Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 32

Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 32
STRIKIÐ, NORÐURBRÚN, VESTURBRÚN... BORGARFERÐIR 6 FERÐALÖG UPPSKRIFT AÐ KÖBEN KRISTJANÍA Hálfgerð óöld hefur ríkt í hippahverfinu og fríríkinu Kristjaníu í Kaup- mannahöfn síðan hið opinbera fór að skipta sér af sölu á marijúana þar. Sumir óttast að dagar fríríkisins séu taldir og því um að gera að skreppa í heimsókn og sjá þetta skemmtilega fyrirbæri. Á sumardögum er yndislegt að spássera um þessa grænu og fallegu vin í borginni þar sem fólk hjólar um og börn eru að leik. Húsin eru lítil og sæt og oft á tíðum má sjá litríkt graffíti á veggjum þeirra. Margir veitingastaðir og barir eru í hverfinu og það er notalegt að sitja utandyra og dreypa á bjór. Ef megn marijúanalykt truflar mann ekki annað slagið getur maður virkilega notið sjarmans sem fylgir þessum hippalega stað. Það getur líka verið stórsniðugt að skella sér í ferð með Christiania-bikes, þá er ekið með mann um hverfið á reiðhjóli. FRÖKEN LILLA Kaupmannahöfn getur virkað ansi mikið dýr þessa dagana eins og efnahagsástandið er hér á Fróni. Það er því bráðsniðugt að kíkja í verslanir sem selja notuð hönnunarföt á lágu verði. Fröken Lilla er ein vinsælasta verslunin með notuð föt í Kaupmannahöfn og selur meðal annars hönnun eftir Soniu Rykiel, Munthe plus Simonsen, Malene Birger, Day, Prada og Missoni. Ein frá Manolo B McQueen. R svo öruggleg sem kosta fr krónur. Frk. Lilla, Fre Kaupmanna Opið þriðjud laugardögum WOOD WOO heimsækja m ina Wood Wo svo hipp og um „Wood W að finna alls annars hönn af flottum stu leikföng, lista hjólabretti. W ín fyrir tveimE K K I M IS S A A F … Lea Helga og Marteinn LISE BACH-HANSEN, KYNNINGARSTJÓRI HJÁ DEN SORTE DIAMANT UPPÁHALDSSTAÐURINN TIL AÐ KAUPA FÖT: Það er mitt eigið hverfi, ráðsetta hverfið í miðbænum í Lars Bjørns Stræde og Sankt Peders Stræde. Þar er fullt af litlum hönnun- arverslunum. Sú besta að mínu mati þessa stundina er GEIST í Sankt Peders Stræde en þar er fullt af svölum og einstökum dönskum fatnaði. UPPÁHALDS DANSKI HÖNNUÐURINN MINN: Ég elska merkið Fnubbu en það á hönnuðurinn Signe Møller Jensen sem hannar fötin og þau eru seld í GEIST. UPPÁHALDSVEITINGASTAÐIRNIR MÍNIR: Pastis á Gothers gade í miðbænum, L‘Education National í Lars Bjørns Stræde, Tire Bouchon í Lars Lejr Stræde en þetta eru allt frábærir franskir veitingastaðir. HVAR ER BESTI STAÐURINN FYRIR KRAKKA? Kongens Have lysti- garðurinn sem er fallegur og grænn og þar er skemmtilegt leiksvæði fyrir börn. Um helgar er þar brúðuleikhús sem er mjög sjarmerandi og alltaf vinsælt hjá smáfólkinu. HVAR ER BEST AÐ SÆKJA MENNINGU Í BORGINNI: Í Den Sorte Diam- ant eða í Svarta demantinum. Þar er fjöldinn allur af tónleikum, alls konar málþing og rithöfundar halda áhugaverðar tölur. Í JÚNÍ MÁ ALLS EKKI MISSA AF: Ljósmyndasýningu eftir finnska listamanninn Ola Kolehmainen „A building is not a building“ sem er í Ljósmyndasafninu í Svarta demantinum. Hvar á að versla, snæða, drekka og slappa af í kóngsins Kaupmannahöfn? Anna Margrét Björnsson fékk nokkra heimamenn til að ljóstra upp um leyndarmálin. Danskur stíll Þessi sæta mamma rölti í gegnum Kristjaníu með barnið sitt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.