Fréttablaðið - 23.05.2009, Page 5
Ferskar kjúklingabringur eru í eftirlæti hjá Íslendingum, ekki
síst þegar þær eru grillaðar. Þessi réttur er kenndur við Las
Vegas þar sem er vart þverfótað fyrir spilakassa verjum og
Elvisum á öllum aldri. Kjörið er að smella konungi rokksins
á fóninn og grilla sér þennan ljúffenga borgara í sólinni.
FARIÐ SVONA AÐ: Þeytið majónesið með þeytara eða töfrasprota.
Æskilegt er að rauðurnar séu við stofuhita. Setjið rauðurnar í skál,
kreistið hvítlauksrifin og bætið sítrónusafa við. Hellið olíunni í mjórri
bunu og þeytið þar til majónesið er hæfilega þykkt. Sneiðið kartöflurnar
í báta, penslið með balsamikediki og stráið salti og broddkúmen yfir.
Bakið í ofni í 20 mínútur við 180 gráður. Bringurnar eru kryddaðar með
salti og pipar, steiktar á grilli eða pönnu og penslaðar með sósunni af og
til. Brauðið er skorið í þykkar sneiðar og grillað lítillega. Setjið kálblöð
og tómatsneið ofan á eina brauðsneið, svo kjúklingabringu, sósu og
aðra brauðsneið. Skreytið að vild! Uppskriftin er úr Holtabæklingnum
„Umhverfis heiminn í 14 réttum með Áslaugu Snorradóttur“.
* Fleiri frábærar kjúklingauppskriftir á www.holta.is *
HOLTA byggir á áratugalangri reynslu, leggur mikinn metnað í gæðastjórnun
og er stöðugt að auka fjölbreytni í vöruúrvali. Íslenskir neytendur hafa í
viðhorfskönnunum valið Holta kjúkling sem vinsælasta ferska kjúklinginn.
4 Holta kjúklingabringur
½ flaska Mesquite Smoked
Chili sósa (helst The Hot Spot)
1 heilt brauð (fínt að splæsa
í mjög gott brauð)
2 vænir, þroskaðir tómatar
1 jöklasalatshaus
Súrar gúrkur, ólivur, kirsuberja-
tómatar (eða annað ætilegt
skraut til að þræða upp
á pinnann)
Grillpinnar
Sætar kartöflur
2 stórar sætar kartöflur
½ dl balsamikedik
2 tsk broddkúmen (cumin)
Salt og pipar
Heimahrært majónes
2 eggjarauður
3 hvítlauksrif
2 msk sítrónusafi
2 dl ólívuolía
Salt
Elvisborgari
að hætti Las Vegas - fyrir 4