Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 49
FRIÐRIK WEISSHAPPEL
VEITINGAHÚSAEIGANDI
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR: Hann heitir
Ranees og er taílenskur veitingastaður í eigu
ungrar konu sem elskar að elda, einfaldur
staður en mjög kúl stíll og ótrúlegur matur
á fínu verði. Prófið „soft shell“-krabbann og
engifergosdrykkinn.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ FARA Á MEÐ BÖRN: Dýragarðurinn í Kaup-
mannahöfn er stórkostlegur staður fyrir börn og fullorðna. Margt að
gerast og fjölskyldan getur tekið með sér nesti í körfu og eytt deginum
í garðinum. Einmitt núna eru tveir skógarbjarnarungar að leika sér,
ótrúlega fyndið.
SKEMMTILEGASTI BARINN: Hann heitir The Office og er hreinræktaður
kokteilbar með rólum og mjög beittum barþjónum sem eru með harðan
húmor. Ekki fyrir viðkvæmar sálir og ekki fyrir þá sem smella fingrum á
þjóna, þér yrði bara sagt að hypja þig!
BESTI STAÐURINN Í HÁDEGINU Á SUNNUDEGI: Sorgenfri er réttur
staður fyrir hádegisverðinn, eldgamall staður með klassískum dönskum
réttum, sjarmerandi með mikla sál í kjallara í miðbænum við hlið Striks-
ins. Ef þú vilt frekar góðan borgara þá kemurðu til mín á Laundromat :)
hehehe.
HVAR ER SKEMMTILEGAST AÐ SÆKJA MENNINGU: Menninguna
færðu við að skoða Den Hirschprungske Samling. Sérstaklega fallegt
lítið safn sem færir þig bókstaflega inn í allt aðra vídd. Geysifögur
olíumálverk.í júní má alls ekki missa af … tónleikum Keane í Kongelige
Theater, verður ekki fyrir vonbrigðum þar, og svo er komið nýtt tryllitæki
í Tívolí– allrosalegt martraðartæki!
nig er hægt að finna skótau
Blahnik, Gucci og Alexander
Rúsínan í pylsuendanum er
ga úrval af Chanel-töskum
rá sjö og upp í þrettán þúsund
ederiksborggade 41, 1360
höfn
dag-föstudag kl. 11- 18 og á
m kl. 11-15.
OD Allar tískupíur verða að
mekka danskrar tísku: Verslun-
ood á Kristalsgade. Búðin er
kúl að það er hreinlega talað
Wood“-senu í borginni. Þar er
konar flott fatamerki og meðal
nun eftir Henrik Vibskov, úrval
uttermabolum, sérhönnuð
averkabækur og meira að segja
Wood Wood opnaði útibú í Berl-
ur árum.
NÝJA KONUNGLEGA LEIKHÚSIÐ Við höfn-
ina, eða Kvæsthus-bryggjuna, stendur hið
stórfenglega nýja Skuespilhus sem opnaði í
fyrra. Arkitektúr hússins er einstakur og eru
áhrifin frá ítölskum endurreisnarleikhúsum í
bland við neðanjarðarleikhúsin í New York.
Stóra sviðið er byggt líkt og hellir og það
er mikil upplifun að njóta leikverks þar. Þeir
sem hafa ekki tíma til að skella sér í leikhús
ættu þó að leyfa sér þann munað að skoða
bygginguna og fá sér ljúffenga máltíð á veit-
ingastaðnum með afbragðsútsýni yfir hafið.
Ring, ring!
Það er flott að hjóla þar sem flatt er.
Og flöt er Danmörk. Leigðu hjól á góðu
verði og upplifðu landið öðruvísi.
Silkeborg
Skelltu þér í skemmtisiglingu
með elsta starfandi gufubáti
í heimi frá Silkeborg til
Himmelbjerget.
með ánægju
Fjör fyrir alla fjölskylduna
Danmörk er svo passleg. Þægilega stór, milt veðurfar,
vinaleg og aðgengileg. Svo tekur enga stund að skjótast
þangað. Bókaðu huggulega fjölskylduferð til Danmerkur á
www.icelandexpress.is.
Það er tilvalið að fljúga á einn áfangastað í Danmörku, fá sér
bílaleigubíl frá Budget, ferðast um landið og fljúga jafnvel
heim frá öðrum áfangastað. Við bjóðum einnig mikið úrval
af gistimöguleikum; sjá nánar á www.icelandexpress.is.
Álaborg
Árósar
Óðinsvé
Hróarskelda
Knuthenborg
Skagen
Billund
Þýskaland
Horsens
Kaupmannahöfn
Helsingør
Silkeborg
Í Lególandi í Billund er gaman
að vera. Rússíbanar, bátar, sjó-
ræningjar og eintóm ævintýri.
Ekki klikka á frægustu
kubbum í heimi.
Listamenn sækja
sér innblástur í fegurð
Skagen á Jótlandi. Láttu
hana ekki fram hjá
þér fara.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
9
5
5
0
LOUISE VIVEL-BRAUNER,
GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR: The funky
kitchen - BioMio á Halmtorvet 19, 1700
København V, en það er svona lífrænn og
heiðarlegur veitingastaður.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ FÁ SÉR DRYKK
EFTIR MATINN: Farið á kokteilbarinn Ruby á
Nybrogade.
SVALASTI BARINN: Karriere-bar á Flæsketorvet á Vesturbrú er
skemmtilegasti barinn um þessar mundir og vinsælasti næturklúbbur-
inn er The Lot á Pilestræde.
Í HVAÐA HVERFI ER SKEMMTILEGAST AÐ VERSLA? Á Vesturbrú
nálægt Istedgade og í kringum Boltens Gaard.
UPPÁHALDSHÖNNUÐUR Í DANMÖRKU: Henrik Vibskov af því að fötin
hans eru hrein listaverk, í öllum regnbogans litum og í frumlegum snið-
um. Og Munthe Plus Simonsen af því að hönnun þeirra er svo kvenleg
og fáguð.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ ANDA AÐ SÉR MENNINGU: Arbejdermu-
seet sýnir hvernig venjulegt danskt fólk bjó á árum áður og er virkilega
sjarmerandi. Svo myndi ég bara rölta niður Strikið, frá Ráðhústorginu til
Kongens Nytorv og enda í Nýhöfn nálægt Amalienborg.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ FARA MEÐ BÖRN UM HELGAR: Legoland í
Billund er sívinsælt hjá smáfólkinu.
BESTI STAÐURINN FYRIR BRÖNS Á SUNNUDEGI: „Bastionen og
Løven“ á Christianshavns Voldgade er æðislegur.
Í JÚNÍ MÁ ALLS EKKI MISSA AF: Distortion 2009 (2.-6. júní) Tónlistarhá-
tíð sem á sér stað á 66 mismunandi stöðum um alla Kaupmannahöfn!