Fréttablaðið - 23.05.2009, Qupperneq 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Á eftir verð ég á aðalæfingu Sin-
fóníuhljómsveitar áhugamanna
milli klukkan 10 og 13. Við erum að
æfa fyrir tónleika sem verða í Sel-
tjarnarneskirkju á morgun klukk-
an 17. Svo ætla ég í kvöld á nýju
íslensku óperuna, Hel, í Íslensku
óperunni. Hún er byggð á verki Sig-
urðar Norðdal og samin af gömlum
nemanda mínum, Sigurði Sævars-
syni,“ segir Oliver Kentish, tónlist-
arkennari og stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna, beðinn
um að lýsa helgarfyrirætlunum.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
starfar frá september til maí og
eru tónleikarnir á morgun þeir
síðustu á starfsárinu. Oliver lofar
fjölbreyttri dagskrá. „Við flytjum
meðal annars hornkonsert eftir
Mozart, þar sem einleikarinn er
annar gamall nemandi minn frá
Keflavík, Sturlaugur Jón Björns-
son. Svo ætlum við að spila hljóm-
sveitarsvítu númer 3 eftir Bach,
hægan kafla sem er mikið leik-
inn á Íslandi og oftast við sorgar-
athafnir. Við ætlum hins vegar að
spila hann örlítið hraðar en venja
er. Mér finnst fólk spila þetta orðið
allt of hægt og stíla of mikið inn á
væmnina. Það á hins vegar að vera
aðeins meira fútt í þessu að mínu
mati og alls engin væmni.“
Helgin er að mörgu leyti dæmi-
gerð fyrir Oliver, sem segist vakna
fyrir allar aldir á laugardags-
morgnum á veturna til að kenna
nemendum sínum við Tónlistar-
skólann í Hafnarfirði. „Laugardag-
ar eru besti tíminn til að æfa og þá
hitti ég krakkana í kammersveit-
inni. Þeir fá svo frí þegar sumar-
ið hefst og þá er minna að gera hjá
mér.“
Miðað við þétta dagskrá á blaða-
maður erfitt með að trúa síðustu
athugasemd og spyr hvort ekki
standi til að slappa neitt af um helg-
ina? „Jú, jú. Maður reynir það, og
þá annaðhvort með því að hlusta á
mikið af tónlist eða bara enga tón-
list. Stundum er þögnin líka góð,
nú eða þá fuglasöngur,“ svarar Oli-
ver og segist reyndar vona að veðr-
ið verði ekki allt of gott um helgina
svo fólk láti sjá sig á tónleikunum.
„Og það er nú ekki oft sem maður
biður um það,“ bætir hann við og
skellir upp úr. roald@frettabladid.is
Spila sorglegan Bach
með hressilegum hætti
Óhætt er að segja að tónlist sé helsta ástríða Olivers Kentish. Helgin verður engin undantekning á því en
þá ætlar Oliver að stjórna tónleikum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna sem verða með fjölbreyttu sniði.
Oliver er fæddur og uppalinn í London en settist að á Íslandi árið 1977. Hann hefur lengi starfað við tónlist, meðal annars við
kennslu, tónsmíðar og hljómsveitarstjórnun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐRIÐ skiptir miklu máli þegar tekin er ákvörðun um hvað eigi
að aðhafast um helgina. Því er gott að athuga spána. Á vefsíðu
Veðurstofu Íslands má finna spákort fyrir næstu daga. www.
vedur.is
Skeifan 3j · Sími 895 8966mánudaga - föstudaga 10-18laugardaga 9-16 Opið
Mikið úrval af
blómapottum í öll
um
stærðum og gerðu
m
lítið verð
Stórir pottar
www.lindesign.is/lagersala
Góðar ferðatöskur
geta gert
gæfumuninn!
Skólavörðustíg 7 • www.th.is
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?