Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 28
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR Anna Margrét Björnsson skrifar LAUS VIÐ VERSL- UNARKVÖÐINA ferðalög kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd: Yvan Rodic Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir Ljósmyndir Fréttablaðið, Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög MAÍ 2009 SÆLKERAFÖR UM PARÍSARBORG Mæðgur skrifa um markaði, verslanir og veitingahús UPPSKRIFT AÐ KÖBEN TÍSKA, MATUR, DRYKKUR, MENNING OG AFSLÖPPUN Á SKÚTU VIÐ TYRKLANDS- STRENDUR Íslensk áhöfn í siglingakeppni S ólskinið sem mætti loksins á svæðið í síð- ustu viku gerbreytti stemningunni á land- inu. Allir urðu kátir í bragði, flykktust út á göturnar, fengu sér jafnvel ískaldan bjór og sleiktu sólskinið. Sumarið var loksins komið og öll bjartsýnin sem svo lengi hafði legið í dvala kom í ljós. Margir hafa mikinn hug á að sækja fóstur- jörðina heim í sumar og reyna að eyða sem mestum tíma úti á landi. Enda er af nógu að taka og alls kyns skemmtilegir viðburðir munu eiga sér stað. Hvernig væri til dæmis að skella sér á listahátíðina LUNGA á Seyðisfirði í júlí og njóta náttúrufegurðarinnar í leið- inni? Ég skellti mér um daginn til Kaupmannahafnar í einn heilan dag sem var stutt en samt alveg yndis- lega kærkomin tilbreyting. Þar sem krónan okkar er veik er klárlega ekki hægt að eyða þessum tíma í að versla. Hvílík dásemd hugs- aði ég líka, þegar ég sá ein- hverjar stressaðar íslenskar konur þeysast um með innkaupapoka. Einu sinni var alltaf allt svo dýrt á Íslandi að í hvert sinn sem maður fór til útlanda var eins og maður yrði að kaupa endalaust af hlutum til að „græða“ á ferðinni. Svo var viðkvæðið alltaf þegar maður kom heim „hvað keyptirðu þér?“ eins og maður væri eitthvað bilaður að hafa ekki fyllt ferðatöskurnar í HogM eða einhverju fínna. En hvað það er yndislegt að geta notið stórborgar án þess að hafa þessa hræðilegu kvöð á herðunum. Að eyða heil- um degi bara í að rölta um, horfa á mannlífið, setj- ast í sólina, skoða nokkur söfn, flatmaga á grasinu í skemmtigarði og hitta skemmtilegt fólk. Það er líka óþarfi að fara bara á fínustu veitingastaðina heldur stemning í því að fá sér kebab og bjór eða bara ekta danska pulsu úr pulsuvagni. Ferðalög þurfa alls ekki að kosta formúu, það er bara einhver grilla sem við höfum búið til í höfðinu á okkur. Það er enginn sem neyðir okkur til að „maxa“ vísakortið og burðast með samviskubitið heim í farteskinu heldur er einmitt meiri gleði fólgin í því að bara njóta hverrar stundar, laus við allt stress og veraldarprjál. 2 FERÐALÖG MORGUNMATURINN: Kaffi og banani á hlaupum. HVERNIG ER BEST AÐ EYÐA DEGINUM? Á heitum sumardögum er „Strand“sundlaugagarður bæjarins æðislegur staður til að vera á. Þar hittast nemarnir og fá sér einn kaldan við sundlaugarbakkann eftir erfiðan dag í skólanum eða eftir próf. Á veturna hittumst við oft á ýmsum stöðum miðbæjarins. BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ? Í þessari litlu borg er ekki mikið um leyndarmál. Ef einhver finnur eitthvað nýtt er það á allra vörum næsta dag. Einn af mínum uppáhaldsstöðum er hið svokallaði Froska- vatn, en þar hittast oft nemendur frá öllum heims- hornum, grilla, spila og spjalla. UPPÁHALDSVERSLUNIN: Þar sem ég er mikill léttvínsaðdáandi er ég mjög hrifinn af einni sérstakri léttvínsbúð hér sem heitir Bortársaság og er á Sim- onffy utca. Þar