Fréttablaðið - 23.05.2009, Qupperneq 4
4 23. maí 2009 LAUGARDAGUR
Tilboð
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
26°
19°
27°
25°
18°
22°
25°
27°
18°
19°
22°
18°
27°
28°
17°
19°
31°
18°
Á MORGUN
5-10 m/s
LAUGARDAGUR
5-13 m/s
5
7
6
7
6
7
6
6
5
6
8
9
10
13
15
12
8
8
9
8
8
8
12
8 8
8
10 88
5
10
11
HORFUR UM
HELGINA
Núna með morgnin-
um eru úrkomuskil að
ganga inn á sunn-
anvert landið og má
búast við rigningu
sunnan og vestan til
en úrkomulítið verður
lengst af nyrðra og
víða bjart í fyrstu. Í
kvöld verða skilin yfi r
Norðurlandi og þá
má búast við nokkurri
vætu þar en þá léttir
til suðvestanlands.
Víða verður væta á
morgun.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
BÚRMA, AP Vegatálmar sem hafa
verið fjarlægðir úr götu Aung
San Suu Kyi, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar í Búrma (Myan-
mar), þykja
benda til þess að
hún verði sak-
felld fyrir brot
á skilmálum
stofufangels-
isvistar sinnar
með því að hýsa
Bandaríkja-
manninn John
Yettaw.
Herstjórnin í
Búrma hefur nú ásakað stjórnar-
andstöðuna um að hafa skipulagt
heimsókn Yettaw til þess að nið-
urlægja herstjórnina og skaða
sambönd þess við Vesturlönd.
Gagnrýnendur hafa hins vegar
sakað herstjórnina um að hafa
notað heimsókn Johns Yettaw
sem átyllu til að halda Suu Kyi
frá kosningum sem eiga að fara
fram á næsta ári. - hds
Réttarhald herforingjastjórnar:
Búist við sak-
fellingu Suu Kyi
AUNG SAN
SUU KYI
SJÁVARÚTVEGUR Á meðal brýnna
aðgerða sem kveðið er á um í
stjórnarsáttmálanum er að vernda
grunnslóð. Kanna á möguleika á
að takmarka veiðar afkastamik-
illa skipa þar og inni á fjörðum
frá því sem nú er. Þannig verði
grunnslóðin treyst sem veiðislóð
fyrir smærri báta og umhverfis-
vænni veiði.
Friðrik J. Arngrímsson, for-
maður Landssambands íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ), segist ótt-
ast að önnur sjónarmið en vernd-
unarsjónarmið geti spilað þar
inn í. Friðrik segir útvegsmenn
áfram um að ekki séu notuð veið-
arfæri sem valdi meiri áhrifum
á umhverfið en ásættanlegt er.
LÍÚ hafi lengi stutt að ákveðnum
svæðum verði lokað fyrir ákveðn-
um veiðarfærum. Menn óttist hins
vegar að aðrar hvatir búi að baki
en verndunarsjónarmið.
„Sumir vilja hafa veiðislóðina
fyrir sig og hleypa ekki öðrum að.
Flatfiskur er nánast bara veiddur
með dregnum veiðarfærum, botn-
vörpu og snurvoð, og það er allt í
góðu lagi. Samt vilja menn útiloka
skip frá veiðum því þeir vilja sjálf-
ir sitja að þessu.“
Arthúr Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda
(LS), segir ákvæðið í stjórnarsátt-
málanum hljóma afskaplega vel
í þeirra eyrum. Í 24 ár hafi sam-
bandið ályktað í þessa veru og
hingað til hafi árangurinn verið
rýr, því stór svæði hafi undanfar-
ið verið opnuð fyrir togurum.
„Þrýstingur frá LÍÚ hefur orðið
til að stór svæði hafa verið opnuð
og þeir hafa haft Hafró sér til full-
tingis, þar sem ekki hefur verið
sýnt fram á beina skaðsemi veið-
anna. Það verður seint gert ef þær
eru ekki rannsakaðar. Á sama tíma
og við höfum viljað ýta stórum
togveiðiskipum út af grunnslóð,
höfum við ályktað um nauðsyn
viðamikilla rannsókna á afleið-
ingum þeirra veiða.“
Arthúr segir LA vilja að grunn-
slóð verði lokað fyrir mestallri
togveiði. „Við erum þó ekki svo
einstrengingslegir að við skilj-
um ekki að ýmsar tegundir megi
veiða innan slóðar með snurvoð og
rækjuveiði inni í fjörðum verður
seint stunduð á línu.“
Friðrik segir útvegsmenn búa
við miklar lokanir í dag og eigi að
auka á þær verði faglegar forsend-
ur að búa að baki. „Ef fara á var-
lega í þetta styðjum við það. Það
er ekki flókið. En þessi nálgun um
að banna botnvörpu þvert yfir og
banna dragnót algjörlega gengur
ekki.“ kolbeinn@frettabladid.is
Óttast að smábátar
yfirtaki grunnslóð
Smábátasjómenn fagna ákvæðum stjórnarsáttmálans um verndun grunnslóðar
og segja áratuga baráttu bera árangur. Útvegsmenn telja eiginhagsmuni geta
spilað þar inn í og óttast að togbátum verði úthýst af grunnslóð fyrir smábáta.
ARTHÚR BOGASONFRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
SMÁBÁTAR Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um veiðar afkastamikilla skipa verði
takmarkaðar á grunnslóð og hún treyst sem veiðislóð fyrir smærri báta.
