Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 68
44 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusömust?
Lífið er búið að vera ein stór ham-
ingja eftir að ég hitti manninn minn,
Frey Frostason.
Hvert væri draumastarfið þitt?
Mig hefur alltaf dreymt um að
vinna í dýragarði.
Hvernig gengur að samtvinna
plötusnúðastarf við aðra vinnu? Nú
get ég komið því á framfæri að ég er
hætt að vera plötusnúður, losna við
nokkur óþarfa símtöl í mánuði. Ég
hætti þegar ég varð ófrísk að dótt-
ur minni, það fór ekki vel saman
með reykloftinu og að vera síðust
út. Opnunartíminn hefur lengst svo
mikið að ég þrauka ekki svona lengi.
Annars er svo mikið að gera hjá mér
núna sem vörumerkjastjóri að ég
hef ekki tíma fyrir aðra vinnu.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig? Ég er svo fljót
að gleyma svoleiðis, annars er fólk
yfirleitt ekki að hreyta ónotum í
mann.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur
nokkurn tímann keypt þér? Ætli það
sé ekki blessað húsið.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík,
hvar myndirðu vilja búa? Ef vinir
og fjölskylda kæmu með get ég búið
hvar sem er. Ég er samt mjög hrif-
in af New York, Kaupmannahöfn,
París og Tókýó.
Uppáhaldstónlistarmaður/kona
og af hverju? Vá, svo mörg! En
Dolly Parton og Beethoven eldast
vel með mér.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Afslöppun og dans í svipuðu
hlutfalli og mikið af góðum mat og
drykk með vinum og stórfjölskyldu
en skipta þeim á milli laugardags og
sunnudags.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tímann gegnt? Ég
er svo óþolandi týpa að mér þætti
gaman að skafa tyggjó af gangstétt-
um. Ég var einu sinni glasabarn á
Kaffibarnum en það var frábært
í minningunni og ég hef sjaldan
verið í betra formi berandi öll þessi
glös og klakafötur á milli hæða.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
unni? Fangið á Frey mínum.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag hlustarðu
mest á í dag? Mér finnst raftónlist
hafa mest áhrif á mig til að slaka
á eða komast í stuð. Samkvæmt
Itunes hef ég samt hlustað mest á
Band of Horses, Cease to Begin. Ég
er nefnilega nýlega búin að detta í
indie- og rokktónlist öllum að óvör-
um.
Ef að þú ættir tímavél, hvert
myndurðu fara og af hverju? Maður
vill náttúrlega ekki missa af neinu
þannig að ég væri til í að kíkja til
baka um 700 ár og aftur til baka.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni? Dóttir mín.
Ef þú gætir breytt einhverju í
fortíð þinni, hvað myndi það vera?
Maður þarf víst að lifa með mistök-
unum sem maður hefur gert. Ann-
ars væri maður ekki reynslunni
ríkari.
Hvenær fékkstu síðast hláturs-
kast? Ég? Það er ekki langt síðan.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Ég fer ekki leynt með mínar nautn-
ir.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Ég las frábæra ævisögu um daginn
um hana Guðmundu Elíasdóttur
óperusöngkonu.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til? Mér finnst allar
saumaklúbbsvinkonur mínar mikl-
ar fyrirmyndir og kjarnakvendi.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki? Eyði ekki tímanum í
svoleiðis vitleysu.
Uppáhaldsorðið þitt? Matur
kemur efst í hugann núna rétt fyrir
hádegi.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna
lífsgæði þín? Betra veður á Íslandi
og lengra sumar.
Hvaða lag á að spila í jarðarför-
inni þinni? Ég er mikill planari en
verð að viðurkenna að ég er ekki
alveg komin svona langt.
Hver verða þín frægu hinstu orð?
Fegurð, frelsi og frítími.