eru þeir með mikið úrval af afbrigð- um klassískra ungverskra víntegunda og þá einna helst eitt af mínum uppáhalds víðfrægu desertvínum frá Tokai-héraðinu. BESTI SKYNDIBITINN: WASABI (sushi) og Gyros (svipað og kebab). RÓMANTÍSKT ÚT AÐ BORÐA? Það er um svo margt að velja hérna í litlu borginni okkar, förum samt oftast á Csokonai, sem er gamaldags kjallaraveitingastaður. BEST VIÐ BORGINA? Sérstaklega á sumrin þegar allir gosbrunnar borgarinnar eru settar í gang, trén öll orðin græn, fólk á sveimi úti um allt, og kaffihús- in með borð og stóla út á stétt. Þar sem við erum einungis með einn sporvagn sem ferðast frá háskóla- svæðinu niður í Miðbæ, er svo stutt í allt. HEIMAMAÐURINN  Debrecen í Ungverjalandi ÆGIR AMIN HASAN HÁSKÓLANEMI K arrierebar er kaffihús/ bar/ veitingastaður á Vesterbro í Kaupmannahöfn, á torginu sem nefnt er eftir kjöti, Flæ- sketorvet. Barinn er umkringdur kjöt- verkunarhúsnæði þar sem stærðarinnar vörubílar eiga afdrep milli kjötflutn- inga. Barinn opnaði snemma árs og er hugarfóstur systkinanna Jeppe og Lærke Hein. Jeppe er danskur lista- maður sem er þekktur á heims- vísu og systir hans Lærke hafði lengi unnið í veitinga- og nætur- lífsbransanum í Kaupmannahöfn. Að sögn Lærke laust hugmyndinni niður í kollinn á þeim samstundis. „Við vild- um safna saman listamönnum á heims- klassa og af öllum listsviðum og feng- um frábær viðbrögð. Allir sem tóku þátt hjálpuðu til við að móta barinn með hug- myndum og gagnrýni,“ útskýrir hún. „Í raun er allt, sérhver hlutur, allt frá borðunum til lampanna, til krananna á barnum hluti af listaverki. En Karriere er allt öðruvísi en listasafn eða gallerí, hér er listina að finna á stað þar sem fólk hittist yfir mat, kokkteil eða dansi. Verkin deila rýminu með okkur öllum, verða hluti af upplifun okkar og svo er jafnvel hægt að sitja á þeim.“ Á Karrierebar er að finna verk eftir 32 listamenn og eru þau meðal annars hluti af innréttingunum. Karlaklósettið er til dæmis eftir Norðmanninn Gard- ar Heide Einarsson, lamparnir eftir Ólaf Elíasson og skjólveggurinn úti er eftir Bandaríkjamanninn Dan Gra- ham. Sjálft nafnið á barnum og skilt- ið er listaverk eftir Michael Elmgreen og Ingvar Dragset og fjallar um hvern- ig vinskapur og óformleg félagstengsl nýtast á framabrautinni og að barir séu í raun besta „ tengslanetið“ sem til er. Einnig stendur Karrierebar fyrir útgáfu mánaðarlegs listadagblaðs sem kallast KAFFI, LIST OG BJÓR Á KJÖTTORGINU Systkinin Jeppe og Lærke Hein reka barinn Karriere í kjötverkunarhverfi Kaupmannahafnar en staðurinn er heilt listakonsept sem skartar meðal annars verkum eftir Ólaf Elíasson. The Mona Lisa Toaster eftir danska listamanninn Kristoffer Akselbo. Allt brauð sem er ristað á Karri- erebar er hluti af listaverki Askselbos. Karrierebar býður upp á ljúffengan mat á kvöldin. Listaverk á hverju strái Lampar eftir Ólaf Elíasson í loftinu. einfaldlega Karriere og fjallar um þá listamenn sem sýna hverju sinni í rým- inu og viðburði tengda barnum. Þess má geta að barinn Jolene sem er í eigu Dóru Takefusa og Dóru Dúnu er einnig á flæ- ske torvet en hann þykir einn sá svalasti í borginni. - amb Karrierebar, Flæsketorvet 57- 67, DK 1711 Kaupmannahöfn. Karrierebar í Köben: Hér má sjá verkið Dividing Wall eftir banda- ríska listamanninn Dan Graham sem er skilrúm fyrir utan staðinn og er úr gleri, speglum og stáli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.