GENGIÐ 22.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,0312
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,47 127,07
200,59 201,57
176,63 177,61
23,721 23,859
19,814 19,930
16,858 16,956
1,3442 1,3520
195,12 196,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Í frétt gærdagsins um málefni Bygg-
ingafélags námsmanna var fyrrver-
andi framkvæmdastjóri félagsins,
Friðrik Guðmundsson, ranglega
nefndur Sigurður aftarlega í fréttinni.
LEIÐRÉTTING
SJÁVARÚTVEGUR Hrefnuveiðar hefj-
ast líklega á þriðjudag, að sögn
Gunnars Bergmanns Jónsson-
ar, formanns Félags hrefnuveiði-
manna. Verið er að gera bátinn
kláran en það er Jóhanna ÁR
206 sem fer fyrstu túrana. Ligg-
ur hún við bryggju í Njarðvík en
lokið verður við að mála dekk
hennar um helgina.
Gunnar segir stefnt að því að
um helmingur kjötsins verði seld-
ur til Japans meðan hitt verði
fyrir innanlandsmarkað. Ekki
skorti eftirspurnina þar úti en
hins vegar sé erfitt að fá mark-
aðsaðila til náins samstarfs
meðan ekki sé hægt að tryggja
það að þeir geti fengið hrefnukjöt
næstu árin. - jse
Hrefnuveiðar hefjast:
Jóhanna fer á
hrefnuveiðar
SVÍÞJÓÐ Sænski þingmaðurinn
Carl B. Hamilton, sem meðal
annars hefur skrifað grein um
Ísland og ESB í Fréttablað-
ið, fagnar því að Íslendingar
ætli að sækja um aðild að ESB í
sumar.
„Þessi skilaboð eru að sjálf-
sögðu ánægjuleg og mikilvæg
fyrir Íslendinga en þau eru líka
mjög gleðileg fyrir okkur hin,“
segir hann í fréttabréfi sínu.
„Fátt er svo með öllu illt að
ekki boði nokkuð gott!“ held-
ur hann áfram og bendir á að
fjármálakreppan á Íslandi hafi
orðið til þess að þjóðin einbeiti
sér nú að framtíðinni. - ghs
Sænskur þingmaður:
Umsókn um
ESB er gleðileg
KVIKMYNDIR Óskarsverðlaunaleik-
stjórinn Michael Moore vinnur nú
að nýrri heimildarmynd um fjár-
málakreppuna. Myndin hefur ekki
enn fengið nafn
en kemur út 2.
október.
„Þeir ríku,
á einhverjum
tímapunkti,
ákváðu að þeir
ættu ekki næga
peninga. Þeir
vildu meira,
miklu meira,
svo þeir fóru
skipulega í það að reyna að ná
peningum af fólki. Af hverju?
Þetta er það sem ég ætla að skoða
í myndinni,“ sagði Michael á
blaðamannafundi í Los Angeles.
Michael hefur meðal annars
leikstýrt myndunum Fahrenheit
911 og Bowling for Columbine.
Fyrir þá síðarnefndu fékk hann
Óskarsverðlaun árið 2003. - vsp
Moore undirbýr nýja mynd:
Tekur fjármála-
kreppuna fyrir
MICHAEL MOORE
Ný sundlaug opnuð
Hátíðardagskrá vegna opnunar Álfta-
neslaugar verður haldin í dag klukkan
11.00. Í kjölfarið verður svo laugin
opnuð almenningi klukkan 12.00.
ÁLFTANES
GM gjaldþrota
Ríkisstjórn Bandaríkjanna mun gera
bílarisann General Motors, GM, gjald-
þrota í síðasta lagi í lok næstu viku.
Þetta kemur fram í Washington Post
á miðvikudag. Haft er eftir heimildar-
mönnum að ríkið stofni fyrirtæki sem
kaupi hluta úr þrotabúi fyrirtækisins.
BÍLAR
STJÓRNSÝSLA Sex fyrirtæki buðu í
rekstur Bílamiðstöðvar lögregl-
unnar á opnunarfundi á miðviku-
dag. Lægsta boðið er frá Brimborg
og hljóðar upp á tæpar 355 milljón-
ir króna á ári.
Í verkinu felst viðhald og endur-
nýjun allra ökutækja lögreglunnar,
sem samtals eru 159, næstu sex ár.
Enn fremur þarf samningsaðili að
kaupa öll ökutækin, sem metin eru
á 550 milljónir, gegn láni frá rík-
inu sem síðan er skuldbundið til að
kaupa flotann aftur endurverðmet-
inn að samningstíma liðnum.
Önnur fyrirtæki sem buðu í
verkið eru AKA ehf., Vélamiðstöð-
in, Vari, Frumherji og N1. Boðin
eru ekki öll samanburðarhæf, þar
eð misskilningur varð þess vald-
andi að Frumherji og AKA skiluðu
ekki inn heildarboði í allan bíla-
flotann, heldur einungis saman-
lögðu boði í rekstur eins ökutækis
úr hverjum flokki. Heildarupp-
hæðin er því ekki gefin upp, en sjá
má af boðunum að þau eru talsvert
hærri en lægsta boð Brimborgar.
Boðin eru öll tekin til greina.
Komið hefur fram að engu til-
boði verður tekið nema það leiði
til hagræðingar frá því sem nú
er. Landssamband lögreglumanna
hefur lýst áhyggjum sínum af því
að einkavæðing kunni að stefna
öryggi lögreglumanna í voða. - sh
Brimborg á lægsta tilboðið í rekstur Bílamiðstöðvar lögreglunnar:
Sex buðu í bílaflota lögreglu
LÖGREGLUBÍLL Lögreglan á 159 ökutæki
sem verða hugsanlega brátt komin í
einkaeigu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA