Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 48
● heimili&hönnun
Sjö íslenskum hönnunarverkefn-
um og tveimur samstarfsverk-
efnum var á miðvikudag úthlutað
samtals ellefu milljónum króna úr
Hönnunarsjóði Auroru.
Verkefnin hlutu styrk eru frá
Hugrúnu Árnadóttir, Magna Þor-
steinssyni, Jóni Björnssyni, Guð-
rúnu Lilju Gunnlaugsdóttur, Katr-
ínu Ólínu, Lindu Árnadóttur, Söru
Maríu Júlíusdóttur og hönnunar-
teyminu Vík Prjónsdóttur.
Sjóðurinn var stofnaður af Aur-
oru velgerðasjóði, sem settur var
á laggirnar að frumkvæði hjón-
anna Ingibjargar Kristjánsdótt-
ur og Ólafs Ólafssonar. Honum
er ætlað að styðja við framúr-
skarandi hönnuði, efla gras-
rótarstarf í hönnun og
vera vettvang-
ur hugmynda
og skapandi
hugsunar í
íslenskri
hönnun.
- hhs
Sjö hönnuðir fá styrki úr Auroru
● Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði nýverið styrkjum til framúrskarandi íslenskra hönnuða
á Kjarvalsstöðum. Markmiðið með styrknum er efla nýsköpun og sprotastarfsemi á Íslandi.
Hönnuðirnir sem fengu ellefu milljónir króna úr Hönnunarsjóði Auroru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þessir skór eru úr skólínunni
KRON by KRONKRON.
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við
húsnæði. Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði.
Hámarkslán eru 20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru
á þessum lánum og almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
B arnaherbergi eru oftar en ekki yfirfull af ýmiss konar leikföng-um og smádóti sem geyma þarf í rúmgóðum hirslum. Útbúa
má góðar og hagkvæmar hirslur án þess að eyða morð fjár með því
einfaldlega að láta gamlar skúffur ganga í endurnýjun lífdaga.
Sniðugt ráð er að taka gamlar skúffur, mála þær í hressilegum
litum, jafnvel með mynstri, og setja hjól undir þær. Þá má auðveld-
lega rúlla þeim undir rúm eða færa til í herberginu. Skemmtilegt getur
verið að leyfa börnunum að taka þátt í sköpunarverkinu og mála til að
mynda mynstur á skúffurnar. - hs
Skúffuhirslur á hjólum
í barnaherbergið
Barnaherbergi eru oft stútfull af alls kyns dóti sem hægt er að setja í gamlar,
uppgerðar skúffur.
Líkkistur og
duftker úr
pappamassa
eftir Guðrúnu
Lilju Gunn-
laugsdóttir.
23. MAÍ 2009 LAUGARDAGUR4