Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 23. maí 2009 33 Fyrirtæki leikarans Will Smith, Overbrook Entertainment, og Sony Pictures ætla að framleiða mynd sem fjallar um fellibylinn Katrínu. Þessi skæði bylur gekk yfir New Orleans árið 2005 og olli gríðarlega miklu tjóni. Myndin fjallar um John Keller, fyrrverandi liðsmann sjóhersins, sem bjargaði 244 af nágrönnum sínum í borginni. Í fimm daga sá hann til þess að þeir væru örugg- ir á heimilum sínum auk þess sem hann hjálpaði eldra fólki og fötluðum að komast í öruggt skjól frá flóðinu sem kom í kjölfar fellibyljarins. Talið er líklegt að Will Smith leiki aðalhlutverkið í myndinni, sem á vafalítið eftir að njóta vin- sælda í heimalandinu þegar hún verður frumsýnd. Gerir mynd um Katrínu WILL SMITH Leikarinn góðkunni ætlar að búa til mynd sem fjallar um fellibylinn Katrínu. Jónsi í Sigur Rós er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. Upptöku- stjóri verður Peter Katis, sem hefur unnið með þekktum hljóm- sveitum á borð við Interpol og The National. Íslandsvinurinn Nico Muhly verður gestur á plöt- unni. „Þetta verður mestmegnis kassagítarplata en samt verða þarna strengjaútsetningar,“ sagði Katis í nýlegu viðtali. Þessi tíðindi koma ekki mjög á óvart því nýlega endurhljóðblandaði Jónsi lag eftir Depeche Mode fyrir væntanlega smáskífu sveitarinnar. Einnig er væntanleg í júlí platan Rice- boy Sleeps sem hann tók upp með kærasta sínum, Alex Somers. Jónsi með sólóplötu JÓNSI Upptökur á fyrstu sólóplötu Jónsa í Sigur Rós hefjast á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Hinn 23 ára nemi Kris Allen frá Ark- ansas-ríki var óvænt kjörinn sigurveg- ari American Idol-keppninnar. Flestir höfðu veðjað á sigur Adams Lambert í úrslitaeinvíginu enda hefur hann sýnt afburða sönghæfileika í allri keppninni. Allen höfðaði engu síður til fleiri sjónvarpsáhorfenda í lokin og sigldi örugglega í gegnum keppnina með góðri frammistöðu og hæverskri fram- komu sinni. „Mér líður vel, en Adam á þetta skilið,“ sagði Allen þegar honum var tilkynnt um sigurinn og nokkru síðar sagði hann: „Ég var alltaf jafnundr andi þegar ég komst áfram og var síðan kjör- inn American Idol. Ég er algjörlega í sjokki.“ Lambert kippti sér lítið upp við tapið og baksviðs sagði hann þetta: „Hvað mig varðar þá snýst þetta í raun ekki um hvað gerðist í kvöld. Þetta snýst um morgundaginn.“ Í lokaþættinum söng hann með hljómsveitinni Kiss en Allen söng með kántríhetjunni Keith Urban. Síðan sungu þeir saman We Are The Champions með aðstoð Queen. Úrslit keppninnar endurspegluðu úrslitin í fyrra þegar dómarinn Simon Cowell nánast krýndi David Archuleta áður en niðurstaðan lá fyrir. Á endanum tryggði David Cook sér óvænt sigurinn. Oft hefur það gerst að þeir sem vinna ekki Idol-keppnina ná lengra en sigurvegararnir. Til að mynda hafa Chris Daughtry, sem lenti í fjórða sæti, og Jennifer Hudson, sem varð sjöunda, bæði náð gríðarlega langt í heimalandi sínu, sem og Clay Aiken, sem varð annar á eftir Ruben Studdard. Sigur- vegarar á borð við Studdard og Taylor Hicks eru að mestu gleymdir. Um 28,8 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á úrslitaþátt Idol síðastliðið miðvikudagskvöld, og hafa áhorf- endur ekki verið svona fáir síðan 2004. Þátturinn er þó enn sá vin- sælasti í Bandaríkjunum. Þá hafa aldrei verið greidd fleiri atkvæði í þættinum en í þetta sinn, eða eitt hundrað milljón. Fyrir þessa áttundu þáttaröð var ákveðið að hressa upp á þáttinn með því að fá fjórða dómarann til leiks, lagahöfundinn Kara DioGu- ardi. Það virðist ekki hafa virk- að nógu vel og hefur Simon Cowell gefið í skyn að hann ætli hugsan- lega að yfirgefa Idolið þegar samn- ingur hans rennur út á næsta ári. - fb Óvænt úrslit American Idol SIGURVEGARI Kris Allen var óvænt kosinn sigurvegari Amer- ican Idol-keppninnar. Hundrað milljón atkvæði voru greidd, sem er nýtt met. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ADAM LAMBERT Þrátt fyrir mikla sönghæfileika tókst Lambert ekki að bera sigur úr býtum. ... á tilboði!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.