Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 43
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
John Thomasson og fjölskylda
hans eru mikið afmælisfólk og
halda fast í afmælishefðir. Því er
ekki að furða að átta ára afmæli
miðdótturinnar í dag, hennar Köru
Lindar, setji mark sitt á helgar-
plönin. „Barnaafmælið ætlum
við að halda á mánudaginn en að
morgni afmælisdagsins höfum við
sérstakan hátt á,“ segir John en þá
vakna John, kona hans og hinar
dæturnar tvær á undan afmælis-
barninu til að blása í blöðrur og
búa til göngubraut úr silkislæðum
frá rúmi stúlkunnar að eldhúsborð-
inu þar sem þau skreyta stól eins
og hásæti og útbúa morgunverðar-
kræsingar.
„Eftir afmælismorgunverðinn
höldum við fjölskyldan af stað í
Lækjarbotna þar sem er vinnu-
helgi í skólanum hjá krökkunum,“
segir John en þar koma allir for-
eldrar saman til að þrífa, mála og
dytta að því sem þarf. „Ég á að sjá
um þrifin og konan mín verður að
smíða,“ segir hann og hlær dátt.
„Í kvöld ætlum við svo að fara
út að borða og þar sem Kara Lind
á afmæli og fær að ráða förum við
á sushi-stað,“ segir John en dætr-
um hans þykir sushi hið mesta ljúf-
meti. „Ætli við förum ekki á Osushi
í Lækjargötu því stelpunum þykir
spennandi að sjá bitana koma á
færibandi,“ segir John, sem ætlar
að ljúka deginum með því að hitta
félaga sinn í töfrabrögðum. John
er sjálfur fær í töfrabrögðum enda
nýkominn heim af átta daga töfra-
námskeiði í Las Vegas. „Við ætlum
að fara niður í bæ og gera töfra-
brögð fyrir gangandi vegfarend-
ur,“ segir hann og upplýsir að þeir
félagar geri slíkt einu sinni í mán-
uði til að æfa sig á ókunnugum.
Á sunnudag heldur vinnuhelg-
in að Lækjarbotnum áfram en
seinni partinn er svo lokatónninn
sleginn í helgina þegar stórfjöl-
skyldan mætir til veislu. Blaða-
maður minnist á að ekki sé ama-
legt að vera barn á þessu heimili
þar sem afmæli kalli á margra
daga veisluhöld. „Við eigum nátt-
úrlega dótabúð þannig að við
erum hálfgerð börn sjálf,” svarar
John glaðlega en hann og Sigrún
kona hans eiga og reka búðina
Börn náttúrunnar á Skólavörðu-
stíg. John segir reksturinn hafa
gengið erfiðlega eftir efnahags-
þrengingarnar og hafi þau neyðst
til að stytta afgreiðslutímann til að
skera niður launakostnað. Verslun-
in er því aðeins opin á fimmtudög-
um, föstudögum og laugardögum
um þessar mundir.
John þakkar Börnum náttúr-
unnar töfraáhugann en hann varð
til samhliða því að verslunin var
stofnuð fyrir fjórum árum. „Okkur
vantaði leikföng fyrir eldri börn og
pöntuðum því töfradót. Um leið og
ég opnaði fyrsta kassann heyrði ég
englahljóð og tíminn stóð kyrr,“
segir John dreyminn en síðan þá
hefur hann eytt allt upp í tíu tímum
á dag í að læra og kynna sér hin
ýmsu töfrabrögð. „Ég reyni að vera
bæði með atriði fyrir börn og full-
orðna enda er oft skemmtilegra að
plata fullorðna fólkið,“ segir John
og hlær en hann tekur að sér að
skemmta í barnaafmælum sem
og þrítugsafmælum og öllu þar á
milli. solveig@frettabladid.is
Töfrandi helgarplön
Töfraleikföng sem John Thomasson keypti inn fyrir verslunina Börn náttúrunnar urðu til þess að hann fór að
stunda töfrabrögð að atvinnu. Helgi Johns er þaulskipulögð og á afmæli dótturinnar stóran hlut að máli.
John leikur töfralistir í verslun sinni Börn náttúrunnar á Skólavörðustíg. Hann tekur að sér að skemmta við hin ýmsu tækifæri.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HUNDAHÓTELIÐ Á LEIRUM heldur opið hús í dag frá 13 til 18. Hund-
ar og menn fá nammi frá SS og börnin fá Svala. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir
þá sem vantar umönnun fyrir hundinn sinn í sumarfríinu að koma og skoða
aðstöðuna og spjalla við starfsfólkið.
Tilboð! Kínverskt heilsute
ásamt hágæða handgerðu tesetti
Gamalt verð
-30% afsláttur
Frí heilsuráðgjöf
innifalin
Skeifunni 3j · Sími 553-8282
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga og sunnudaga 10-16Opið
Margskonar te við:
• orkuleysi
• svefnleysi
• hægðartregðu
• grenningu
• minkun kolesterols
o.fl. o.fl.
Weber Q ferðagrillin komin.
Söluaðilar.: Járn og gler - Garðheimar - Húsasmiðjan
www.weber.is
www.lindesign.is/lagersala
LAGERSALA Lín Design
Úrval rúmteppa, púða, dúka, rúmfatnaðar ásamt ýmsu öðru.
Sýniseintök og umbúðalausar vörur með allt að 80% afslætti.
LAGERSALAN er á Malarhöfða 8,
(í brekkunni fyrir aftan Ingvar Helgason)
Opið laugardag & sunnudag 10 – 16.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki