Fréttablaðið - 16.05.2009, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Í dag er laugardagurinn 16. maí,
136. dagur ársins.
4.10 13.24 22.41
3.35 13.09 22.46
VINKONA mín þurfti að koma
cocker spaniel-hundinum sínum,
honum Nökkva, fyrir á nýju heim-
ili í vikunni. Eftirfarandi er sönn
saga. Vitnað er í símtöl sem áttu
sér stað yfir einn sólarhring.
(Nöfnum hefur verið breytt.)
13.00: „Júlía, ég hringdi áðan
í skakkt númer. Byrjaði sím-
talið svona (hélt ég væri að tala
við stelpu á hárgreiðslustofu
sem vildi kannski taka Nökkva):
„Viltu hundinn eða ekki?“ Konan
sem svaraði sagði bara: „Ha?“ og
sagði þetta vera skakkt númer. Ég
hafði óvart hringt í ræstitækn-
inn sem skúrar hjá mömmu. Ég
spurði hvort hún vildi samt ekki
hundinn. Hún sagði mágkonu
sína í Njarðvíkum spennta, hana
Lóu, og spurði hvort þær mættu
ekki allar koma. Svo brunaði hún
hingað heim við þriðja mann (á
tveimur ræstitæknibílum), þær
tóku Nökkva og keyrðu á brott.
Gólandi æstar.“ Lóa, sem fékk
Nökkva, hringdi hins vegar síðar
um kvöldið. Karlinn hennar hafði
tekið tryllinginn á Nökkva og vildi
ekki sjá hann.
19.45: „Júlía. Ég grátbað hana
um að finna einhvern annan. Lóa
hringdi út í sveit í Önnu Jónu sem
átti þrjá labrador-hunda sem allir
létu lífið í fyrra. (Þarna tók hún
það fram að þetta væri ekki lyga-
saga, hún hefði ekki hugmynda-
flugið í þetta bull). En Anna Jóna
treysti sér ekki í Nökkva en benti
á góða konu í Breiðholtinu. Svo,
Nökkvi er á leið til Önnu Jónu sem
mun svo ferja hann í Breiðholtið
til konu sem heitir Karítas.“
22.00: „Ég hringdi í Karítas og
hún hljómaði ekki traustvekjandi.
Ég hef áhyggjur.“
13.00 (daginn eftir): „Þú munt
ekki trúa hverju ég lenti í í morg-
un. Ég hringdi aftur í konuna í
Breiðholti. Eftir svefnlausa nótt
tilkynnti ég henni að ég ætlaði
að koma og sækja hundinn. Hún
skellti á mig. Ég brunaði upp í
Breiðholt að blokkinni, hringdi
bjöllunni, ekkert svar. Ég hringdi
aftur og aftur. Ekkert svar.
(Þarna var ég byrjuð að gráta og
hringdi í Njarðvíkina og skamm-
aði ræstitækninn). Svo hringdi ég
á öllum bjöllum í stigaganginum
og komst inn. Íbúð Karítasar var
eins og dópgreni+blómabúð eftir
húsleit. Ég sá glitta í mann í stól
í stofunni sem starði út í tómið
(gæti hafa verið lík). Nökkvi stökk
fram, beint í fangið á mér og ég
hljóp út. Júlía, ég fann hvað ég
elskaði hann þegar hann stökk út
úr draslinu, þá gleymdi ég öllu, ég
elska þetta helvítis dýr.“
Dagsatt rugl
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
2009
2009