kvæmdastjórninni yrði settur yfir sjávarútvegsmálin. Norðmenn fengu slíkt vilyrði, þegar þeir gerðu sinn aðildarsamning árið 1994.“ Byggðastefna í anda framsóknar Landbúnaði, byggðamálum og sveit- arstjórnarmálum eru gerð prýðileg skil í bók Auðuns, þótt ekki verði orðlengt um það í þessari umsögn. Svo vel þykist ég þekkja til íhygli og sjálfstæðrar skoðanamyndun- ar einstaklinga í bændastétt, að margir þeirra munu hugsa sig um tvisvar að loknum lestri, áður en þeir trúa sem nýju neti hræðslu- áróðri bændaforystunnar um enda- lok landbúnaðar og landsbyggðar. Íslenskir bændur vita, að ytri skil- yrði landbúnaðar á Íslandi mun gerbreytast, hvort sem við göng- um í ESB eða ekki, þegar niðurstöð- ur fást í yfirstandandi viðræður á vegum Alþjóðaviðskiptastofnun- arinnar (WTO) um aukið frelsi í milliríkjaviðskiptum með land- búnaðarvörur. Spurningin er, hvort íslenskir bændur yrðu ekki betur undir það búnir, eins og t.d. sænskir bændur, að takast á við þær breytingar, innan ESB frem- ur en utan? Að því er varðar byggðamálin segir höfundur eftirfarandi: „Eðlilegt samningsmarkmið Íslands væri að fá allt landið, vegna einangrunar í úthafinu, strjálbýlis og óblíðrar náttúru, skilgreint inn í „markmið 1“ í uppbyggingar- og byggðastyrkjakerfinu. Það gæti haft mikið að segja um það, hversu mikið íslenskir aðilar (sveitarfélög og fleiri aðilar sem sótt geta um uppbyggingar- og byggðaþróunar- styrki) gætu fengið greitt úr sam- eiginlegum sjóðum ESB og þar með hver nettóaðildariðgjöld Íslands að sambandinu yrðu.“ Í upphafi var þess getið, að Íslendingar teldust vera innan við 1% af samanlögðum íbúafjölda Evrópusambandsins. Það er því eðlilegt, að menn beri nokkurn kvíðboga fyrir áhrifaleysi í stofn- unum sambandsins. Um þetta er ágæt umfjöllun í bókinni. Á það er bent, að ekki er allt sem sýnist í þessu efni. Leitun mun vera á fjöl- þjóðasamtökum, þar sem smáþjóðir hafa jafnmikil áhrif og innan ESB, enda er meirihluti aðildarþjóða smáþjóðir skv. skilgreiningu. Við mættum gjarnan hugsa til þess, að ef að líkum lætur, þá yrðu um 64000 íbúar að baki hverjum íslenskum Evrópuþingmanni á móti 800.000 að baki hverjum þýskum þing- manni. Erum við ekki að bölsótast yfir misvægi atkvæða, sem mælist 1 á móti 2? Eru Þjóðverjar svona miklu fúsari en við til að afsala sér „fullveldi“ í samstarfi við aðra? Aðferðarfræði Evrópusambands- ins er að leysa ágreiningsmál, sem upp koma milli aðildarþjóða með samningum, á grundvelli laga og réttar. Smáþjóðir einbeita sér eðli málsins samkvæmt að fáum lykil- málum, sem varða brýna þjóðar- hagsmuni, og reyna að ná þeim fram í bandalagi við aðrar þjóðir, sem eiga svipaðra hagsmuna að gæta. Íslendingar myndu skipa sér í sveit með Norðurlanda- og Eystrasaltsþjóðum í svæðis- bundnu samstarfi innan ESB. Við höfum góða reynslu af margra ára- tuga samstarfi Norðurlandaþjóða og þurfum ekki að óttast ofríki af þeirra hálfu. Sem fiskveiðistór- veldi mundi Ísland eðlilega gera kröfu til þess að fá í sinn hlut fram- kvæmdastjórann yfir fiskveiðimál- efnum, eins og fyrr var tíundað og rökstutt. Á því leikur enginn vafi, að í sjávarútvegs- og orkumálum yrðu áhrif Íslands meiri og aðstaða til að koma fram hagsmunamálum sínum betri, innan ESB en utan. Þetta er eins og fyrr sagði lítil bók um mikið efni. Hún getur þénað íslenskum fyrirtækjum og heimilum sem handbók um samn- ingstöðu og samningsmarkmið Íslands í væntanlegum aðildar- samningnum. Greining höfundar á vandamálum og lausnum, sem og frásögn af reynslu annarra þjóða, ætti að vera til þess fallin að eyða fordómum og styrkja forsendur málefnalegrar umræðu um brýn- ustu hagsmunamál þjóðarinnar í náinni framtíð. Höfundur leiddi fyrir Íslands hönd samningana við Evrópusam- bandið um Evrópska efnahags- svæðið (EES) á árunum 1989-93. Samningsstaða og samningsmarkmið Engin önnur Evrópusambandsþjóð á sögulegan rétt til veiða á Íslandsmiðum. Með þessari lausn er því ekkert frá öðrum tekið, sem þeir hafa átt, né heldur er neins krafist af öðrum, sem þeir þurfa að gefa eftir. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.