Hvað er næst á dagskrá? Ég er
að undirbúa frábært partí með
Smirnoff og Kronkron. Ég er sem
sagt alveg á heimavelli í vinnunni
minni þegar kemur að því að setja
upp partí og viðburði. Benni B-Ruff
og Gísli Galdur eru að setja saman
4 mixdiska seríu sem heita A-D og
B diskurinn er að koma út næsta
laugardag, 23. maí. Af því tilefni
ætlum við að setja upp flott partí
í Kronkron-búðinni þar sem fólk
getur fengið sér Smirnoff kokkteila
og hlustað á diskinn fluttan í heild
sinni í búðinni. Stuðið heldur svo
áfram á Kaffibarnum síðla kvölds.
Umbúðirnar eru allar hannaðar af
okkar fremstu hönnuðum og hver
diskur hefur sitt tónlistarþema. Ég
vonast til að sjá sem flesta sem hafa
gaman af tísku og tónlist.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Sóley Kristjáns-
dóttir
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Fyrirsæta, útvarpskona á X-inu
og Skratz, plötusnúður, sá um
sjónvarpsþáttinn Topp20 á Skjá
Einum og svo vínsölukvendi. Í
dag er ég vörumerkjastjóri hjá
Ölgerðinni og sé um sterku
vínin og innfluttu bjórana og
allt sem tengist þeim vöru-
merkjum. Ég geng núna undir
nafninu Sóley Smirnoff í stað
dj Sóley.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ
GERÐIST MARKVERÐAST Á ÞVÍ
ÁRI: 1980, árið sem Vigdís var
kjörin forseti fyrst allra kvenna
í heiminum.
Hætt að vera
plötusnúður
Sóley Kristjánsdóttir segir Önnu Margréti Björns-
son frá lífshamingjunni, draumahelginni, versta
starfinu og fleiri mikilvægum hlutum.
GENGUR UNDIR NAFNINU SÓLEY SMIRNOFF Sóley Kristjánsdóttir skipuleggur KronKron-teiti um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útsölustaðir.:
Hagkaup, útsölustaðir um land allt., Lyfja, útsölustaðir um land allt , Fjarðarkaup, Versl.. Einars Ólafssonar, Akranesi,
Blómsturvellir, Hellissandi, Kaupfélg V-Húnvetninga, Hvammstanga. Skagfi rðingabúð, Heimahornið, Stykkishólmi, Palóma,
Grindavík. Efnalaug Vopnafjarðar.
NÝTT
Sloggi fyrir herrana
2 stk í pk
kr. 2990
Góð vika fyrir...
Sært stolt
Íslendinga. Það
bráði af skömm-
inni eitt augna-
blik á þriðjudags-
kvöldið þegar Is
it true? komst áfram í
úrslit Eurovision. Hefðum varla
þolað hitt. Takk Evrópa.
Vegasjoppur. Samkvæmt
fréttum ætla 90 pró-
sent lands-
manna að
ferðast
innan-
lands. Það
ætti því að vera
kátt í höllinni og
varla seinna vænna að
fylla á remúlaði dúnkana í
sjoppunum við þjóðveginn.
Birgittu Jónsdóttur.
Annaðhvort er
hún svona brjál-
uð að hún
segir bara
nákvæm-
lega það
sem henni
finnst
eða er
stál-
heiðar-
leg mann-
eskja.
Slæm vika fyrir...
Sigga sæta og alla vini hans.
Nú er illt í efni því ekkert
tyggja má.
Heil-
brigðis-
ráðherra
hyggst skatt-
leggja
nammi-
dagana
okkar.
Þingmenn í fínni föt-
unum. Afnámi bindis-
skyldunnar hlýtur að
fylgja einhver tog-
streita fyrir þing-
menn. Eiga þeir að
líta út eins og ferm-
ingardrengir á leið á
skólaball innan um
hippa? Eða ekki og
láta Boss daga uppi í
fataskápnum? Erfitt
líf.
Suðurnesin. Sjúkra-
flutningamaður þar í
bæ var andlit Suður-
nesja í vikunni þegar
hann lýsti viðhorfum
sínum í garð hælisleit-
enda á Fésbók.
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA