Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 44
16. maí 2009 LAUGARDAGUR2
„Ég er búin að vera brosandi frá
því við byrjuðum söfnunina í
byrjun mars,“ segir Sunna Dís
Másdóttir sem hefur haft það
ljúfa verkefni undanfarna mán-
uði að lesa annarra manna ástar-
bréf. Sunna Dís er meistaranemi
í hagnýtri menningarmiðlun við
Háskóla Íslands en verkefnið Ást-
arbréf óskast! vinnur hún í sam-
starfi við Landsbókasafn Íslands
– háskólabókasafn.
Ástarbréf eru að mati Sunnu
vanmetið rannsóknarefni, enda
séu varla nokkur skrif jafn ein-
læg og ástríðufull og þau.
Um helgina verður fjöldi ástar-
bréfa og ástarjátninga sem borist
hafa til sýnis í hinum ýmsu versl-
unargluggum á Laugaveginum.
Bréfin eru allt frá hefðbundnum
handskrifuðum ástarbréfum til
nútímalegri ástarjátninga á borð
við smáskilaboð, tölvupóst og
Facebook-skilaboð.
Flest bréfanna á sýningunni eru
nafnlaus en ein undantekning er á
því. Þar er að finna bréf ritað af
ljóðskáldinu Steini Steinarr árið
1931 þar sem hann játar Þórhildi
Hafliðadóttur ást sína.
Sunna Dís getur brosað enn um
sinn, þar sem söfnunin heldur
áfram út ágúst, þótt sýningunni
ljúki á sunnudagskvöld. Hún óskar
eftir gömlum og nýjum ástarbréf-
um, hvort sem þau eru frumrit,
ljósrit eða útprent af tölvupósti.
Sunna segist hafa orðið vör við að
margir eigi erfitt með að ákveða
hvort þeir eigi að senda frá sér
bréf eða ekki. „Mér finnst ekkert
sjálfgefið að fólk vilji sýna ástar-
bréfin sín. En þau verða geymd
á öruggum stað í Handritadeild
Landsbókasafnsins, fyrir kom-
andi kynslóðir. Hægt verður að
takmarka aðganginn að þeim til
tuttugu ára, sem mörgum líst vel
á, enda margar ástarsögur til, sem
kannski er ekki tímabært að segja
frá enn þá.“
Nú er því kjörið tækifæri fyrir
alla, bæði gamla og unga, til að
kafa ofan í löngu læstar kistur,
skrolla nokkur ár aftur í tölvupóst-
inum sínum eða lesa gömul smá-
skilaboð og gefa minningum um
ástareld lausan tauminn.
holmfridur@frettabladid.is
Ástarbréfin í gluggunum
Það er vel þess virði að fá sér gönguferð niður Laugaveg um helgina og leita ástarinnar í verslunarglugg-
um. Sunna Dís Másdóttir hefur safnað ástarbréfum landsmanna sem nú eru til sýnis í miðbænum.
Sunna Dís Másdóttir við eitt ástarbréfanna sem til sýnis eru á Laugaveginum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VÆTTIR kallast sýning listakonunnar Jónínu Guðnadóttur sem
hún opnar í Hafnarborg um helgina. Verk Jónínu eiga rætur í leirlist.
Á sýningunni glímir hún við landvættirnar og aðrar vættir.
Prímadonnur í galakjólum
syngja aríur í Reykjanesbæ.
Fjórar af fremstu sópransöngkon-
um landsins, þær Auður Gunn-
arsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir,
Hulda Björk Garðarsdóttir og Þóra
Einarsdóttir munu koma fram á
tónleikum í Kirkjulundi í Kefla-
vík á sunndag en þeim til halds
og trausts verður Antonía Hevesi,
fastráðinn píanóleikari Íslensku
óperunnar.
Söngkonurnar hafa allar gert
garðinn frægan bæði hér heima og
erlendis og telst það nokkuð afrek
að ná þeim öllum saman. Þær hafa
þó áður komið fram á tvennum
tónleikum í Íslensku óperunni við
góðan orðstír.
Efnisskráin er ekki af verri
endanum en þar má finna marg-
ar af helstu perlum óperubók-
menntanna. Má þar nefna aríur,
dúetta og samsöngsatriði, eftir
Bellini, Mozart, Verdi, Wagner,
Puccini, Rossini og fleiri. Gala-
kjólar og -greiðslur munu gleðja
augu áhorfenda og eru þeir hvatt-
ir til að gera sér dagamun, klæða
sig upp á og gleðjast.
Sala aðgöngumiða á tónleikana,
sem hefjast klukkan 20, fer fram í
Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-
húsum. - ve
Prímadonnur syngja
í Reykjanesbæ
Prímadonnurnar Auður Gunnarsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Hulda Björk Garðars-
dóttir og Þóra Einarsdóttir ásamt píanóleikaranum Antoníu Hevesí.
Fjölbreytt dagskrá er í boði á
fjölmenningardaginn í Reykjavík
í dag.
Fjölmenningardagurinn í Reykja-
vík verður haldinn í fyrsta sinn
í dag en markmið dagsins er að
fagna fjölbreytileikanum sem
borgarsamfélagið býður upp á.
Dagskráin hefst klukkan 13 með
fjölþjóðlegri göngu sem fer af
stað frá Hallgrímskirkju. Fjöl-
þjóðagangan er samstarfs-
verkefni Heimsgöngunnar og
ýmissa samtaka innflytjenda
á Íslandi. Markmið Heims-
göngunnar, sem fer fram
síðar á þessu ári, er
að stuðla að friði í
heiminum og til-
veru án ofbeldis.
Yfirskrift fjöl-
þjóðagöngunnar
að þessu sinni
er friður og
eining. Lúðra-
sveitin Svan-
ur frumflytur
Heimsgöngu-
mars eftir
Ómar Ragn-
arsson við upphaf göngunnar og
spilar hann aftur þegar göngunni
lýkur við Ráðhús Reykjavíkur.
Í Ráðhúsinu og Iðnó verður fjöl-
breytt skemmtidagskrá frá 14 til
17 og eru allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir. Þar kennir ýmissa
grasa, meðal annars bambusdans,
dans snæljónsins frá Tíbet, jap-
önsk teathöfn og söngur frá
Keníu, Srí Lanka, Írak,
Búlgaríu og Indlandi.
Fjölmenningardag-
urinn er samstarfs-
verkefni Reykjavíkur-
borgar, Alþjóðahúss og
Heimsgönguhópsins og
er stefnt að því að gera
hann að árlegum
viðburði í borg-
inni.
Fjölþjóðleg ganga
og bambusdans
Ómar
Ragnarsson
hefur samið
Heimsgöngu-
mars sem
verður fluttur
af lúðrasveit
við upphaf og
endi fjölþjóða-
göngunnar.
Þegar ylströndin í Nauthólsvíkinni
er opnuð þá er sumarið komið! Það
virðist að minnsta kosti þannig
nú. Ströndin er opin alla daga
milli 11 og 19 og þar eru búnings-
klefar sturtur og heitir pottar.
Fólk getur fengið sandleikföng
og afnot af gasgrilli án endur-
gjalds í Nauthólsvíkinni. Einnig
er kaffi og gos til sölu í sjoppunni,
pylsur til að grilla og ýmislegt
annað góðgæti.
- gun
Ylströndin
opnuð
Á ylströndinni hafa gestir notið margra
góðviðrisstunda síðustu sumur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
Kolaportið er
OPIÐ
laugardaga
og sunnudaga
frá kl. 1100-1700
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki